Bræðurnir hafa beðið jólanna frá því í sumar

Tví­bura­bræð­urnir Adam Eilífur og Adrían Valentín eru nýorðnir ell­efu ára. Þeir eru báðir með dæmi­gerða ein­hverfu. Erill hátíð­anna fer stundum illa í börn með ein­hverfu en aldeilis ekki í þá bræður. Þeir elska jólin og allt sem þeim fylgir.

Bræðurnir hafa beðið jólanna frá því í sumar

Tví­bura­bræð­urnir Adam Eilífur og Adrían Valentín, sem nýlega eru orðnir 11 ára, hefur hlakkað mikið til jól­anna, rétt eins og á við um flest börn á þeirra aldri. Adam kannski örlítið meira en Adrían reyndar, enda er hann mik­ill jóla­karl, eins og mamma hans segir. Raunar er hann búinn að bíða þeirra spenntur frá því síð­ast­liðið sumar og hefur verið að minna hana á þau síðan þá. Hún hefur ekki tölu á því hversu oft hann hefur staðið fyrir framan hana og sagt: „Jólin koma bráðum!“ með spurn­ar­tóni, í þeirri von að fá svarið: „Já, bráðum koma jólin.“

Vissi ekki hvað einhverfa er

Strák­arnir eru ein­eggja tví­burar, fæddir í nóv­em­ber 2007, svo þeir eru nýlega orðnir 11 ára. Þeir eru báðir með dæmi­gerða ein­hverfu sem upp­götv­að­ist þegar þeir voru á leik­skóla­aldri, um 3 og hálfs árs. Mömmu þeirra grun­aði ekki þá hvað væri að. „Þeir voru báðir tveir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár