40% fækkun farþega WOW yfirvofandi

Skúli Mogensen, for­stjóri WOW air, segir það hafa verið mis­tök að hverfa af braut lággjalda­flug­fé­laga. Farþegum mun fækka um 1,4 millj­ónir á næsta ári.

40% fækkun farþega WOW yfirvofandi

Nið­ur­skurður í leiða­kerfi WOW air mun valda fækkun far­þega úr 3,5 millj­ónum í 2,1 milljón á næsta ári. Það er 40% sam­dráttur milli ára. Þá mun störfum fækka um 350 og starfs­fólk verða um þús­und tals­ins. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Töluverð óvissa ríkir um þróun ferða­þjón­ustu vegna breyt­inga hjá WOW air í tengslum við vænt­an­legan sam­runa fyr­ir­tæk­is­ins við Indigo Partners. Tilkynnt var um upp­sagnir 111 fast­ráð­inna starfs­manna í vik­unni og fækkun véla úr 20 í 11. Skúli Mogensen, for­stjóri WOW air, segir að fyr­ir­tækið hafi ofmetn­ast und­an­farin ár og vikið af braut lággjalda­flug­fé­laga. 

„Það er við­skipta­líkan sem hefur virkað og þau hafa náð mjög góðum árangri víða í harðri sam­keppni við gömlu flug­fé­lögin,“ segir Skúli. „Þetta sáum við þegar við stofn­uðum WOW. Og förum af stað með það að leið­ar­ljósi en missum síðan því miður sjónar á því og það var – og ég harma mis­tökin – það sem við ætlum að leið­rétta. Nú ætlum við aftur að fara í harða lággjalda­stefnu. Ég hef fulla trú á því. Þetta er mjög sárs­auka­full aðgerð en með því að taka þetta skref núna erum við að byggja grunn­inn að því að geta síðan vaxið áfram sem lággjalda­fé­lag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár