Jón Ásgeir var á „djöflamergnum“ og reyndi að fá Samherja inn í Stím

Tölvu­póstur frá Samherja, sem sendur var fyrir hönd Þorsteins Más Baldvins­sonar, til Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar sýnir hvernig það var Jón Ásgeir sem reyndi að setja saman fjárfesta­hópinn í Stím. Lárus Welding var dæmdur í fimm ára fangelsi í málinu en Jón Ásgeir sagði fyrir dómi að hann hefði ekkert komið að viðskiptunum.

Áralöng tengsl
Áralöng tengsl Tengsl Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Þor­steins Más Bald­vins­sonar ná mörg ár aftur í tím­ann en þeir voru báðir í Orca-hópnum sem keypti tæp­lega 25 pró­senta hlut í Fjár­fest­ing­ar­banka atvinnu­lífs­ins árið 1999. Þeir sjást hér saman á mynd ásamt félögum sínum úr Orca-hópnum, Jóni Ólafs­syni og Eyjólfi Sveins­syni.

Eitt stærsta og þekktasta hrunmálið er svokallað Stím-mál sem snýst um 20 milljarða króna lán sem Glitnir veitti félaginu Stím til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group í nóvember árið 2008. Þetta var á sama tíma og Jón Ásgeir Jóhannesson fékk Lárus Welding og Glitni til að sölu­tryggja hlutafjár­útboð FL Group sem rætt er um í greininni.

Lárus Welding, Jóhannes Baldursson og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson voru dæmdir í fangelsi fyrir umboðs­svik út af aðkomu sinni að Stím-málinu í desember í fyrra en þeim dómi var áfrýjað til Lands­réttar. Viðskiptin voru gerð til þess að hífa upp og halda uppi hlutabréfa­verði í Glitni og FL Group síðla árs 2007.

Jón Ásgeir var hins vegar ekki ákærður í Stím-málinu, þrátt fyrir að gögn sýni að hann kom að skipulagningu viðskiptanna með beinum hætti. Eins og segir í greininni um kærurnar gegn Jóni Ásgeiri þá gegndi hann ekki neinni …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekkert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekkert um þessi mál,“ en hún blæs á gagnrýni á heimildar­myndinni. Mikil óánægja gætir á samfélags­miðlum vegna heimildar­myndarinnar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dögunum, í tilefni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagnrýnin beinist helst að efnis­tökum myndarinnar, að of mikil áhersla hafi...
SkýringHrunið

Dramatísk saga Lárusar komin í hring í Stoðum

Lárus Welding, fyrr­verandi banka­stjóri Glitnis, er orðinn að rekstrar­stjóra eins öflugasta fjár­festingar­félags landsins, Stoða hf. Þar hittir hann fyrir forstjórann Jón Sigurðsson sem Lárus segir að hafi verið lykil­maður í því að ráða hann til Glitnis þar sem FL Group, sem í dag heitir Stoðir, var stærsti hluthafi Glitnis. Báðir urðu þeir lands­þekktir í góðærinu á Íslandi en saga þeirra eftir hrun er afar ólík þar sem Lárus háði baráttu í dóms­kerfinu vegna efnahags­brota á meðan Jón sigldi lygnari sjó.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár