Anna Kolbrún segir ekki af sér

Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­kona Mið­flokks­ins, mun ekki segja af sér eftir opin­berun Klaust­urs­upp­tak­anna. Mið­flokk­ur­inn myndi þurrkast út af þingi sam­kvæmt skoð­ana­könnun.

Anna Kolbrún segir ekki af sér

Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins, hyggst ekki segja af sér í kjöl­far Klaust­urs­upp­tak­anna. Þetta stað­festir hún í sam­tali við Morg­un­blaðið.

„Ég geri mér grein fyr­ir því að ég lét þetta við­gang­ast,“ segir Anna. „En á sama tíma geri ég mér fulla grein fyr­ir því að það er ekki á mína ábyrgð að stoppa það þegar drukkn­ir menn tala. Ég hefði átt að fara fyrr en ég gerði. Það eru al­veg ótrú­lega mörg „Ég hefði“.“

Anna náð­ist á upp­töku ásamt þremur flokks­bræðrum sínum og tveimur þing­mönnum Flokks fólks­ins á Klaustri bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Orða­skiptin voru mjög hávær og áttu sér stað í vitna við­ur­vist.

Í við­tali við RÚV á fimmtu­dag sagð­ist Anna Kolbrún ekki eiga sér máls­bætur. „Ég ætla að hugsa mjög vel mína stöðu,“ sagði hún.

Á upp­tök­unum má heyra Önnu Kolbrúnu taka þátt í að gera grín að Freyju Har­alds­dóttur, fyrr­ver­andi vara­þing­konu, vegna fötl­unar hennar. Þá tekur hún undir gagn­rýni á Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, en er sú eina við­stödd sem grípur til varnar þegar hinir þing­menn­irnir gera lítið úr kven­kyns þing­mönnum.

Í við­tal­inu við Morg­un­blaðið seg­ist hún aldrei hafa grátið jafn­mikið á æv­inni og und­an­farna daga og hafi meðal ann­ars brostið í grát á fundi for­manna þing­flokk­anna í gær. „En ég er hætt að vera hrædd við að gráta. Það er alltaf ætl­ast til þess að fólk fari allt á hnef­an­um og sýni hvorki til­finn­ing­ar né veik­leika­merki. Af hverju má ekki sýna til­finn­ing­ar?“

Miðflokkurinn þurrkist af þingi

Frétta­blaðið birti í dag könnun Zenter rann­sókna um fylgi stjórn­mála­flokk­anna. Samkvæmt henni fengi Mið­flokk­ur­inn 4,3% fylgi og næði ekki manni á þing. Yrði það rúm­lega þriðj­ungur kjör­fylgis flokks­ins. Könnunin var fram­kvæmd 3.-4. des­em­ber, eftir að upp­tök­urnar voru gerðar opin­berar.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærstur með 21,4% og Sam­fylk­ingin fast á hæla hans með 20,8%. Píratar mæl­ast þriðji stærsti flokk­ur­inn með 14,4% og Vinstri græn þar á eftir með 12,7%.

Þá mælist Viðreisn með 9,1%, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 8,5% og Flokkur fólks­ins með 5,7%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár