Eigin­kona Sig­mundar segir Klausturs­málið ein­kennast af „hatri og þörfinni fyrir að smána aðra til upp­hefja sjálfan sig“

„Ég stend stolt með Sigmundi mínum,“ skrifar Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir á Facebook. „Þetta er ekk­ert annað en öfund,“ segir stuðn­ings­kona Sig­mundar Davíðs sem vill „vita hver eða hverjir hafa sent þennan skúnk með sím­ann“.

Eigin­kona Sig­mundar segir Klausturs­málið ein­kennast af „hatri og þörfinni fyrir að smána aðra til upp­hefja sjálfan sig“

Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, er kjaft­stopp vegna Klaust­urs­máls­ins. „Ég bara skil ekki hvert íslenskt sam­fé­lag er komið,“ skrifar hún og þakkar fyrir þær fjöl­mörgu stuðn­ings­kveðjur sem þeim hjónum hafa borist.

Vinkona Önnu Sig­ur­laugar á Facebook fer fögrum orðum um Sigmund og hvetur þau hjónin til dáða í opnum skila­boðum sem hún birtir á vegg Önnu Sig­ur­laugar.

„Hann er best stjórn­mála­maður sem við höfum átt í seinni tíð. En þetta er ekk­ert annað en öfund og gaman þætti mér að vita hver eða hverjir hafa sent þennan skúnk með sím­ann. Mið­flokknum hefur gengið of vel að auka fylgi sitt og það ætla þeir að eyði­leggja,“ skrifar vin­konan.

Nokkrir taka undir þessi orð og Anna Sig­ur­laug bregst við:

„Hjartans þakkir til ykkar allra. Stuðn­ingur ykkar er ómet­an­legur. Við erum nú búin að taka nokkra slag­ina síð­ustu árin en nú er ég kjaft­stopp.“

Hún telur að íslenskt sam­fé­lag sé komið á villi­götur. „Hatrið og þörfin fyrir að smána aðra til upp­hefja sjálfan sig,“ skrifar hún.

„Ég ætla ekki að segja ykkur hvað hefur gengið á í partýum meðal stjórn­mála­manna síð­ustu árin en það kannski segir allt að við SDG höfum gengið út. Þakka ykkur enn og aftur. Ég stend stolt með Sigmundi mínum enda veit ég hvaða mann hefur að geyma og veit hver líðan hans er núna.“

Sig­mundur Davíð var til við­tals í frétta­tíma Stöðvar 2 og RÚV í gær­kvöldi. Þar sagði hann að umræður á borð við þær sem áttu sér stað á Klaustri – þar sem þing­konur voru kall­aðar „kunta“, „hel­vítis tík“, „galin kerl­ing­ar­klessa“ og mælst til þess að „ríða“ kven­kyns ráð­herra – væru alsiða meðal þing­manna á Íslandi. Samtalið á Klaustri væri í raun aðeins merki­legt fyrir þær sakir að það var tekið upp. Sagðist hann að eig­in­kona sín hefði oftar en einu sinni þurft að flýja sam­kvæmi vegna dóna­tals þing­manna, ann­arra en þeirra sem sátu á Klaustri. Sig­mundur velti því fyrir sér hvort næsta skref væri að hann segði frá dóna­tali fólks úr öðrum flokkum en Mið­flokknum.

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár