Sjáið leiklestur Borgarleikhússins á samtali þingmanna á Klaustri

Stór hluti samtalsins túlkaður af leikkonum og leikara Borgar­leikhússins fyrr í kvöld.

Leik­lestur á orðum sem sex þingmenn létu falla á Klausturs­fundinum alræmda fór fram í Borgar­leikhúsinu í kvöld.

Viðburðurinn var haldinn í samvinnu við Stundina og má sjá upptöku af verkinu hér í fréttinni.

Bergur Þór Ingólfsson er leik­stjóri og hlutverka­skipan eftir­farandi:

Gunnar Bragi Sveinsson – Unnur Ösp Stef­ánsdóttir
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson – Sigrún Edda Björns­dóttir
Bergþór Ólason – Þórunn Arna Kristjànsdóttir
Ólafur Ísleifsson– Edda Björg Eyjólfs­dóttir
Karl Gauti Hjaltason – Þuríður Blær Jóhanns­dóttir
Anna Kolbrún Árna­dóttir – Hilmar Guðjónsson

Upptökum af samræðum þeirra Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, Gunnars Braga Sveins­sonar, Bergþórs Ólasonar, Önnu Kolbrúnar Árna­dóttur, sem og Karls Gauta Hjalta­sonar og Ólafs Ísleifs­sonar, þar sem þau sátu að drykkju meðan þing var enn að störfum, var komið til Stundarinnar, DV og Kvenna­blaðsins, sem hafa greint frá lítilsvirðandi ummælum þingmanna um nafn­greindar stjórn­málakonur, samkyn­hneigða og fatlaða, um leið og þeir mærðu hver annan og gortuðu af því að hafa misbeitt valdi við skipun sendi­herra. 

Ummælin hafa dregið dilk á eftir sér. Tveir þingmenn voru reknir úr Flokki fólksins vegna framgöngu sinnar og tveir þingmanna Miðflokksins eru komnir í leyfi.

Fjöldi fólks safnaðist saman á Austur­velli um helgina og krafðist afsagnar þing­mannanna og í dag óskaði forsætis­nefnd Alþingis eftir því að siðanefnd þingsins tæki málið fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár