Þrýst á skuldabréfaeigendur WOW air að taka á sig afskriftir

Aðilar sem tóku þátt í útboði WOW air í sept­em­ber gætu þurft að taka á sig tug­pró­senta afskriftir af 8,5 millj­arða króna fjár­fest­ingu. 37% fjár­fest­anna eru íslenskir.

Þrýst á skuldabréfaeigendur WOW air að taka á sig afskriftir

Skulda­bréfa­eig­endur WOW air, sem tóku þátt í útboði félags­ins í sept­em­ber fyrir jafn­virði 8,5 millj­arða króna, gætu tapað stórfé verði kaup Icelandair á félag­inu að veru­leika. Krafa er uppi um að þeir taki á sig tug­pró­senta afskriftir.

Þetta kemur fram í Mark­aðnum í Frétta­blað­inu í dag. Til stóð að Icelandair mundi standa undir 90% af heild­ar­upp­hæð bréf­anna og Skúli Mogensen, for­stjóri WOW air og eini hlut­hafi félags­ins, mundi greiða afgang­inn með því hlutfé sem hann kynni að eign­ast í Icelandair við sam­ein­ing­una. Nú hefur Icelandair kraf­ist þess að greiðslan verði lægri en 90% og óvíst hvort Skúli geti bætt upp mis­mun­inn. Skúli mun eign­ast 1,8 til 6,6 pró­sent hlut í Icelandair þegar kaupin ganga í gegn.

37% þeirra sem tóku þátt í útboð­inu eru íslenskir fjár­festar sem keyptu fyrir rúma þrjá millj­arða króna. Skúli fjár­festi sjálfur fyrir jafn­virði 770 millj­óna króna.

Tillögur um hluta­fjár­aukn­ingu Icelandair liggja fyrir hlut­hafa­fundi Icelandair á föstu­dag og hefur Mark­að­ur­inn eftir Sveini Þór­ar­ins­syni hjá hag­fræði­deild Lands­bank­ans að honum verði mögu­lega frestað þar sem hlut­hafar hafi litlar upp­lýs­ingar um stöðu WOW air.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Mest lesið

Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár