Hrunmálin gegn Jóni Ásgeiri sem hætt var að rannsaka

Embætti sér­staks sak­sókn­ara rann­sak­aði að minnsta kosti þrjú mál þar sem aðkoma Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar að fjár­út­látum úr Glitni var lyk­il­at­riði. Hann var hins vegar bara ákærður í einu þess­ara mála og hefur nú verið sýkn­aður í því á tveimur dóm­stigum.

Hrunmálin gegn Jóni Ásgeiri sem hætt var að rannsaka
Þrjú mál Jón Ásgeir var til rann­sóknar hjá sér­stökum sak­sókn­ara í að minnsta kosti þremur málum og var ein­ungis ákærður í einu þeirra. Hann sést hér fyrir dómi í Aurum-mál­inu ásamt lög­manni sínum, Gesti Jónssyni. Mynd: Árni Sæberg

„Telur slitastjón Glitnis hf. að fram­an­greind áhrif Jóns Ásgeirs við dag­legan rekstur bank­ans [Glitnis] krist­all­ist meðal ann­ars í þeim gern­ingi sem kærður er til emb­ættis yðar,“ segir í kæru frá slita­stjórn Glitnis til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara út af 10,75 milljón punda, 1.650 millj­óna króna greiðslu, sem Glitnir banki innti af hendi til að greiða sjálf­skuld­ar­á­byrgð fyrir Jón Ásgeir Jóhann­es­son, ráð­andi hlut­hafa í Glitni banka á árunum 2007 til 2008, út af kost­un­ar­samn­ingi við breska Williams-for­múlu­liðið einum mán­uði fyrir banka­hrunið árið 2008.  Kæran í mál­inu hefur aldrei áður birst opin­ber­lega en Stundin hefur hana undir höndum.

Áralangt við­skipta­sam­bandVið­skipta­sam­band Frank Williams, stofn­anda Williams-for­múlu­liðs­ins, og Jóns Ásgeirs var til margra ára.

Fyr­ir­tæki Jóns Ásgeirs og Baugs í Bret­landi, leik­fanga­versl­unin Hamleys meðal ann­ars, höfðu um ára­bil átt í sam­starfi við Frank Williams, stofn­anda og eig­anda Williams-liðs­ins, þegar þetta var. Aðkoma Jóns Ásgeirs og Baugs gekk undir nafn­inu Project Frank í sam­skiptum um málið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár