WOW air í vanda um mánaðamótin

Leigusalar flug­véla WOW air krefj­ast strang­ari greiðslu­skil­mála en áður. Leitar Skúli Mogensen nú leiða til að tryggja félag­inu inn­spýt­ingu. Mörg mál eru óleyst hvað varðar kaup Icelandair á lággjalda­flug­fé­lag­inu.

WOW air í vanda um mánaðamótin

Leigusalar flug­véla WOW air ótt­ast að sam­runi félags­ins og Icelandair muni ekki ganga eftir. Eru þeir til­búnir að grípa til aðgerða ef WOW air stendur ekki skil á afborg­unum sínum um mán­aða­mótin eftir að félagið hefur greitt starfs­fólki sínu laun. Þetta kemur fram í Mark­aðnum í Frétta­blað­inu í dag.

Í bréfi sem Skúli Mogensen for­stjóri sendi skulda­bréfa­eig­endum í gær kemur fram að leigusalar flug­vél­anna fylgist með gangi mála og krefj­ist nú strang­ari greiðslu­skil­mála en áður. Slíkt hafi nei­kvæð áhrif á sjóð­streymi félags­ins. Leigusal­arnir eru aðal­lega fyr­ir­tæki sem sér­hæfa sig í fjár­mögnun og útleigu flug­véla.

WOW air var nálægt því að ganga frá samn­ingum um sölu og end­ur­leigu á flug­vélum sínum, en áformin gengu ekki eftir, sam­kvæmt bréf­inu. Hefði það tryggt félag­inu inn­spýt­ingu upp á um 3 millj­arða íslenskra króna. Félagið leitar nú allra leiða til að bæta sjóð­streymi sitt. Er til skoð­unar að selja lend­ing­ar­stæði WOW air við Gatwick flug­völl í London.

Samkvæmt Mark­aðnum eru mörg mál enn óleyst hvað varðar sam­runa WOW air og Icelandair. Eitt málið varðar for­gangs­rétt­ar­á­kvæði í samn­ingum Icelandair við Félag íslenskra atvinnu­flug­manna og hvort það muni gilda hjá WOW air gangi kaupin eftir. Með kaup­unum yrðu flug­menn WOW air á sama kjara­samn­ingi og flug­menn Icelandair, sem mundi þýða mikla hækkun launa­kostn­aðar hjá lággjalda­flug­fé­lag­inu WOW air.

Mikil ólga hefur verið á hluta­bréfa­mark­aði vegna þess­ara hrær­inga. Þá skoðar Sam­keppn­is­eft­ir­litið nú hvort til­raunir til að selja WOW air til ann­ars aðila en Icelandair hafi verið full­reyndar, en slíkt er skil­yrði til að kaupin verði sam­þykkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár