Ákæran svo óskýr að þeim sé „ógerlegt að taka til varna“

Farið er fram á að máli gegn þeim Jórunni Eddu og Ragn­heiði Freyju, sem stóðu upp í flug­vél til að mót­mæla brott­vísun hæl­is­leit­anda, verði vísað frá dómi. Segja ákæruna of óskýra til að hægt sé að taka afstöðu til sak­ar­gifta auk þess ákærðu hafi ekki notið rétt­látar máls­með­ferðar.

Ákæran svo óskýr að þeim sé „ógerlegt að taka til varna“

Verj­endur tveggja kvenna, sem hér­aðs­sak­sókn­ari hefur ákært fyrir að hafa staðið upp í flug­vél Icelandair og mót­mælt brott­vikn­ingu hæl­is­leit­anda, segja að þeim sé gert óger­legt að taka til varna fyrir skjól­stæð­inga sína. Verkn­að­ar­lýs­ing í ákæru sé svo óskýr að þeim hafi ekki tek­ist að ráða hvað hvorum skjól­stæð­ingi þeirra sé gefið að sök. Þar sem ekki sé að finna neina sund­ur­grein­in­ingu á meintri hátt­semi þeirra sé þeim ill­mögu­legt að taka afstöðu til sak­ar­gifta.

Þetta kemur fram í grein­ar­gerð sem lög­menn kvenn­anna, þau Páll Berg­þórs­son og Auður Tinna Aðal­bjarn­ar­dóttir, lögðu fyrir hér­aðs­dóm Reykja­víkur, þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Lög­menn­irnir krefj­ast þess að mál­inu verði vísað frá dómi, en til vara að kon­urnar tvær verði sýkn­aðar af öllum kröfum ákæru­valds­ins.

Lög­menn­irnir gagn­rýna rann­sókn máls­ins harð­lega og segja skjól­stæð­inga sína ekki hafa notið rétt­látrar máls­með­ferðar. Þá benda þeir á að máls­með­ferðin hafi dreg­ist langt úr hófi fram, en tvö og hálft ár liðu frá því atvikið átti sér stað og hér­aðs­sak­sókn­ari lagði fram ákæru í mál­inu. 

Óljósar sakargiftir 

Í ákæru hér­aðs­sak­sókn­ara eru þær Jórunn Edda og Ragn­heiður Freyja sak­aðar um að hafa með hátt­erni sínu brotið gegn 106. og 168. gr. almennra hegn­ing­ar­laga með því að hafa ann­ars vegar tálmað lög­reglu­mönnum við skyldu­störf og hins­vegar raskað öryggi flug­vél­ar­innar. Þá eru þær einnig sak­aðar um að hafa brotið gegn 141. gr. loft­ferða­laga með því að óhlýðn­ast fyr­ir­mælum áhafn­ar­innar í vél­inni.

Hámarks­refs­ing við broti gegn 106. gr. almennra hegn­ing­ar­laga er tveggja ára fang­elsi en refs­ing við broti gegn 168. gr. sömu laga getur verið allt að sex ára fang­elsi. Þá liggur allt að fimm ára fang­els­is­dómur við broti gegn 141. gr. loft­ferða­laga. Þær geta því átt yfir höfði sér allt að sex ára fang­els­is­dóm verði þær fundnar sekar.

„Ákæru­valdið hefur valið þá leið að ákæra fyrir ýmis konar brot á almennum hegn­ing­ar­lögum sem og sér­lögum í þeirri von að dóm­ur­inn fall­ist á að minnsta kosti eitt­hvert þeirra eigi við. Hinar óljósu sak­ar­giftir og óná­kvæma heim­færsla er til þess fallin að gera verj­endum ákærðu erfitt fyrir,“ segir í grein­ar­gerð lög­manna þeirra Jórunnar Eddu og Ragn­heiðar Freyju, sem lögð var fyrir hér­aðs­dóm Reykja­víkur í síð­ustu viku. „Verj­endum ákærðu hefur ekki tek­ist að ráða hvað hvorum skjól­stæð­ingi þeirra er gefið að sök og er því tor­velt að verj­ast ákæru­at­riðum.“

Óskýr verknaðarlýsing 

Frá­vís­un­ar­krafa lög­mann­anna byggir á því að ákæru­skjal hér­aðs­sak­sókn­ara full­nægi ekki kröfum 152. gr. laga um með­ferð saka­mála, sem kveður á um skýri­leika í ákæru.

„Af verkn­að­ar­lýs­ingu eiga ákærðu að geta ráðið hvaða hátt­semi þeim er gefin að sök og hvaða refsilaga­á­kvæði þær eiga að hafa brotið gegn án þess að tví­mælis orki í þeim efnum. Í ákæru­skjali er engin sund­ur­grein­ing á hátt­semi ákærðu. Ákærðu er því ill­mögu­legt að taka afstöðu til sak­ar­gifta og er óger­legt fyrir verj­endur að taka til varna fyrir skjól­stæð­inga sína,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þá sé ekki nóg að til­greina í ákæru að um sam­verknað hafi verið að ræða til að kom­ast megi hjá því að lýsa refsi­verðri hátt­semi hvers og eins ákærðu frekar. Lög­menn­irnir segja enn­fremur að verkn­að­ar­lýs­ing í ákæru eigi ekk­ert skylt við það sem raun­veru­lega gerð­ist og að hún eigi sér enn­fremur ekki stoð í gögnum máls­ins. Er vísað til þess að ekki sé sam­ræmi á milli þess sem ákærðu var gefið að sök við lög­reglu­rann­sókn og síðar í ákæru­skjali.

Fari svo að kröfu um frá­vísun verið hafnað skora lög­menn­irnir á ákæru­valdið að leggja fram end­ur­rit af skýrslu­tökum af þeim fimm vitnum sem teknar voru á rann­sókn­ar­stigi máls­ins, en það er mat ákærðu að sam­an­tektir lög­reglu gefi „veru­lega skakka mynd af raun­veru­legum fram­burði vitna á rann­sókn­ar­stigi.“

Óréttlát málsmeðferð

Krafa um sýknu byggir á því að það sé bæði rangt og með öllu ósannað að þær Jórunn Edda og Ragn­heiður Freyja hafi gerst sekar um þá hátt­semi sem til­greind er í ákæru. Gera lög­menn­irnir alvar­legar athuga­semdir við rann­sókn máls­ins og full­yrða meðal ann­ars að ákærðu hafi ekki notið rétt­látar máls­með­ferðar.

„Að und­an­skildum frum­skýrslum af sjálfum ákærðu er stuðst við skýrslur af starfs­mönnum kær­anda. Ákærðu telja að rann­sak­endur hafi ekki ann­ast rann­sókn­ina á hlut­lægan hátt og kannað jafnt það sem horfi til sektar og sýknu þeirra. Ákærðu hafa ekki notið rétt­látar máls­með­ferðar að þessu leyti.“

Í því sam­bandi er vísað til þess að máls­með­ferðin öll hafi dreg­ist langt úr hömlu í brýnni and­stöðu við 53. gr. laga um með­ferð saka­mála, 70. gr. stjórn­ar­skrár­innar sem og 6. gr. Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, sem kveði á um að hraða skuli máls­með­ferð eins og kostur er.

„Rannsókn máls­ins virð­ist hafa legið niðri í a.m.k. 15 mán­uði hjá lög­reglu. Þá leið tæpt ár frá því að rann­sókn máls­ins var lokið og ákæra var loks gefin út. Engar skýr­ingar rétt­læta þessa ára­löngu máls­með­ferð en ljóst er að ákærðu er ekki um að kenna,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Frestur til brottvísunar útrunninn

Það var að morgni dags þann 26. maí 2016 sem þær Jórunn Edda og Ragn­heiður Freyja stóðu upp í flug­vél Icelandair til að mót­mæla brott­vísun hæl­is­leit­and­ans Eze Okafor sem hafði verið hand­tek­inn og færður með lög­reglu­valdi í flug­vél­ina þar sem vísa átti honum til Sví­þjóðar.

Þá þegar lá fyrir að sænsk yfir­völd myndu ekki taka mál hans fyrir heldur senda hann aftur til heima­lands­ins Nígeríu en Eze hefur greint frá því að hann hafi flúið þaðan í kjöl­far árása Boko Haram liða, sem veittu honum stungu­sár og myrtu bróður hans. Ragn­heiður og Jórunn stóðu upp áður en vélin tók á loft og báðu aðra flug­far­þega um að sýna hæl­is­leit­and­anum sam­stöðu en flug­stjóri flug­vél­ar­innar neit­aði að taka á loft fyrr en allir far­þegar höfðu sest niður.

Stundin ræddi við þær Jórunni Eddu og Ragn­heiði Freyju stuttu eftir að ákæran hafði verið lögð fram í síð­asta mán­uði, en þá sögð­ust þær hafa gripið til þessa örþrifa­ráðs til þess að vernda vin sinn sem þær ótt­uð­ust mjög um. Þá þegar hefði legið fyrir að verið væri að vísa Eze úr landi á grund­velli dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar þrátt fyrir að kæru­nefnd útlend­inga­mála hefði verið búin að úrskurða um að að frestur til þess gera slíkt væri útrunn­inn. Þær hafi því ein­fald­lega verið að bregð­ast við þessu lög­broti Útlend­inga­stofn­unar: 

Allt að sex mán­aða fang­elsiHin 21 árs gamla Elin Ersson gæti átt yfir höfði sér allt að sex mán­aða fang­elsis fyrir sam­bæri­legt brot og þær Jórunn og Ragn­heiður eru ákærðar fyrir. Þær gætu hins­vegar átt yfir höfði sér allt að sex ára fang­els­is­dóm.

Málinu svipar til máls sænsku háskóla­stúd­ín­unnar Elin Ersson sem vakið hefur heims­at­hygli en hún neit­aði í júlí síð­ast­liðnum að setj­ast í sæti sitt til að hindra brott­vísun afgansks flótta­manns. New York Times fjall­aði nýlega ítar­lega um mót­mæli Ersson sem urðu til þess að hún og flótta­mað­ur­inn voru leidd út úr vél­inni en hann var sendur úr landi nokkru síðar.

Ersson hefur nú verið ákærð fyrir brot á lögum um loft­ferðir og getur hún átt yfir höfði sér allt að sex mán­aða fang­els­is­dóm verði hún fundin sek. New York Times hefur eftir Ersson að hún líti á það sem skyldu sína að rísa upp fyrir hönd þeirra sem sendir eru í opinn dauð­ann til stríðs­hrjáðra landa. Athygli vekur að þeim Jórunni og Ragn­heiði var birt ákæra nákvæm­lega sama dag og Ersson eða föstu­dag­inn 19. októ­ber, en þá voru tvö og hálft ár síðan atvikið átti sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár