Stefán Ólafsson: Vinnuvikan sú næstlengsta í Evrópu

Nýjar tölur Hag­stof­unnar um vinnu­magn benda ekki til þess að vinnu­tími Íslend­inga hafi verið ofmet­inn, segir pró­fessor í félags­fræði og sér­fræð­ingur hjá Eflingu. Íslend­ingar hafi lengi varið afar stórum hluta af lífi sínu til vinnu.

Stefán Ólafsson: Vinnuvikan sú næstlengsta í Evrópu

Íslend­ingar vinna einna lengst Evr­ópu­þjóða og nýjar tölur Hag­stof­unnar breyta engu um þann sam­an­burð. Þetta skrifar Stefán Ólafsson, pró­fessor í félags­fræði og sér­fræð­ingur hjá Eflingu, í grein á Eyjunni í dag.

Nýjar tölur Hag­stof­unnar um vinnu­magn og fram­leiðni hafa vakið athygli í vik­unni. Virtust þær benda til þess að vinnu­dagur Íslend­inga sé styttri en áður hefur verið talið og fram­leiðni á hverja vinnu­stund meiri. „OECD hefur tekið Ísland út úr tölum um vinnu­tíma,“ skrif­aði Konráð S. Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur Við­skipta­ráðs, á Twitter. „Enda virð­ist hann hafa verið ofmet­inn svo langur vinnu­dagur Íslend­inga er því mýta.“

Hag­stofan árétti hins vegar í til­kynn­ingu í dag að um sé að ræða nýja töl­fræði, ekki leið­rétt­ingu á áður útgefnum tölum. Töl­fræðin byggi á alþjóð­legum stöðlum þjóð­hags­reikn­inga, en ekki vinnu­mark­aðs­könnun Hag­stof­unnar. Þessi töl­fræði sé hins vegar ekki vel til þess fallin að bera saman fjölda vinnu­stunda milli ríkja.

„Það eru því engar for­sendur fyrir þeim álykt­unum sem hag­fræð­ingur Við­skipta­ráðs dró af þessum nýju mæl­ingum Hag­stof­unnar á þróun fram­leiðni milli ára,“ skrifar Stefán.

Næstlengsta vinnuvikan samkvæmt Eurostat

Bendir Stefán á að Eurostat noti sam­an­burð á vinnu­mark­aðs­könn­unum sem fram­kvæmdar eru eins í öllum Evr­ópu­löndum. Þetta séu bestu mæl­ing­arnar til að svara því hve löng vinnu­vikan er hjá vinn­andi fólki á Íslandi og í öðrum Evr­ópu­löndum.

„Nið­ur­staðan er sú, að launa­fólk á Íslandi er með næst­lengstu vinnu­vik­una í aðal­starfi í Evrópu, á eftir Tyrk­landi,“ skrifar Stefán. „Ísland er einnig með næst­hæsta hlut­fall þeirra sem Eurostat telur hafa langa vinnu­viku. Hinar nor­rænu þjóð­irnar eru á hinum enda stig­ans, bæði með einna stystu meðal vinnu­vik­una og lægst hlut­fall fólks sem er með langa vinnu­viku.“

Stefán segir Íslend­inga hafa meiri atvinnu­þátt­töku en flestar vest­rænar þjóðir, lengri starfsævi og fleiri heim­ili með tvær fyr­ir­vinnur. Vinnandi fólk á Íslandi hafi um langt skeið unnið lengri vinnu­viku en flestar vest­rænar þjóðir og því varið afar stórum hluta af lífi sínu til vinnu. „Íslenskt verka­fólk sem er á lágum launum hefur iðu­lega þurft að stóla á umtals­verða yfir­vinnu og auka­vinnu til að ná endum saman. Þannig er það því miður enn.“

    Kjósa
    0
    Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

    Athugasemdir

    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
    Tengdar greinar

    Kjarabaráttan

    GreiningKjarabaráttan

    Kjara­við­ræður stranda á for­sendu­á­kvæðum og breið­fylk­ingin fundar um mögu­legar verk­falls­að­gerðir

    Formaður VR fékk í gær sam­þykkta heim­ild til þess að grípa til aðgerða og félög innan breið­fylk­ing­ar­innar hafa blásið til fundar í dag þar sem rætt verður um næstu skref. Um tals­verðan við­snún­ing er að ræða frá því að kjara­við­ræður hófust fyrst. Nú hafa við­ræð­urnar harðnað og er það fyrst og fremst vegna ósættis um for­sendu­á­kvæði í langa­tíma­kjara­samn­ingnum.
    GreiningKjarabaráttan

    Af hverju dó ham­ingjan milli breið­fylk­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins?

    Allt annar tónn hefur verið í kjara­bar­átt­unni nú en síð­ustu miss­eri. Við­semj­endur ætl­uðu að taka höndum saman og auka stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu. En svo heyrð­ist lítið af fram­gangi. Í þess­ari viku var við­ræðum slitið og deil­unni vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Margir klór­uðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eig­in­lega gerst? Svarið við því er: ansi margt.

    Mest lesið

    Mest lesið

    Mest lesið í vikunni

    Mest lesið í mánuðinum

    1
    Viðtal

    Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

    Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
    4
    Viðtal

    Ást­leysið er sárt

    Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

    Mest lesið í mánuðinum

    Mest lesið undanfarið ár

    Loka auglýsingu