Viðmiðum alþjóðastofnana ekki fylgt í samningi háskólans og Útlendingastofnunar um aldursgreiningar

Háskóli Íslands hyggst festa í sessi umdeildar lík­ams­rann­sóknir á hæl­is­leit­endum sem stand­ast ekki kröfur Evr­ópu­ráðs­ins, Barna­rétt­ar­nefndar SÞ og UNICEF um þver­fag­legt mat á aldri og þroska. Tann­læknar munu fá 100 þús­und krónur fyrir hvern hæl­is­leit­anda sem þeir ald­urs­greina sam­kvæmt drögum að verk­samn­ingi sem Stundin hefur undir höndum.

Viðmiðum alþjóðastofnana ekki fylgt í samningi háskólans og Útlendingastofnunar um aldursgreiningar

Háskóli Íslands fær greiddar 236.500 krónur fyrir hverja lík­ams­rann­sókn á hæl­is­leit­anda sam­kvæmt drögum að verk­samn­ingi skól­ans við Útlend­inga­stofnun sem Stundin hefur undir höndum. Tann­lækna­deild HÍ er þjón­ustu­veit­andi sam­kvæmt samn­ingnum og munu tveir tann­læknar fá 100 þús­und krónur hvor fyrir hvern hæl­is­leit­anda sem er tann­greindur. Gert er ráð fyrir að dóms­mála­ráðu­neytið stað­festi samn­ing­inn og fram­kvæmd hans verði fjár­mögnuð „af fjár­laga­lið 06-399 Hæl­is­leit­endur sem er í umsjá ÚTL“. Eru drögin nú í umsagn­ar­ferli hjá jafn­réttis­nefnd og vís­inda­siða­nefnd háskól­ans.

Í samn­ingnum er ekki gert ráð fyrir fólk með sér­þekk­ingu á and­legum og lík­am­legum þroska barna, svo sem barna­sál­fræð­ingar og barna­læknar, komi að ald­urs­grein­ing­unni heldur ein­ungis tann­læknar. Þetta gengur gegn sjón­ar­miðum sem fjöldi alþjóða­stofn­ana og sam­taka hefur viðrað á und­an­förnum árum, meðal ann­ars Evr­ópu­ráðs­þingið, barna­rétt­ar­deild Evr­ópu­ráðs­ins, barna­rétt­ar­nefnd Saminuðu þjóð­anna, UNICEF, Rauði kross­inn og Stofnun Evr­ópu­sam­bands­ins um aðstoð við hæl­is­leit­endur. Allir þessir aðilar hafa beint því til ríkja, ýmist í álykt­unum, skýrslum eða leið­bein­ing­ar­reglum, að við fram­kvæmd ald­urs­grein­ingar skuli byggja á þver­fag­legu og fjöl­breyttu mati á and­legum og lík­am­legum þroska, sjá t.d. hér, hér, hér og hér. Svo virð­ist sem verk­samn­ings­drög Útlend­inga­stofn­unar og Háskóla Íslands taki ekki mið af slíkum sjón­ar­miðum.

Rauði kross­inn á Íslandi hefur ítrekað gagn­rýnt þá aðferða­fræði sem íslensk útlend­inga­yf­ir­völd beita við ald­urs­grein­ingu. Tann­grein­ingar á hæl­is­leit­endum eru umdeildar, enda eru tann­læknar ósam­mála um áreið­an­leika og vís­inda­legt gildi slíkra rann­sókna. Tann­lækna­sam­tök Bret­lands hafa sagt þær „óvið­eig­andi og ósið­legar“, þær geti aldrei gefið nákvæmar upp­lýs­ingar um aldur og að óverj­andi sé að láta ung­menni í við­kvæmri stöðu gang­ast undir röntgen­rann­sóknir án þess að lækn­is­fræði­leg nauð­syn krefj­ist þess. Bent hefur verið á að tann­þroski fólks virð­ist frá­brugð­inn eftir því af hvaða stofni það er og við hvaða aðstæður það elst upp. 

Sú mikla óvissa sem tann­grein­ing­arnar eru und­ir­orpnar hefur þegar valdið barni sem sótt­ist eftir alþjóð­legri vernd á Íslandi óþæg­indum. Stundin fjall­aði um málið í fyrra, en þá hafði rúm­lega 17 ára drengur verið sendur í tann­rann­sókn vegna þess að hann hafði fram­vísað per­sónu­skil­ríkjum en ekki vega­bréfi. Nið­ur­staða tann­grein­ingar var sú að dreng­ur­inn væri eldri en 18 ára. Það var ekki fyrr en dreng­ur­inn hafði fengið for­eldra í heima­landi sínu til að senda sér útrunnið vega­bréf ásamt fleiri skil­ríkjum og lög­reglan yfir­farið skjölin sem Útlend­inga­stofnun end­ur­mat aldur drengs­ins. 

Upplýst samþykki barna?

Verk­samn­ingur HÍ og ÚTL vekur ýmsar spurn­ingar. Samkvæmt 3. mgr. 26. gr. útlend­inga­laga skal „ávallt litið svo á við með­ferð máls að umsækj­andi um alþjóð­lega vernd sem seg­ist vera undir lög­aldri sé barn þar til annað kemur í ljós með ald­urs­grein­ingu eða á annan hátt“. Í vinnu­reglum Útlend­inga­stofn­unar um ald­urs­grein­ingar er sér­stak­lega áréttað að „stofn­unin gengur út frá því að við­kom­andi sé barn að aldri þar til og ef annað kemur í ljós á síð­ari stigum máls­ins“.  

Í 2. gr. drag­anna að verk­samn­ingi um ald­urs­grein­ingar milli Háskóla Íslands og Útlend­inga­stofn­unar er sér­stak­lega tekið fram að tann­lækna­deild HÍ skuli tryggja að „starfs­fólk fram­fylgi ákvæðum laga um rétt­indi sjúk­linga nr. 74/1997“. Í 27. gr. þeirra laga segir orð­rétt: „Hlífa ber börnum við ónauð­syn­legum rann­sóknum og aðgerðum“. 

Samkvæmt 22. gr. laga um vís­inda­rann­sóknir á heil­brigð­is­sviði eru aðeins þeir sem eru sjálf­ráða sam­kvæmt ákvæðum lög­ræð­islaga, þ.e. ekki börn heldur eldri en 18 ára, hæfir til að sam­þykkja þátt­töku í vís­inda­rann­sókn. Vís­inda­rann­sóknir á börnum eru ein­ungis heim­ilar að þröngum skil­yrðum upp­fylltum – skil­yrðum sem ljóst er að ekki eru upp­fyllt við lík­ams­rann­sóknir til ald­urs­grein­ingar (þetta eru t.d. skil­yrði um að for­sjárað­ili hafi veitt sam­þykki fyrir rann­sókn­inni og að nið­ur­staða rann­sóknar sé lík­leg til að „bæta heilsu þátt­tak­enda“).

Í 1. gr. verk­samn­ings­draga Útlend­inga­stofn­unar og Háskóla Íslands kemur fram að rann­sókn skuli ein­ungis fara fram „með upp­lýstu skrif­legu sam­þykki“ hæl­is­leit­and­ans sem á í hlut. Í vís­inda­siða­reglum skól­ans er sér­stak­lega fjallað um upp­lýst sam­þykki. Þar, rétt eins og í lögum um vís­inda­rann­sóknir á heil­brigð­is­sviði, er aðeins gert ráð fyrir að fólk yfir lög­ræð­is­aldri sé full­fært um að veita upp­lýst sam­þykki.

Rektor segir tanngreiningar valkvæðar

Stundin sendi Jóni Atla Bene­dikts­syni rektor fyr­ir­spurn um samn­ings­gerð Háskóla Íslands við Útlend­inga­stofnun í sept­em­ber. Í svari sínu sagði Jón Atli að ald­urs­grein­ing á tönnum væri „val­kvæð og því óheim­ilt að þvinga við­kom­andi til að gang­ast undir hana“. Stundin hefur undir höndum staðl­aða boðun í tann­grein­ingu sem Útlend­inga­stofnun hefur not­ast við. Þar segir meðal ann­ars – aðeins á íslensku – að heim­ilt sé að neita því að gang­ast undir ald­urs­grein­ingu, en „neiti umsækj­andi að gang­ast undir ald­urs­grein­ingu án full­nægj­andi ástæðu getur það haft áhrif á trú­verð­ug­leika umsækj­anda auk þess sem það getur orðið til þess að umsækj­andi verði met­inn full­orð­inn“. Slíkt felur í sér rétt­inda­missi, enda er rétt­ar­staða fylgd­ar­lausra barna undir 18 ára aldri mun sterk­ari en staða hæl­is­leit­enda sem eru eldri en 18 ára. 

Í boð­un­ar­bréf­inu er tekið fram að synjun á hæl­is­um­sókn geti ekki byggt ein­vörð­ungu á því að við­kom­andi hafi neitað að gang­ast undir ald­urs­grein­ingu. Er hæl­is­leit­endum veittur sá mögu­leiki að haka við eft­ir­far­andi afstöðu: „Ég neita að gang­ast undir ald­urs­grein­ingu á tönnum og geri mér grein fyrir því hvaða afleið­ingar það hefur á með­ferð máls míns, synjun á umsókn um alþjóð­lega vernd getur ekki byggst á því ein­göngu að við­kom­andi hafi neitað að gang­ast undir ald­urs­grein­ingu.“ Þetta er athygl­is­vert í ljósi þess að í vís­inda­siða­reglum Háskóla Íslands er lögð áhersla á að rann­sak­endur skuli forð­ast nei­kvæðar afleið­ingar fyrir þátt­tak­endur og gæta þess að fólk verði ekki fyrir skaða af þátt­töku í rann­sókn. Þátt­tak­endur verði að geta tekið afstöðu „án utan­að­kom­andi þrýst­ings eða þving­ana“ og rann­sak­endur skuli hafa hug­fast að fólk sem til­heyri hópi í erf­iðri stöðu sé ekki alltaf fært um að gæta hags­muna sinna gagn­vart rann­sak­endum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár