Svikin og kölluð „heimsk, ljót hóra“ í ólöglegu gistirými í Hafnarfirði

Leigu­sali óskráðs gisti­rýmis við Reykja­vík­ur­veg jós fúk­yrðum yfir leigj­anda þegar hún bað um trygg­ing­ar­pen­ing til baka. Anna Piechura kom til Íslands í sum­ar­vinnu en gat ekki leitað réttar síns vegna ágrein­ings við stjórn­anda hins leyf­is­lausa Hotel Africana.

Svikin og kölluð „heimsk, ljót hóra“ í ólöglegu gistirými í Hafnarfirði
Anna Piechura og með­leigj­andi hennar Krafist var tveggja mán­aða trygg­ingar fyrir eins mán­aðar leigu á her­bergi sem vin­irnir deildu.

Kona frá Póllandi segir leigu­sala sinn hafa svikið sig um pen­ing eftir að hafa leigt henni ólög­legt gisti­rými í Hafn­ar­firði í sumar. Hún segir auð­velt að svindla á fólki á Íslandi, sér í lagi þeim sem dvelja í skamman tíma. Rýmið er hvorki á skrá sýslu­manns yfir heimagist­ingar né gisti­staði með rekstr­ar­leyfi og erfitt er fyrir hana að leita réttar síns.

Anna Piechura er búsett í Varsjá en hefur komið til Íslands reglu­lega að vinna. Hún kom síð­ast í júlí ásamt vini sínum og eftir erf­iða leit fundu þau her­bergi í húsi við Reykja­vík­ur­veg í Hafn­ar­firði, sem hún heyrði að væri kallað Hotel Africana. Judy Medith Achieng Owuor var tengiliður hennar og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá eig­endum hús­næð­is­ins er hún skráður leigj­andi þess.

„Við fundum þennan stað í Hafn­ar­firði sem leit út eins og ólög­legt rými þar sem fólk ætti ekki að gista,“ segir Anna. „Við ákváðum að taka her­bergið fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár