Þingkona Framsóknar líkir aðferðum Sigmundar við aðferðir einræðisherra

Silja Dögg Gunnars­dóttir segir fyrr­verandi formann sinn hvorki hugrakkan né kjark­mikinn. Sigmundur Davíð hafi í heilt ár vart mætt til vinnu en nýtt tímann á þing­fararkaupi við að stofna flokk utan um sig á bak við félaga sína.

Segir Sigmund Davíð kasta grjóti úr glerhúsi
Segir Sigmund Davíð kasta grjóti úr gler­húsi Silja Dögg Gunn­ars­dóttir segir sinn fyrr­ver­andi for­mann kasta grjóti úr gler­húsi þegar hann saki aðra um kjark- og verk­leysi. Mynd: Samsett

Silja Dögg Gunnars­dóttir, þingkona Framsóknar­flokksins, líkir málflutningi Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar við aðferðir popúlista og einræðis­herra og segir Sigmund Davíð hvorki hugrakkan né kjark­mikinn. Hann eigi þvert á móti sögu að því að hafa lagt á flótta undan fjöl­miðlum og gagn­rýnendum sínum. Þá hafi hann vart mætt til vinnu í heilt ár sem þingmaður en hafi nýtt tíma sinn á þingmanna­kaupi til að stofna flokk utan um sjálfan sig, á bak við þáverandi samflokksmenn hans í Framsóknar­flokknum.

Þessar lýsingar setur Silja Dögg fram í færslu á Facebook þar sem hún tengir á frétt um flokks­ráðsfund Miðflokksins um liðna helgi. Í formanns­ræðu sinni á fundinum sagði Sigmundur Davíð það ánægju­efni að geta treyst samflokksmönnum sínum, það sé breyting frá því sem áður var og vísar þar til þess tíma sem hann starfaði í Framsóknar­flokknum.

„Vissulega getur Sigmundur Davíð verið hugmynda­ríkur en hugrakkur og kjark­mikill er hann svo sannarlega ekki“

Gagnrýni Silju Daggar er hörð þar sem hún lýsir yfir­lýsingum Sigmundar Davíðs um kjark- og verkleysi annarra við að kasta steinum úr glerhúsi. „Sami maður og hljóp út úr sjónvarps­viðtali. Maður sem mætti sárasjaldan í þingsal þegar hann var forsætis­ráðherra, brunaði á Bessa­staði án vitundar þing­flokks síns til að slíta stjórnar­samstarfi (gegn vilja þing­flokks), hljóp út af flokks­þingi þegar hann tapaði kosningu í stað þess að óska keppinauti sínum til hamingju og þakka stuðnings­mönnum sínum (sem margir hverjir komu langt að) fyrir stuðninginn. Sami maður og hefur margsinnis verið á flótta undan fjöl­miðlum og öðrum þeim sem hafa gagnrýnt hann, í stað þess að svara spurningum heiðar­lega.

Maður sem mætti varla til vinnu í heilt ár, en þáði þó laun fyrir, getur trútt um talað þegar kemur að verkleysi...nei annars, hann var auðvitað ekki verklaus heldur upptekinn við að stofna framfara­félag og flokk um sjálfan sig. Já, og safna frímerkjum.“

Silja Dögg segir aðferð Sigmundar Davíðs vera þá að búa til stríð við andlits­laust fólk og tala um sjálfan sig sem hugrakkan og kjarkaðan leiðtoga. „Það er líka voðalega auðvelt að eiga í stríði í andlits­laust fólk og tala um sjálfan sig sem hugrakkan og kjarkaðan leiðtoga. Andlits­laust fólk eins og hrægamma, embættis­menn og auðvitað hið hræðilega „vinstri“. Klassísk og vel þekkt aðferð popúlista og einræðis­herra til að ná völdum og halda þeim er einmitt að búa til óvini. Óvini sem aldrei verða sigraðir. „Ógnin“ er því stöðug og „nauðsynlegt“ fyrir fylgis­menn hins „hugrakka og óumdeilda“ foringja að styðja hann. Annars gæti „eitthvað“ hræðilegt gerst. Maðurinn er sá eini sem getur bjargað þjóðinni frá glötun,“ útskýrir hún.

„Ég er svo gapandi hissa að hverju fólk er tilbúið að trúa.“

Þá gefur Silja Dögg til kynna að Sigmundur ýki upp eigin aðkomu að leið­réttingu húsnæðis­lána.

„Miðflokks­menn eru hrifnir af hinum „kjarkaða foringja“ sínum. Sumir hverjir standa jafnvel í þeirri trú að hann hafi einn og sjálfur leiðrétt húsnæðislán Íslendinga, sem er auðvitað alger firra. Þar komu að fjölmargir sérfræðingar, hinir alræmdu embættis­menn ýmissa stofnana og ráðuneyta sem og auðvitað allur þing­flokkur Framsóknar­flokksins. Grasrót Framsóknar­flokksins barðist einnig ötullega fyrir leið­réttingu húsnæðis­lána á fjölmörgum vígstöðvum. Ég er svo gapandi hissa að hverju fólk er tilbúið að trúa. Vissulega getur Sigmundur Davíð verið hugmynda­ríkur en hugrakkur og kjark­mikill er hann svo sannarlega ekki,“ skrifar Silja Dögg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár