Félags­menn ákveði Heiðveig María segir að félags­menn eigi að ákvarða um fram­tíð eigin félags. Mynd: Davíð Þór

Heiðveig hyggst leita réttar síns: „Þeir eru með félagið í gíslingu“

Heiðveig María Ein­ars­dóttir segir núver­andi stjórn Sjó­manna­fé­lags Íslands vera með félagið í gísl­ingu. Hún hlær að þeim sam­sær­is­kenn­ingum sem fram komu í grein­ar­gerð trún­að­ar­manna félags­ins þess efnis að fram­boð hennar væri á vegum Sós­í­alista og Gunnars Smára Egils­sonar. Hún hyggst leita réttar síns vegna brott­vikn­ingar úr félag­inu.

„Eftir að hafa orðið vitni að atburð­ar­rás síð­ustu vik­urnar hef ég aldrei verið sann­færð­ari um að þetta félag þurfi á hreinsun að halda,“ segir Heiðveig María Ein­ars­dóttir, sjó­maður og við­skipta­lög­fræð­ingur, í við­tali við Stundina. Óhætt er að segja að nafn Heið­veigar hafi skot­ist hratt upp á svið íslenskrar þjóð­mála­um­ræðu síð­ustu miss­eri, ekki síst eftir að stjórn Sjó­manna­fé­lags Íslands ákvað að víkja henni úr félag­inu á þeim for­sendum að hún hefði skaðað hags­muni þess. Heiðveig hefur verið gagn­rýn­inn á stjórn­ina, meðal ann­ars vegna laga­breyt­inga sem hún hefur bent á að hafi verið keyrðar í gegn án þess að þær hafi farið fyrir aðal­fund líkt og lög félags­ins kveði á um.

Sitjandi for­maðurJónas Garð­ars­son er sitj­andi for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands en hann hefur sakað Heið­veigu um að vega að félag­inu með orðum sínum.

Hún segir félagið í gísl­ingu Jónasar Garð­ars­sonar, sitj­andi for­manns félags­ins, og félaga hans í stjórn, sem hafi útbúið mikið „sam­sær­is­kenn­ingaplagg“ í þeim til­gangi að koma henni úr félag­inu. Þessir menn virð­ist ætla að fara sínu fram algjör­lega óháð því hver sé lýð­ræð­is­legur vilji ann­arra félags­manna. „Það er ein­fald­lega verið að reyna að tryggja það að ég fái ekki að bjóða mig fram þarna með nokkrum hætti, né kannski nokkrir aðrir heldur.“

Vafasamar lagabreytingar

Stuttu eftir að Heiðveig til­kynnti um það nú í byrjun októ­ber, að hún hygð­ist gefa kost á sér í emb­ætti for­manns Sjó­manna­fé­lags Íslands, var lögum á heima­síðu félags­ins breytt. Ein helsta breyt­ingin fólst í því að nú væru þeir einir kjör­gengir sem skráðir hefðu verið í félagið síð­ast­liðin þrjú ár eða lengur. Heiðveig lýsti yfir miklum efa­semdum með þessi vinnu­brögð og gagn­rýndi stjórn­ina harð­lega í fjöl­miðlum enda fól laga­breyt­ingin í sér að hún gæti ekki lengur boðið sig fram líkt og hún hafði ráð­gert.

Stjórn­ar­menn gagn­rýndu svo aftur Heið­veigu fyrir þessa gagn­rýni hennar og sök­uðu hana um að vega að félag­inu með orðum sínum. Gekk Jónas Garð­ars­son, sitj­andi for­maður Sjó­manna­fé­lags­ins, svo langt að saka Heið­veigu Maríu um að bera ábyrgð á því að hafa eyði­lagt stærsta hags­muna­mál félags­ins – sam­ein­ingu þess og ann­arra sjó­manna­fé­laga. Þá hafna Jónas og félagar hans í stjórn­inni því að hafa breytt lög­unum án heim­ildar og full­yrða að umrædd laga­breyt­ing hafi verið sam­þykkt á aðal­fundi í des­em­ber 2017. Hins­vegar hafi gleymst að upp­færa lög félags­ins á heima­síðu þess.

Leitar réttar síns Heiðveig hyggst leita réttar síns vegna brott­vikn­ing­ar­innar.

Kjör sjómanna hjartans mál

Þann 24. októ­ber síð­ast­lið­inn lögðu svo fjórir trún­að­ar­menn félags­ins, þar á meðal Arn­grímur Jónsson, rit­ari, auk þeirra Jóns Ragn­ars­sonar, Stein­þórs Hreins­sonar og Steinars Haralds, fram til­lögu fyrir trún­að­ar­ráð um brott­vikn­ingu Heið­veigar úr félag­inu. Í grein­ar­gerð fjór­menn­ing­anna, sem er níu síður og tekur meðal ann­ars á því sem þeir telja vera ráð­gerða yfir­töku Sós­í­alista á félag­inu, er Heiðveig María sögð hafa brotið gegn 10. grein laga félags­ins sem kveður á um að hver sá sem vinni gegn hags­munum þess, valdi því tjóni eða geri því eitt­hvað til vansa, sé „brott­rækur úr félag­inu“. Tillagan var sam­þykkt með meiri­hluta atkvæða.

Heiðveig segir að kjör sjó­manna hafi varðað hana alveg síðan hún fædd­ist. 

„Pabbi minn er sjó­maður, mamma mín er sjó­maður, systk­ini mín, ég sjálf var sjó­manns­kona og ég er komin aftur á sjó núna sjálf og hef alltaf brunnið fyrir þessu.“

Hún biður um það eitt að fram fari lýð­ræð­is­legar kosn­ingar svo að félags­menn geti sjálfir ákvarðað hvaða for­ystu þeir vilja. Hún segir að tals­menn sjó­manna hafi allt of lengi mætt tals­mönnum útgerð­anna á þeirra eigin velli og að þessu þurfi að snúa við. Til þess þurfi aukin kraft og sam­stöðu sem verði ekki til á meðan núver­andi stjórn ein­beiti sér aðal­lega að því að passa eigin stóla í stað þess að vinna að hags­munum sjó­manna.

„Samhengislaust samsæriskenningaplagg“

Í grein­ar­gerð­inni sem var lögð fyrir trún­að­ar­manna­ráð reka fjór­menn­ing­arnir mála­vexti eins og þeir horfa við þeim en svo virð­ist sem þeir telji Heið­veigu vera ein­hvers­konar hand­bendi Gunnars Smára Egils­sonar, stofn­anda Sós­í­alista­flokks Íslands. Í þessu sam­hengi benda þeir á að Gunnar Smári hafi hringt inn á skrif­stofu Sjó­manna­fé­lags­ins haustið 2017 til þess að spyrj­ast fyrir um tíma­setn­ingu stjórn­ar­kjörs í félag­inu auk þess sem vísað er til nafn­lausra skrifa í Við­skipta­blað­inu frá því í mars 2018 þar sem Gunnar Smári er sagður standa á bak við ætl­aða yfir­töku á Sjó­manna­fé­lag­inu.

Vofa Gunnars SmáraÍ grein­ar­gerð fjór­menn­ing­anna er leitt að því líkum að Gunnar Smári standi á bak við fram­boð Heið­veigar og það sett í sam­hengi við Sov­ét­ríkin og upp­gang sós­í­al­ism­ans á 20. öld.

„Vofa gengur nú ljósum logum um íslenska verka­lýðs­hreyf­ingu – vofa Sós­í­alista­flokks Gunnars Smára Egils­sonar. Fáum bland­ast hugur um að þar séu aðgerðir um yfir­töku verka­lýðs­fé­lag­anna sam­ræmdar og eftir stór­sigur Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur í Eflingu skyldi eng­inn efast um get­una til þess,“ sagði í þess­ari umfjöllun Við­skipta­blaðs­ins þar sem full­yrt var að nú væru það sam­tök sjó­manna, sem sós­í­alistar horfðu helst til, „en þar hyggj­ast þeir tefla fram Heið­veigu Maríu Ein­ars­dóttur, sjó­manni og við­skipta­lög­fræð­ing.“

Þá er atburð­ar­rásin öll sett í sam­hengi við upp­gang sós­í­al­ism­ans á 20. öld­inni: „Með upp­gangi sós­í­al­isma og stofnun Sov­ét­ríkj­anna fyrir 100 árum og síðar stofnun Komm­ún­ista­flokks Íslands hófst harð­vítug flokkspóli­tísk valda­bar­átta innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Nú vinnur Sós­í­alista­flokkur Íslands undir for­ystu fyrr­nefnds Gunnars Smára, sem eitt sinn stýrði eign­ar­heilds­fé­lagi 365 miðla Baugs að nafni Dagsbrún, að því að taka yfir Sjó­manna­fé­lag Íslands.“ Heiðveig hlær að grein­ar­gerð­inni sem hún segir vera sam­heng­is­laust sam­særis­plagg sem byggi á litlu öðru en Facebook færslum og nafn­lausum grein­ingum Við­skipta­blaðs­ins.

Bauð sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn 

„Hann [Jónas] hefur lík­lega haldið það að með því að breyta þessum lögum og reka mig úr félag­inu myndi ég limp­ast niður og fara að grenja. En ég get algjör­lega sagt það að ég hef aldrei nokkurn tím­ann verið jafn viss um eitt­hvað sem ég hef ákveðið að gera eins og akkúrat núna þar sem ég sit hér í dag,“ segir Heiðveig sem bætir við að þessi mál­flutn­ingur sem og vinnu­brögð séu ekki boð­leg. Hún gerir lítið úr teng­ing­unum við Sós­í­alista enda hafi hún aldrei verið flokks­bund­inn nema þá þegar hún bauð sig fram fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn árið 2006.

Heiðveig segir að fyr­ir­hugað fram­boð hennar hafi verið búið að fá heil­mik­inn byr undir báða vængi og að ein­stak­lingar víðs­vegar að af land­inu hafi verið búnir að setja sig í sam­band við hana. Þessi hópur hafi svo í raun verið til­búin að bjóða sig fram með henni í kom­andi kosn­ingum en þar hafi flokkapóli­tík alls ekki komið við sögu heldur vilj­inn til þess að vinna saman að þeim breyt­ingum sem hún og félagar hennar eru sann­færðir um að þurfi að gera svo að hags­munum sjó­manna sé sem best borgið. „Jú, það var reyndar eitt skil­yrði,“ bætir Heiðveig við og segir að þau hafi sér­stak­lega talað um að reyna að forð­ast það að fá svo­kall­aða já-menn með sér í lið.

Finnur mikinn meðbyr

Heiðveig seg­ist hafa fundið fyrir gríð­ar­legri sam­stöðu að und­an­förnu.

„Frá öðrum sjó­mönnum í mínu félagi, öðrum félögum, stjórn­ar­mönnum í öðrum félögum, sjó­manns­konum, sjó­manns­fjöl­skyldum, fólki út um allt land.“

Þá segir hún fólk almennt orð­laust yfir þeirri atburð­ar­rás sem hafi birst í fjöl­miðlum að und­an­förnu, „að ein­hverjum hafi verið vikið úr stétt­ar­fé­lagi fyrir að gagn­rýna eitt­hvað sem liggur fyrir, að það er mis­ræmi í lög­unum.“

Gagnrýna stjórn­ina harka­legaSólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar og Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, eru á meðal þeirra Verka­lýðs­leið­toga sem hafa gagn­rýnt Sjó­manna­fé­lagið harð­lega.

Þá hafa ýmsir verka­lýðs­for­kólfar gagn­rýnt stjórn Sjó­manna­fé­lags Íslands harð­lega und­an­farna daga. Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, ASÍ, for­dæmdi í gær það sem hún kallar aðför félags­ins að Heið­veigu. Þá sendu for­menn VR, Eflingar stétt­ar­fé­lags, Fram­sýnar stétt­ar­fé­lags og Verka­lýðs Akraness, frá sér til­kynn­ingu í morgun þar sem þeir for­dæma vinnu­brögð trún­að­ar­manna­ráðs félags­ins og brott­rekstur Heið­veigar Maríu úr félag­inu. Þar segja for­menn­irnir meðal ann­ars að skoð­ana­á­grein­ingur og gagn­rýni á störf stétt­ar­fé­lags geti undir engum kring­um­stæðum flokk­ast undir brot sem kalli á brott­rekstur.

„Alvarleg brot félags­manna gegn félag­inu eins og t.d. ef hann vinnur með atvinnu­rek­endum gegn hags­munum þess geta í alvar­leg­ustu und­an­tekn­ingar til­vikum leitt til þess að hömlur verði settar á atkvæð­is­rétt og kjör­gengi. Skoð­ana­á­grein­ingur og gagn­rýni á störf félags­ins eru ekki slík brot heldur skýrt merki um lýð­ræð­is­lega þátt­töku í starf­semi félags­ins,“ segir í til­kynn­ingu for­mann­anna. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að atvikið sé eitt­hvert það dap­ur­leg­asta í sögu lýð­ræðis á Íslandi. 

Kolbrún Garð­ars­dóttir, lög­maður Heið­veigar Maríu, sagði í sam­tali við Mbl.is í gær að brott­vikn­ingin væri kolólög­leg og að farið yrði með málið fyrir félags­dóm.

Farið fram á félagsfund

Fordæmir aðför að Heið­veiguForseti ASÍ, Drífa Snædal, for­dæmdi í gær það sem hún kallar aðför Sjó­manna­fé­lags­ins að Heið­veigu.

Heiðveig segir að það verði fróð­legt að sjá hver nið­ur­staða Félags­dóms verði. Þá bendir hún á að verið sé að safna und­ir­skriftum til þess að fara fram á félags­fund í félag­inu en alls óljóst hvort og þá hvenær verði orðið við þeirri beiðni þar sem það sé í raun­inni „búið að aftryggja allan lýð­ræð­is­legan rétt félags­manna um að eiga nokkuð um þetta félag að segja. Þeir ákveða þetta.“ Heiðveig bætir við að henni finn­ist við­horf stjórn­enda félags­ins vera á þann veg að þeir geti farið með félagið nákvæm­lega eins og þeim sýn­ist. „Það er attitjútið sem er að koma frá þessum mönnum og ég krefst þess bara að félags­menn mínir stappi nú niður fótum og segi hingað og ekki lengra.“

Hún seg­ist mjög hugsi yfir stöð­unni í félag­inu, sér­stak­lega þegar litið er til fram­setn­ingar, rök­stuðn­ing og efni þess skjals sem lagt var fyrir trún­að­ar­manna­ráð í þeim til­gangi að víkja henni úr félag­inu. „Sér í lagi þegar maður hugsar til þess að staða þess­arar stéttar hefur verið járn í járn í öllum samn­ingum síð­ast­liðin ár. Og mér finnst vinnu­brögðin í þessu máli í raun­inni skýra þessa stöðu að ein­hverju leyti, enda er ótrú­lega erfitt fyrir fólk sem kemur fram með mál­efna­leg rök, kröfur og annað að eiga sam­skiptum við fólk sem er svona langt frá því í vinnu­brögðum, alveg óháð því hvort menn eru sam­mála

eður ei,“ segir Heiðveig sem bætir við að það gefi auga­leið að það verði alltaf erf­ið­ara að kom­ast að nið­ur­stöðu þegar staðan sé svo­leiðis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár