Greind með OCD Karin var greind með OCD sum­arið 2017, eftir að hafa brotnað algjör­lega saman. Eftir það hefur hún byggt sig upp með aðstoð fag­fólks og nákom­inna og líður mjög vel í dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Þarf að vinna í mér og vera góð við mig“

Karin Sveins­dóttir brotn­aði algjör­lega niður í kvíða­kasti sum­arið 2017. Með hjálp tókst henni að byggja sig upp og líður í dag betur heldur en henni hefur liðið árum saman.

Karin Sveins­dóttir þurfti að byggja sig algjör­lega upp eftir að hafa fengið alvar­legt kvíða­kast sum­arið 2017, svo alvar­legt að vin­kona hennar þurfti að fara með hana á bráða­geð­deild. Eftir á að hyggja var nið­ur­brotið sem Karin fékk þá kannski hennar gæfa því eftir það fékk hún aðstoð við að takast á við kvíða, þung­lyndi og geð­rask­anir sem höfðu fylgt henni um langa hríð. Með aðstoð hefur Karin byggt sig sjálfa upp og líður betur í dag en henni hefur liðið árum saman.  

„Ég var ekki búin að borða eða sofa dögum saman og var bara grát­andi“

„Ég er greind með þung­lyndi og kvíða og hef verið greind með það í þónokkur ár. Síðasta sumar komst ég síðan að því að ég er með OCD, áráttu- og þrá­hyggjuröskun. Það eru alls konar teg­undir til af svo­leiðis röskun,  fólk er með þrifn­að­ar­æði eða eitt­hvað í þeim dúr, en í mínu til­viki er þetta hug­rænt, það er að segja þetta bein­ist að hugs­unum mínum. Alltaf ef ég fékk ein­hverja hugsun í koll­inn á mér sem ég vildi ekki hugsa þá réðst ég á hana og varð alveg hel­tekin af henni, í marga daga, jafn­vel í mán­uði. Þetta voru auð­vitað yfir­leitt alltaf slæmar hugs­anir, ég gat séð eitt­hvað í kvik­mynd sem mér fannst ógeðs­legt og svo ekki hugsað um annað. Það var ansi erfitt að eiga við þetta.“

Var greind með OCD

Í júní á síð­asta ári varð Karin fyrir algjöru nið­ur­broti sem end­aði með því að vin­kona hennar fór með hana upp á geð­deild. „Ég var ekki búin að borða eða sofa dögum saman og var bara grát­andi. Þetta ástand var búið að vara í upp undir tvær vikur þegar vin­kona mín tók í taumana og fór með mig upp á deild. Þar tal­aði ég við geð­hjúkr­un­ar­fræð­ing og fékk alls konar hjálp. Ég fór á lyf og mætti í svona panic-hópa og sál­fræði­með­ferð og er bara að vinna ennþá með þetta allt, að laga mig. En þarna var ég sem sagt greind með OCD.“

Karin var, eins og áður segir, búin að vera að kljást við þung­lyndi og kvíða um nokk­urra ára hríð. „Það byrj­aði þegar ég var svona fimmtán, sextán ára, þegar ég var að byrja í mennta­skóla. Þessi veik­indi urðu þess vald­andi að ég ent­ist ekki í fram­halds­skóla, ég kláraði tvö ár áður en ég hætti bara að mæta því mér leið svo illa á þeim tíma. Ég end­aði með því að hætta í skól­anum og fór að vinna. Ég hef ekki ennþá getað tekið upp þráð­inn í námi en ég stefni að því og ég veit að núna get ég það. Ég er bara að skoða hvað ég eigi að gera, ég á auð­vitað ennþá eftir að taka stúd­ents­prófið en mig langar líka að fara og læra leik­list í fram­hald­inu. Ég vinn sem versl­un­ar­stjóri í Spútnik og líður mjög vel þar þannig að það liggur ekk­ert á en ég er samt að pæla í fram­tíð­inni.“

Hafði áhrif á tónlistina

Karin er tón­list­ar­kona og hefur starfað undir nafn­inu Young Karin, fyrst með Loga Pedro en í seinni tíð upp á eigin spýtur. Spurð hvort að kvíð­inn og geð­rask­an­irnar hafi haft áhrif á tón­list­ar­sköpun eða flutn­ing segir hún að það hafi vissu­lega gert það. „Sér­stak­lega þegar ég var yngri. Ég var mjög hrædd við alla gagn­rýni. Eftir að hafa horfst í augu við vand­ann þá varð ég samt sjálfsör­ugg­ari í minni sköpun. Ég verð svo sem alveg ennþá kvíðin áður en ég stíg á svið og ég er ennþá að díla við allt mitt á hverjum degi. Ég er hins vegar búin að játa fyrir mér að ég er and­lega veik, búin að við­ur­kenna það og sætta mig við það og það er miklu auð­veld­ara ða eiga við það í stað­inn fyrir að vera í ein­hverri afneitun.“

„Ég hætti að drekka kaffi, ég hætti að reykja, hætti að drekka áfengi og fór að hreyfa mig“
Þarf að sinna sjálfri sér„Ég er alltaf að vinna í mér, á hverjum degi, að tala um til­finn­ingar mínar og rækta mig. Ég get ekk­ert hætt núna og hugsað: „Hei, ég er bara orðin góð“, segir Karin.

Karin segir að eftir að hún fór að vinna í sínum málum hafi nálgun hennar á tón­list­ina breyst að því marki að hún sé núna í meira mæli að vinna að því að gera sitt eigin efni. Áður hafi hún mest­megnis sungið texta sem Logi hafi samið og sett sína til­finn­ingu í flutn­ing­inn en núna langi hana að gera sitt eigið. „Ég er svona að vinna í því að gera mitt eigið efni, texta og svona. Það eig­in­lega gerð­ist ekki fyrr en eftir að ég fékk þetta mikla kvíða­kast, ég fór að treysta mér betur eftir að ég var orðin  stabílli. Það hvað mér líður miklu betur núna er að hafa jákvæð áhrif á mína list­sköpun, rétt eins og á allt annað í mínu lífi.“

Allt er mögulegt

Karin segir að í dag líði henni eins og allt sé mögu­legt en áður hafi flest verið ómögu­legt. „Ég vissi ekki hvernig ég átti að díla við þetta, að fá reiði­köst yfir ein­hverju sem ég vissi ekki hvað var og svo sam­visku­bit yfir að gera ekki alls konar hluti sem ég treysti mér ekki til að gera. Þetta er svo mik­ill víta­hringur en það er svo mik­ill léttir þegar manni tekst að rjúfa hann.

Mér líður mjög vel í dag. Mér líður mikið betur heldur en mér hefur liðið svo árum skipti. Þegar ég fór í þetta stóra kvíða­kast á síð­asta ári og fékk hjálp þá tók ég mjög mikið til hjá sjálfri mér. Ég hætti að drekka kaffi, ég hætti að reykja, hætti að drekka áfengi og fór að hreyfa mig með­fram því að nýta mér hjálp­ina sem ég fékk. Eitt það mik­il­væg­asta sem hægt er að gera er líka að tala um það þegar manni líður illa. Ég fann alvega hvað hug­ur­inn róað­ist þegar ég gat talað um líð­an­ina upp­hátt, hvort sem það var við fag­fólk, við fjöl­skyld­una mína, kærast­ann minn eða vini. Ég var alltaf með svo mikið sam­visku­bit yfir því að líða illa og yfir því að virka ekki að haus­inn á mér varð enn rugl­aðri ef ég tal­aði ekki um það. Það er það mik­il­væg­asta sem ég hef lært, að tala um van­líð­an­ina og þessar hugs­anir. Ég hef líka lært að treysta sjálfri mér og leyfa hugs­unum mínum að koma og fara, í stað­inn fyrir að greina þær í drasl. Þetta kenndi sál­fræð­ing­ur­inn mér, að leyfa hugs­unum bara að koma og fara í stað­inn fyrir að mikla þær fyrir mér í höfð­inu. Og það er alveg vanda­samt sko, það er meira mál en maður heldur. En þegar það tekst þá kemur í ljós að hugs­an­irnar sem maður var alveg fastur í voru eitt­hvað sem engu máli skipti. Þetta er alveg eins og með kvíða, þegar maður loks gerir hlut­ina sem maður kvíðir að gera þá eru þeir kannski bara ekk­ert mál.“

„Ég hef líka lært að treysta sjálfri mér og leyfa hugs­unum mínum að koma og fara, í stað­inn fyrir að greina þær í drasl“ 

Karin segir að lyk­il­at­riðið í því að höndla ham­ingj­una eftir að hafa þurft að kljást við geð­rask­anir af þessu tagi sé að halda áfram að vinna í sjálfum sér og sækja sér aðstoð eftir þörfum. „Ég tók pásu í sumar í sál­fræði­með­ferð en ég er alltaf að vinna í mér, á hverjum degi, að tala um til­finn­ingar mínar og rækta mig. Ég get ekk­ert hætt núna og hugsað: „Hei, ég er bara orðin góð.“ Það myndi bara enda með því að ég brot­lenti aftur. Ég þarf bara að vinna í mér og vera góð við mig, alltaf. Allir sem eru í þeirri stöðu að líða illa þurfa að muna að tala um það, bara við ein­hvern, og leita sér að hjálp. Það er ógn­vekj­andi að þurfa að gera það en það gerir svo ofsa­lega mikið fyrir mann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið undanfarið ár