Mynd: Davíð Þór

Hver missir var þungbær

Sesselja Fjóla Þor­steins­dóttir er tveggja barna móðir. Annar sonur hennar fædd­ist eftir 27 vikna með­göngu. Í tvígang hefur hún fætt and­vana börn og átta sinnum misst fóstur. Sam­visku­bit fylgdi hverjum fóst­ur­missi, því hún hélt hún hefði gert eitt­hvað rangt. Skiln­ings­leysið var líka mikið gagn­vart sorg­ar­ferli konu sem hafði misst fóstur.

„Hér heyr­ist ekk­ert hljóð, hér er engin hreyf­ing.“

Sesselja Fjóla Þor­steins­dóttir, sem kölluð er Fjóla, var gengin nán­ast fulla með­göngu þegar henni var til­kynnt að barnið væri dáið. Frá sautján ára aldri hefur Fjóla gengið í gegnum hvern miss­inn á fætur öðrum, misst átta fóstur með þeim sáru til­finn­ingum sem því fylgja og fætt tvö and­vana börn.

Sorgin hefur fylgt henni í gegnum lífið, en hún hefur reynt að læra af þess­ari reynslu, læra að meta lífið, fólkið sitt og feg­urð­ina. Og í hvert sinn sem það fæð­ist barn inn í fjöl­skyld­una grætur hún af gleði. „Ég er eins og grát­kór. Það losar svona ofboðs­lega mikið um hjá mér – bæði sorg og gleði og mikið þakk­læti. Mér finnst barna­börnin vera fal­leg­ustu börn í heimi.“

Fjóla segir hér sögu sína í von um að auka skiln­ing fólks á þessum aðstæðum, um leið og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár