Laxeldisfyrirtækin fái tíu mánaða leyfi

Rík­is­stjórn var köll­uð á auka­fund til að kynna frum­varp sem veit­ir eld­islax­fyr­ir­tækj­um færi á bráða­birgða­leyfi. Þing­mað­ur Fram­sókn­ar­flokks seg­ir gjald­þrot hafa kom­ið til tals.

Laxeldisfyrirtækin fái tíu mánaða leyfi
Kristján Þór Júlíusson Mynd: Pressphotos

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mun í dag leggja fram á Alþingi frumvarp sem gerir ráðherra heimilt að veita fyrirtækjum í laxeldi bráðabirgðaleyfi til allt að tíu mánaða, að undangenginni umsögn Matvælastofnunar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi á fimmtudag úr gildi starfsleyfi tveggja laxeldisfyrirtækja, Arctic Sea Farm og Fjarðalax.

Óttast er um allt að 300 störf á Vestfjörðum ef fyrirtækin þurfa að hætta rekstri. Haft er eftir Höllu Signýju Kristjánsdóttur, þingmanni Framsóknarflokksins úr kjördæminu, í Fréttablaðinu í dag að gjaldþrot fyrirtækjanna hafi komið til tals. Þá herma heimildir blaðsins að viðskiptabanki Arctic Sea Farm hafi gert fyrirtækinu grein fyrir að afturköllun á rekstrarleyfi geti þýtt riftun lánasamnings bankans við það.

„Þetta er dagaspursmál því þeir sjá stefnuleysið í málaflokknum og vandræðaganginn og hafa kallað fyrirtækin að borðinu og viljað fá svör,“ segir Halla Signý við Fréttablaðið. „Fyrirtækin hafa sagt atvinnuveganefnd þetta og ég sem þingmaður kjördæmisins hef verið fyrir vestan og hef verið að heyra þetta.“

Þá hefur Morgunblaðið eftir Sigurði Péturssyni, framkvæmdastjóra hjá Arctic Sea Farm, að úrskurðurinn hafi skapað mikla óvissu í Patreks- og Tálknafirði. „Þetta er flókið mál og mér finnst kerfið hafa klikkað. Kerfið gerir ekki ráð fyrir því að það er fólk fyrir vestan sem hefur lífsviðurværi sitt af þessari starfsemi. Um 25% fjölskyldna á sunnanverðum Vestfjörðum hafa beina afkomu af fiskeldi,“ segir Sigurður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Umdeilt frumvarp matvælaráðherra um lagareldi bíður líklega næsta þings
FréttirLaxeldi

Um­deilt frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi bíð­ur lík­lega næsta þings

Gísli Rafn Ólafs­son, þing­mað­ur Pírata og vara­formað­ur at­vinnu­vega­nefnd­ar, seg­ir að enn sé ver­ið að ræða við hags­mun­að­ila út af lagar­eld­is­frum­varp­inu. Hann seg­ir lík­legra en ekki að frum­varp­ið bíði næsta þings. Frum­varp­ið er um­deilt og hafa mat­væla­ráð­herr­ar Vinstri grænna ver­ið gagn­rýnd­ir fyr­ir það.
Búið að ráða nýjan mann í starfið hjá MAST eftir innanhúsátök
FréttirLaxeldi

Bú­ið að ráða nýj­an mann í starf­ið hjá MAST eft­ir inn­an­húsátök

Mat­væla­stofn­un hef­ur ákveð­ið að Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir verði nýr sviðs­stjóri yf­ir með­al ann­ars lax­eldi hjá stofn­un­inni. Átök urðu inn­an­húss hjá stofn­un­inni eft­ir að Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn í starf­ið en hann hafði með­al ann­ars skrif­að grein­ar þar sem hann lýsti yf­ir stuðn­ingi við sjókvía­eldi sem at­vinnu­grein.
SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýn­ir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og tal­ar um hann eins og eign

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skil­að gagn­rýnni um­sögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráð­un­um hjá SFS er að rekstr­ar­leyf­in í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bund­in leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt ann­að í því.

Mest lesið

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
2
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár