Skýrsla Hannesar „rýri trúverðugleika“ Íslands og Háskólans

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir Hannes Hólm­stein Giss­ur­ar­son vera einn af sköp­urum þess ástands sem leiddi af sér banka­hrun. Skýrsla hans sé dýr­keypt og vill­andi á erlendum vett­vangi.

Skýrsla Hannesar „rýri trúverðugleika“ Íslands og Háskólans

Skýrsla Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar um erlenda áhrifa­þætti banka­hruns­ins rýrir trú­verð­ug­leika Íslands og Háskóla Íslands gagn­vart umheim­inum. Allir á Íslandi sjái hins vegar að skrif hans séu vil­höll Sjálf­stæð­is­flokknum. Þetta segir Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag.

„Erlendir aðilar hafa mögu­lega ekki tök á að greina að dr. Hannes hafi ekki bara verið óháður stjórn­ar­með­limur í Seðla­bank­anum heldur bein­línis einn af sköp­urum þess ástands sem leiddi af sér hið íslenska banka­hrun,“ skrifar Helga Vala. „Þegar skýrsla dr. Hannesar er þar að auki stimpluð í bak og fyrir með vel­þóknun íslenskra stjórn­valda er hætta á að les­andi álykti að hér sé á ferð­inni vandað fag­legt rit frá virtum Háskóla.“

Helga Vala skrifar að Hannes hafi aldrei farið leynt með flokkspóli­tíska afstöðu sína. „Hér á Íslandi ætti hver sá sem eitt­hvað hefur fylgst með stjórn­málum að geta greint skrif hans, greint að þar er þess gætt vand­lega að sneiða fram­hjá hverju því sem fellt gæti skugga á hans Sjálf­stæð­is­flokk sem og sneitt vand­lega að því að krydda með frjálsu lagi hvað það sem gæti komið sjálf­stæð­is­flokkspóli­tískum and­stæð­ingum miður. Gott og blessað. En þá komum við að því hvort það sé heppi­legt að íslensk stjórn­völd séu að velja slíkan ein­stak­ling til verks þegar rita á trú­verð­uga skýrslu fyrir íslenska ríkið á erlendri tungu, hvar til­gang­ur­inn virð­ist að koma í dreif­ingu sem víð­ast um heim?“

Þá skrifar Helga Vala að í sið­uðu ríki hefði verið ritað í inn­gangi skýrsl­unnar að höf­undur hennar hefði um ára­tuga­skeið verið áhrifa­maður bak við tjöldin í Sjálf­stæð­is­flokknum og einn „aðal­á­róð­urs­meist­ari“ flokks­ins sem hefur stýrt land­inu um ára­tuga skeið. „Þegar ævi­fer­ill höf­undar verður les­endum ljós er hætta á að það rýri enn frekar trú­verð­ug­leika Íslands og Háskóla Íslands í augum umheims­ins,“ skrifar hún að lokum. „Það, auk millj­ón­anna tíu sem við greiddum fyrir verkið getur orðið okkur ansi dýr­keypt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hrunið

Segir Margréti leikstjóra ekkert vita um málið: „Þetta er bara sóðaskapur“
InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár