Sérgreinalæknar fá „betur greitt og einfaldari sjúklinga“ á stofum en á Landspítala

Aðstoð­ar­maður heil­brigð­is­ráð­herra segir að fjölga þurfi sér­greina­læknum á göngu­deildum. Ramma­samn­ingur við Sjúkra­trygg­ingar sem rennur út um ára­mótin komi í veg fyrir þá þróun. Ráðherra vill fram­lengja um ár þar til fundin verður lausn.

Sérgreinalæknar fá „betur greitt og einfaldari sjúklinga“ á stofum en á Landspítala
Birgir Jak­obs­son Fyrr­ver­andi land­læknir aðstoðar nú Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Heil­brigð­is­ráð­herra vill færa sér­greina­lækna í auknum mæli á göngu­deildir spít­al­anna. Ramma­samn­ingur þeirra við Sjúkra­trygg­ingar Íslands tryggi þeim hins vegar hærri greiðslur og ein­fald­ari sjúk­linga með því að starfa á stofum. Þetta skrifar Birgir Jak­obs­son, fyrr­ver­andi land­læknir og aðstoð­ar­maður heil­brigð­is­ráð­herra, í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í morgun.

Ramma­samn­ing­ur­inn rennur út um ára­mótin og nokkrar deilur hafa orðið um fram­tíð hans opin­ber­lega. Í síð­ustu viku felldi hér­aðs­dómur Reykja­víkur úr gildi ákvörðun Sjúkra­trygg­inga um að neita sér­fræði­lækni aðild að samn­ingnum. Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra lýsti því yfir í gær að ríkið hyggð­ist ekki áfrýja í mál­inu.

Ráðherra kynnti hug­myndir sínar í mála­flokknum á fundi í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu í gær og lýsti hún vilja sínum til að fram­lengja gild­andi ramma­samn­ing um eitt ár meðan unnið yrði að breyttu fyr­ir­komu­lagi, að því sem fram kemur í frétta­til­kynn­ingu. Fyrr hafði hún árétt að það sé ekki stefna eða mark­mið að fyr­ir­byggja starf­semi sjálf­stætt starf­andi heil­brigð­is­starfs­fólks á stofum með greiðslu­þátt­töku hins opin­bera.

Sérfræðilæknar í námi erlendis vilji störf á spítala

Í grein sinni í dag bendir Birgir á að sam­kvæmt skýrslu McKinsey frá 2016 sé Land­spít­al­inn mun verr mann­aður af reyndum sér­fræði­læknum en sam­bæri­leg sjúkra­hús á Norð­ur­lönd­unum og breyta þurfi því. „Þetta er ekki hægt að gera á meðan sér­greina­læknar fá bæði betur greitt og ein­fald­ari sjúk­linga þegar þeir starfa á ramma­samn­ingi Sjúkra­trygg­inga Íslands,“ skrifar Birgir.

„Heil­brigð­is­ráð­herra leggur áherslu á styrk­ingu opin­bera heil­brigð­is­kerf­is­ins, heilsu­gæsl­una um allt land sem fyrsta við­komu­stað sjúk­linga með breiðri aðkomu fleiri heil­brigð­is­stétta, og að auka aðgengi að sér­greina­læknum fyrir alla lands­menn með því að styrkja göngu­deild­ar­starf­semi sjúkra­hús­anna, ekki síst Land­spít­ala, þar sem auð­veld­ara er að koma við teym­is­vinnu fleiri fag­stétta. Til þess að koma þessu til leiðar þarf fleiri sér­greina­lækna inn á sjúkra­húsin,“ skrifar Birgir.

Birgir segir það mis­skiln­ing að bjóða þurfi íslenskum heil­brigð­is­starfs­mönnum í námi erlendis starf á stofu. „Flestir íslenskir læknar eru í sér­námi á háskóla­sjúkra­húsum erlendis og koma því aðeins heim að þeim sé boðin sam­bæri­leg starfs­að­staða hér á landi,“ segir Birgir.

Í við­tali við Stundina í apríl lýsti Birgir skoð­unum sínum á þróun heil­brigð­is­mála hér á landi. Hann hefur verið mjög gagn­rýn­inn á vax­andi hlut einka­rekst­urs í heil­brigð­is­kerf­inu, sem hann segir meira og minna hafa þró­ast af sjálfu sér. Sér­fræði­læknar í einka­reksti vinni sam­kvæmt mjög hvetj­andi kerfi, alltof hvetj­andi, á meðan opin­bera kerfið inni­haldi enga hvata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár