Þingmenn VG óánægðir með að „æfing í að drepa annað fólk“ fari fram á Íslandi

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé og Steinunn Þóra Árna­dóttir vilja að Ísland gangi úr NATO og segja her­æf­ingar á Íslandi afleið­ingu af því að það sé minni­hluta­sjón­ar­mið á Alþingi.

Þingmenn VG óánægðir með að „æfing í að drepa annað fólk“ fari fram á Íslandi
Steinunn Þóra Árna­dóttir þing­kona Vinstri grænna

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé og Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­menn Vinstri grænna, gagn­rýna harð­lega að her­æf­ingar NATO fari fram á Íslandi og segja að þær séu æfing í að drepa fólk. „Ef fleiri tækju skýra afstöðu gegn hern­að­ar­banda­lag­inu, þá væru þessar morð­æf­ingar ekki reglu­lega haldnar hér á landi,“ skrifar Kolbeinn á Facebook og Steinunn tekur í sama streng: „Nú ber­ast fregnir af her­æf­ingum á Suð­ur­landi í næsta mán­uði. Það er ein af mörgum ljótum birt­ing­ar­myndum þess að Ísland er aðili að Nató.“

Varnaræf­ing Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, Trident Juncture 2018, verður haldin á Norður-Atl­ants­hafi, í Noregi og á Íslandi í októ­ber og nóv­em­ber næst­kom­andi. Um er að ræða stærstu varnaræf­ingu banda­lags­ins frá 2015. Um fjöru­tíu þús­und her­menn og borg­ara­legir sér­fræð­ingar munu taka þátt í aðal­æf­ing­unni í Noregi, sem hefst 25. októ­ber og stendur til 7. nóv­em­ber. Fyrst fer hins vegar fram smærri æfing á Íslandi undir merkjum Trident Juncture 2018. „Hún verður haldin þann 16. októ­ber í Sandvík, nærri Höfnum í Reykja­nesbæ, og á örygg­is­svæð­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli. 400 manna banda­rískt land­göngu­lið æfir lend­ingu í Sandvík en um 120 hund­rað land­göngu­liðar verða fluttir með þyrlum á örygg­is­svæðið þar sem æfð verða við­brögð við árás á stjórn­stöð Land­helg­is­gæslu Íslands,“ segir í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

„Frið­ar­póli­tík og and­staða við hernað hefur alltaf verið ein af grunn­stoðum minnar póli­tísku sann­fær­ingar“

„Frið­ar­póli­tík og and­staða við hernað hefur alltaf verið ein af grunn­stoðum minnar póli­tísku sann­fær­ingar,“ skrifar Kolbeinn Proppé, þing­maður Vinstri grænna, á Facebook. Hann seg­ist hafa verið félagi í Samtökum hern­að­ar­and­stæð­inga frá því hann hafði aldur til, setið þar í mið­nefnd og skrifað í og verið í rit­nefnd Dagfara. 

„Ég hef ekki tölu á þeim mót­mælum gegn hern­að­ar­brölti sem ég hef tekið þátt í á ævinni og ég náði í skottið á Kefla­vík­ur­göng­unum. Ég áskil mér allan rétt til áfram­hald­andi mót­mæla og nú verða heima­tökin hæg, þar sem 400 her­menn verða á mínum heima­slóðum í Þjórs­ár­dal. Her­æf­ingar eru ekki spenn­andi leikur fólks með fram­úr­stefnu­leg tól. Þetta er æfing í að drepa annað fólk. Við, sem metum líf ann­arra, eigum að vera á móti slíku, enda á maður ekki að drepa annað fólk.“ Kolbeinn segir að æfingin á Íslandi sé afleið­ing af því að aðrir flokkar á Alþingi séu hlynntir áfram­hald­andi veru Íslands í NATO. „Ef fleiri tækju skýra afstöðu gegn hern­að­ar­banda­lag­inu, þá væru þessar morð­æf­ingar ekki reglu­lega haldnar hér á landi.“

Trufluðu her­æf­inguFjöldi frið­ar­sinna trufl­aði her­æf­ingu á Hengl­inum árið 2001.

Steinunn Þóra Árna­dóttir er einnig ósátt með her­æf­ing­una og birtir mynd sem tekin var fyrir 17 árum þegar hún og fleiri frið­ar­sinnar trufl­uðu her­æf­ingar sem haldnar voru í Hengl­inum. 

„And­staðan við stríð og her­mennsku er öðru fremur það sem rak mig út í póli­tík. Fátt er ógeð­felld­ara en her­æf­ingar – því þrátt fyrir það hvernig reynt er að kynna þær snú­ast þær þegar öllu er á botn­inn hvolft um það að æfa sig í því að drepa aðrar mann­eskjur,“ skrifar Steinunn og bætir því við að her­æf­ingar séu sóun á fjár­munum og hafi meng­andi og skað­leg áhrif á nátt­úru og líf­ríki. 

„Frá því að ég byrj­aði i póli­tík hef ég talað fyrir því að Ísland segi sig úr Nató. Því miður hefur það verið minni­hluta­sjón­ar­mið á þingi. Ég mun samt halda áfram að tala fyrir friði og gegn hern­að­ar­hyggju og því sem henni fylgir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár