Misheppnaðar fjárfestingar í samkeppnisrekstri skýri vanda Íslandspósts

Íslands­póstur fær 500 millj­óna fyr­ir­greiðslu frá rík­inu. Póst- og fjar­skipta­stofnun taldi ekki hægt að rekja rekstr­ar­vand­ann til alþjón­ustu­skyld­unnar og Félag atvinnu­rek­enda gagn­rýnir að Íslands­póstur nýti fjár­magn sem stafi frá einka­rétt­ar­var­inni starf­semi til nið­ur­greiðslu sam­keppn­is­rekstrar.

Misheppnaðar fjárfestingar í samkeppnisrekstri skýri vanda Íslandspósts

Fjár­mála­ráðu­neytið stað­festi í frétta­til­kynn­ingu á föstu­dag að ríkið ætli, með fyr­ir­vara um heim­ild í fjár­auka­lögum, að lána Íslands­pósti 500 millj­ónir króna til allt að 12 mán­aða vegna lausa­fjár­vanda fyr­ir­tæk­is­ins. Stundin greindi frá fyr­ir­hug­aðri lán­töku á mið­viku­dag.

Í frétta­til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins er rekstr­ar­vandi Íslands­pósts rak­inn sér­stak­lega til fækk­unar bréfa og lán­takan sögð þjóna þeim til­gangi að tryggja mögu­leika fyr­ir­tæk­is­ins til að standa undir svo­kall­aðri alþjón­ustu­skyldu. 

Fyrr á þessu ári gerði Póst- og fjar­skipta­stofnun sér­staka athuga­semd við ummæli í til­kynn­ingu frá Íslands­pósti þar sem rekstr­ar­vandi fyr­ir­tæk­is­ins var rak­inn til alþjón­ustu­skyld­unnar.

Bent var á að Íslands­pósti hefði verið bætt upp, í gegnum gjald­skrá félags­ins innan einka­réttar, allur sá við­bót­ar­kostn­aður sem alþjón­ustu­skyldan hefði í för með sér. „Að mati PFS eru því mögu­leg vanda­mál í tengslum við afkomu fyr­ir­tæk­is­ins ekki til­komin vegna þeirra skyldna sem hvílt hafa á fyr­ir­tæk­inu vegna alþjón­ustu á und­an­förnum árum,“ segir í ákvörð­un­inni sem var birt 18. jan­úar 2018, skömmu eftir að stjórn­endur Íslands­pósts til­kynntu um fækkun dreif­ing­ar­daga bréfa.

Í nýlegu hálfs­árs­upp­gjöri Íslands­pósts kom fram að fyr­ir­tækið hefði tapað 161,2 millj­ónum á fyrri helm­ingi árs­ins og áætlað væri að tekjur fyr­ir­tæk­is­ins drægjust saman um hátt í 400 millj­ónir árið 2018 vegna fækk­unar bréf­send­inga. Var full­yrt að ófjár­magn­aður kostn­aður vegna alþjón­ustu Íslands­pósts yrði 700 millj­ónir á þessu ári. „Íslands­póstur þarf á fjár­magni að halda til að við­halda rekstr­ar­fjár­munum sem og til að styrkja lausa­fjár­stöðu félags­ins. Þrátt fyrir aukna lán­töku und­an­farin ár er þörf á meira lausafé, allt að 500 m.kr., til að standa undir skuld­bind­ingum næstu mán­uð­ina og fyr­ir­sjá­an­legum tap­rekstri á yfir­stand­andi ári, m.a. vegna mik­illar fækk­unar bréfa, og hefur félagið leitað til rík­is­ins um fyr­ir­greiðslu vegna þess,“ segir í til­kynn­ing­unni sem fjár­mála­ráðu­neytið birti í gær.

Samkeppnisrekstur Íslandspósts borinn 
uppi af tekjum frá einkaréttarstarfsemi

Íslands­póstur, sem er að fullu í eigu rík­is­ins, hefur sætt harðri gagn­rýni und­an­farin ár vegna umsvifa fyr­ir­tæk­is­ins á sam­keppn­is­mörk­uðum. Hefur til að mynda Félag atvinnu­rek­enda gagn­rýnt að Íslands­póstur nýti fjár­magn sem stafar frá einka­rétt­ar­var­inni starf­semi til nið­ur­greiðslu sam­keppn­is­rekstrar. 

Ólafur Steph­en­senfram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda

„Tap Íslands­pósts er að okkar mati að lang­mestu leyti til­komið vegna mis­ráð­inna fjár­fest­inga í sam­keppn­is­rekstri, sem hefur ekk­ert með grunn­hlut­verk fyr­ir­tæk­is­ins að gera að tryggja almenn­ingi póst­þjón­ustu,“ segir Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, í sam­tali við Stundina.

Í grein­ingu sem Fjárstoð ehf. vann á fyr­ir­liggj­andi gögnum um rekstur Íslands­pósts árið 2016 kom fram að að sam­keppn­is­rekstri Íslands­pósts væri haldið á floti með aðgangi að fjármagni og eigin fé sem rekja mætti til rekstrar sem félli undir einkarétt.

„Afkoma og reikn­ingar dótturfélaga bera það með sér að rekstur þeirra hefur verið fjármagn­aður af móðurfélag­inu á sama tíma og sam­keppn­is­rekstur innan móðurfélags­ins er rek­inn með umtals­verðu tapi,“ segir í minn­is­blaði Fjár­stoðar, en grein­ingin var unnin fyrir Póst­mark­að­inn ehf., sam­keppn­is­að­ila Íslands­pósts, og Félag atvinnu­rek­enda. „Það er því ljóst að fjármögnun sam­keppn­is­rekstrar, hvort heldur er innan eða utan móðurfélags­ins, kemur í raun frá starf­semi í einkarétti eða verið er að ganga á eigið fé ÍSP, sem byggt hefur verið upp af þeirri starf­semi í gegnum tíðina. Draga má í efa að það sam­ræm­ist 16. gr. laga 19/2002 um póstþjónustu.“

„Það er því ljóst að fjármögnun sam­keppn­is­rekstrar, hvort heldur er innan eða utan móðurfélags­ins, kemur í raun frá starf­semi í einkarétti“

Ólafur Steph­en­sen bendir á að lán­takan sé háð heim­ild í fjár­auka­lögum. Nú gef­ist fjár­laga­nefnd gott tæki­færi til að fá ýmsar upp­lýs­ingar um rekstur fyr­ir­tæk­is­ins upp á yfir­borðið. 

Ísland er eina landið á Evrópska efna­hags­svæð­inu þar sem einka­réttur á póst­þjón­ustu hefur ekki verið felldur niður. Í fyr­ir­liggj­andi frum­varps­drögum Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, er lagt til að einka­réttur rík­is­ins verði afnum­inn og alpóst­þjón­usta veitt á mark­aðs­legum for­sendum í sam­ræmi við þriðju póst­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins.

Neituðu að svara spurningum um meðferð fjármuna

Félag atvinnu­rek­enda sendi stjórn Íslands­pósts ítar­legt erindi í nóv­em­ber 2017 og gerði athuga­semdir við við­skipta­hætti fyr­ir­tæk­is­ins. Þá óskaði félagið eftir gögnum um rekst­ur­inn, svo sem yfir­liti yfir raunaf­komu mis­mun­andi rekstr­ar­þátta. Stjórn Íslands­pósts varð ekki við upp­lýs­inga­beiðn­inni en svar­aði erind­inu með stuttu bréfi þar sem fram kom að farið hefði verið yfir málið með lög­manni fyr­ir­tæk­is­ins, stjórnin teldi ekk­ert hæft í „ávirð­ing­unum“ og lýsti yfir „fullum stuðn­ingi við for­stjóra og fram­kvæmda­stjórn Íslands­pósts“. 

 „Okkur finnst með nokkrum ólík­indum að póli­tískt skipuð stjórn fyr­ir­tækis í eigu skatt­greið­enda, sem meðal ann­ars er skipuð aðstoð­ar­manni fjár­mála­ráð­herra, neiti að svara mál­efna­legum spurn­ingum um með­ferð fjár­muna almenn­ings og sam­keppn­is­hætti fyr­ir­tæk­is­ins,“ segir Ólafur Steph­en­sen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár