42 létust vegna ofneyslu ópíóða síðustu þrjú ár

Ofneysla lyfseðils­skyldra lyfja hefur valdið fleiri dauðsföllum á Íslandi en ofneysla ólöglegra vímuefna. Voru ópíum­skyld lyf ástæða nær helmings andláta. Ofneysla örvandi lyfja dró 18 manns til dauða.

Ofneysla lyfja
Ofneysla lyfja 85 lét­ust á árunum 2015 til 2017 vegna ofneyslu lyfja. Mynd: Shutterstock

Á árunum 2015 til 2017 létust 42 manns á Íslandi vegna ofneyslu ópíum­skyldra lyfja. Lyfja­flokkurinn var sá lang­banvænasti á tíma­bilinu, en alls létust 85 manns vegna eitrana á tíma­bilinu samkvæmt upplýsingum úr dánameinaskrá embættis land­læknis. Ofneysla löglegra lyfseðils­skyldra lyfja olli fleiri dauðsföllum en ofneysla ólöglegra lyfja.

26 manns létust á tíma­bilinu vegna ópíum­skyldra lyfja á borð við morfín og kódein. Þá létust 16 til viðbótar vegna svokallaðra gervi ópíóða, en í þeim flokkum eru lyf á borð við Demerol, Tramadol, Fentanyl og lyf sem eru notuð í viðhalds­meðferð, svo sem methadone og buprenorphine.

Í nýjasta tölublaði Stundarinnar sem kom út í dag var fjallað um í aukningu á notkun ungs fólks á lyfseðils­skyldum lyfjum. Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu upplýsti í júlí um að 20 mannslát hafi verið til rann­sóknar þar sem lyfseðils­skyld lyf komu við sögu. Lyfja­teymi land­læknis hefur til skoðunar 29 mats­gerðir það sem af er ári þar sem greint er frá lyfjum eða efnum sem fundust í látnum einstaklingum.

18 manns létust vegna ofneyslu örvandi lyfja

Í dánarmeina­skrá kemur einnig fram að 13 manns létust á árunum 2015 til 2017 vegna örvandi efna í flokki amfetamíns og rítalíns (methylphenidat). 5 manns létust af ofneyslu kókaíns á tíma­bilinu. Sögulega séð hafa þessir flokkar lyfja verið þeir algengustu þegar kemur að neyslu í æð, en samkvæmt upplýsingum frá SÁÁ hefur neysla ópíum­skyldra lyfja í æð verið að aukast.

4 létust á tíma­bilinu vegna ofneyslu kvíða­stillandi lyfja í flokki benzodiazepine, en slík lyf eru meðal annars markaðs­sett undir nöfnunum Tafil, Rivotril, Mogadon, Lexotan og Diazepam. Enginn lést af notkun kannabis eða ofskynjunar­lyfja svo sem LSD eða psilocybin sveppa samkvæmt skránni. Upplýsingar úr dánarmeina­skrá það sem af er 2018 eru ekki fáanlegar frá embætti land­læknis. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár