Segja skrif Morgunblaðsins högg í andlit hinsegin samfélagsins

Víkverji Morg­un­blaðs­ins gefur í skyn að alnæm­is­far­ald­ur­inn á níunda ára­tugnum hafi ekki verið eins alvar­legur og talið var. Ber umræðu um alnæmi saman við lofts­lags­mál og segir alið á ótta án ástæðu.

Segja skrif Morgunblaðsins högg í andlit hinsegin samfélagsins
Högg í and­lit hinsegin fólks Skrifum Víkverja í Morg­un­blað­inu, um að alnæm­is­far­ald­ur­inn hafi kannski ekki verið eins alvar­legur og talið var, er lýst sem höggi í and­lit hinsegin fólks, nú rétt eftir Reykja­vík pride.

Í Víkverja Morg­un­blaðs­ins í dag er gefið í skyn að alnæm­is­far­ald­ur­inn sem skók sam­fé­lag hinsegin fólks á níunda ára­tugnum hafi ekki verið jafn alvar­legur og talið var. Skrifin hafa valdið mik­illi reiði margra og lýsir hinsegin fólk skrif­unum sem höggi í and­lit hinsegin sam­fé­lags­ins.

Í pistli Víkverja, sem er nafn­laus að venju, er því haldið fram að hættan af alnæmi sé virð­ist liðin hjá, lítið og sjaldan sé minnst á það. „Kannski var málið ekki jafn alvar­legt og talið var,“ segir í pistl­inum. Síðan tengir pistla­höf­undur beint úr skrifum sínum um alnæmi við það að alið sé á ótta í dag þegar kemur að lofts­lags­málum og spyr hvort ein­hver hafi af því hags­muni að „mark­aðs­setja ótt­ann og ósköpin?“

„Þessi Víkverji á umsvifa­laust að koma fram undir nafni og biðj­ast afsök­unar“

Lana Kolbrún Eddu­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Sam­tak­anna ´78, segir þessi skrif vera bylm­ings kjafts­högg fyrir þá sem lifðu AIDS-tím­ana, með allri sinni sorg. „Fjöl­skyldur sem horfðu á eftir korn­ungum ást­vinum í gröf­ina. Vinir úr hinsegin sam­fé­lag­inu sem reyndu af veikum mætti að styðja og hjúkra þeim sem voru að deyja. Svo ekki sé minnst á áhuga­leysi, for­dóma og illsku almenn­ings gagn­vart þeim sem smit­uð­ust. Ég er miður mín. Þessi Víkverji á umsvifa­laust að koma fram undir nafni og biðj­ast afsök­unar. Og svo það sé á hreinu þá hefur ekk­ert breyst varð­andi HIV og AIDS: ef þú veik­ist og færð ekki lyf, þá deyrðu. Þetta sár er óupp­gert í íslenskri sam­tíma­sögu.“

Skammarlegt að slá pólitískar keilur með þessum samanburði

Ragn­hildur Sverr­is­dóttir, fjöl­miðla­full­trúi og fyrr­ver­andi blaða­maður á Morg­un­blað­inu, sendi í dag póst til Morg­un­blaðs­ins þar sem hún for­dæmir skrif Víkverja harð­lega og fer fram á afsök­un­ar­beiðni í blað­inu. „Nei, mann­kynið þurrk­að­ist ekki út í einu vet­fangi, en alnæmið er skelfi­legur sjúk­dómur sem felldi svo marga af minni kyn­slóð. Því mun ég aldrei gleyma. Og ég - og annað hinsegin fólk - gerir þá kröfu til Morg­un­blaðs­ins að ekki sé vaðið yfir minn­ingu þeirra á skítugum skónum og það af ekki merki­legri ástæðu en að reyna að slá ein­hverjar póli­tískar keilur í lofts­lags­málum!“ skrifar Ragn­hildur.

„Þetta er engan veg­inn neitt sem er búið eða hefur verið blásið upp óþarf­lega mikið, það þarf stöðugt að vera fræðsla til staðar“

Einar Þór Jónsson, fram­kvæmda­stjóri HIV-Ísland, segir í sam­tali við Stundina að höf­undur Víkverja skrifi þarna af mik­illi van­þekk­ingu og bendir á að bara á síð­asta ári hafi 28 manns greinst með HIV-smit hér á landi.  Tugir manna hafi lát­ist af völdum alnæm­is­sjúk­dóms­ins frá því hann greind­ist fyrst á Íslandi. Þá hafa 35 millj­ónir manna um heim allan lát­ist úr alnæmi. „HIV er mjög alvar­legur sjúk­dómur og það hefur ekk­ert breyst í þeim efnum, ef fólk fær ekki lyf við sjúk­dómnum þá deyr það. Þetta er engan veg­inn neitt sem er búið eða hefur verið blásið upp óþarf­lega mikið, það þarf stöðugt að vera fræðsla til staðar. Þeir sem fá sjúk­dóm­inn þurfa að taka lyf á hverjum degi alla ævi þannig að þetta er ekki neitt gam­an­mál. Þessi skrif eru mikið ábyrgð­ar­leysi.“

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár