Íslendingar borga almennt meira fyrir heilbrigðisþjónustu

Yfirlýst mark­mið stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur er að íslenska heil­brigð­is­kerfið eigi að stand­ast sam­an­burð við það sem best ger­ist í heim­inum og að allir lands­menn eigi að fá notið góðrar þjón­ustu, óháð efna­hag og búsetu. Þegar kerfið er borið saman við hinar Norð­ur­landa­þjóð­irnar kemur í ljós að Íslend­ingar borga almennt meira fyrir lyf og þjón­ustu en þekk­ist þar.

Íslendingar borga almennt meira fyrir heilbrigðisþjónustu

Um sex pró­sent þeirra sem til­heyra tekju­lægstu tutt­ugu pró­sent­unum sleppa því að sækja sér þá lækn­is­þjón­ustu sem þeir telja sig þurfa. Þá sleppa rúm sautján pró­sent sama hóps því að fara til tann­læknis. Yfirlýst mark­mið stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur er að íslenska heil­brigð­is­kerfið eigi að stand­ast sam­an­burð við það sem best ger­ist í heim­inum og að allir lands­menn eigi að fá notið góðrar þjón­ustu, óháð efna­hag og búsetu. Þegar kerfið er hins vegar borið saman við það sem gengur og ger­ist á hinum Norð­ur­lönd­unum er ljóst að langt er í land að því mark­miði verði náð. Stundin fal­að­ist eftir við­tali við Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra við skrif þess­arar skýr­ingar en ekki var orðið við þeirri beiðni. Fyrr í sumar hafði DV óskað eftir við­tali en með sama árangri.

Kostnaðarþátttaka sjúklinga nær tvöfaldast

Á síð­ustu þremur ára­tugum hefur kostn­að­ar­þátt­taka sjúk­linga í heil­brigð­is­kerf­inu nær tvö­fald­ast og falla í dag um 20 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár