Hótel Adam lokað eftir umfjöllun Stundarinnar

Hótel Adam á Skóla­vörðu­stíg var lokað að kröfu sýslu­manns eftir umfjöllun Stund­ar­innar. Meðal ann­ars kom í ljós að hót­elið leigði út fleiri her­bergi en leyfi var fyrir.

Hótel Adam lokað eftir umfjöllun Stundarinnar

Alræmdasta hót­eli lands­ins, Hótel Adam, var lokað í gær að kröfu sýslu­manns eftir að upp komst um lög­brot á hót­el­inu. Lög­reglan afhenti for­s­manns­manni hót­els­ins bréf á föstu­dag­inn þar sem aðstand­endum hót­els­ins voru gefnar 48 klukku­stundir til að und­ir­búa lok­un­ina. Blaða­maður Stund­ar­innar veitti lög­reglu og emb­ætti sýslu­manns á höf­uð­borg­ar­svæð­inu upp­lýs­ingar um lög­brot fyrr sama dag.

Hótel Adam lokaðLokun lög­reglu á Hótel Adam var for­síðu­efni Frétta­blaðs­ins 24. júlí, en á mynd­inni sést Ragnar Guð­munds­son, eig­andi hót­els­ins, labba út úr hót­el­inu.

Í vett­vangs­heim­sókn Stund­ar­innar með eft­ir­litsteymi VR og Eflingar í síð­ustu viku kom í ljós að rekstr­ar­leyfi hót­els­ins var falið bak við vín­flöskur, en það er brot á lögum 85/2007 um veit­inga­staði, gisti­staði og skemmt­ana­hald. Starfs­maður hót­els­ins tjáði blaða­manni að 25 her­bergi væru í útleigu, en rekstr­ar­leyfi hót­els­ins heim­il­aði aðeins 18 gestum að gista þar.

Þann 20. júlí veitti blaða­maður Stund­ar­innar lög­reglu og emb­ætti sýslu­manns upp­lýs­ingar um lög­brot. Síðar sama dag afhenti lög­reglan for­svars­mönnum hót­els­ins bréf með til­kynn­ingu um að loka skyldi hót­el­inu eftir 48 klukku­stundir. Fjallað var um lokun hót­els­ins í kvöld­fréttum Stöðvar 2 og á  for­síðu Frétta­blaðs­ins í dag.

RÚV hefur eftir Sig­ur­birni Jónssyni, aðal­varð­stjóra hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að eig­andi hafi ekki rýmt hót­elið í tæka tíð. „Það var búið að gefa honum frest í fjöru­tíu og átta tíma en hann virð­ist hafa þurft meiri tíma,“ sagði Sig­ur­björn RÚV. Síðustu gestir fóru af hót­el­inu klukkan 11 í morgun.

Stundin hafði sam­band við Ragnar Guð­munds­son, eig­anda R. Guð­munds­son ehf sem rekur Hótel Adam, en hann sagð­ist ekki vilja ræða við Stundina. „Ég vil ekk­ert fara að segja við þig, því miður,“ sagði hann og lagði á.

Útrunnið rekstrarleyfi

Embætti sýslu­manns á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­festi við blaða­mann að R. Guð­munds­son ehf væri með umsókn um end­ur­nýjun á rekstr­ar­leyfi til með­ferðar. „Lög­reglu­stjóra ber án fyr­ir­vara eða aðvör­unar að stöðva rekstr­ar­leyf­is­skylda starf­semi sem fer fram án til­skil­ins leyfis skv. 23. gr. [áður­nefndra laga],“ sagði full­trúi emb­ætt­is­ins. Embættið gat ekki tjáð sig frekar um ein­stök mál.

Umsókn um end­ur­nýjun rekstr­ar­leyfis er háð jákvæðum umsögnum sveit­ar­stjórnar, slökkvi­liðs, heil­brigð­is­nefndar, bygg­ing­ar­full­trúa, vinnu­eft­ir­lits og lög­reglu. Eins og Stundin hefur fjallað um veittu emb­ætti bygg­ing­ar­full­trú­ans í Reykja­vík, heil­brigð­is­nefnd Reykja­víkur og slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins nei­kvæða umsögn við þess­ari beiðni. Vinnu­eft­ir­litið gerði ekki athuga­semd við leyf­is­veit­ing­una.

Umsóknin er ennþá til með­ferðar hjá emb­ætti sýslu­manns, og því ekki úti­lokað að hót­elið opni aftur síðar.

Fékk tæpar þrjár millj­ónir fyrir van­goldin laun

Fyrr­ver­andi lyk­il­starfs­maður hót­els­ins lýsti ömur­legum vinnu­að­stæðum sínum í for­síðu­við­tali Stund­ar­innar þar sem hún var ítrekað nið­ur­lægð og svikin. Hún vann mál í hér­aðs­dómi gegn R. Guð­munds­son sem var gert að greiða henni tæpar þrjár milljón krónur í van­goldin laun. Hún sagði blaða­manni að miðað við fram­komu og við­skipta­hátta Ragnars ætti honum: „Ekki að vera leyft að reka hótel.“

Nánar er fjallað um mál­efni hót­els­ins í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár