Landlæknir segir hættu geta skapast á Landspítala vegna kjaradeilu ljósmæðra

Ekki þarf mikið út af að bregða til að hætta geti skap­ast á Land­spít­al­anum, að mati land­læknis. Yfir­vinnu­bann ljós­mæðra mun gera stöð­una enn erf­ið­ari. Samn­inga­nefndir „standi ekki upp“ fyrr en búið sé að leysa kjara­deil­una.

Landlæknir segir hættu geta skapast á Landspítala vegna kjaradeilu ljósmæðra
Ljós­mæður Yfir­vinnu­bann ljós­mæðra tekur gildi í vik­unni. Mynd: Shutterstock

Ekki má mikið út af bregða til að hætta skap­ist á Land­spít­al­anum vegna kjara­deilu ríkis og ljós­mæðra, að mati land­læknis. Yfir­vinnu­bann ljós­mæðra tekur gildi um miðja viku og mun staðan verða erf­ið­ari í fram­hald­inu.

Alma D. Möller land­læknir birti pistil um málið á vef emb­ætt­is­ins í dag. „Báðir aðilar verða að hugsa lausn­a­miðað og koma sér upp úr þeim hjól­förum sem deilan virð­ist föst í,“ skrifar Alma. „Óásætt­an­legt er að láta tvær vikur líða milli funda, til þess er allt of mikið undir sem er heilsa mæðra og nýbura. Brýnt er að samn­inga­nefndir ríkis og ljós­mæðra setj­ist saman að borð­inu, gjarnan með aðkomu rík­is­sátta­semj­ara og standi ekki upp fyrr en búið er að leysa hnút­inn og enda þessa deilu.“

Alma segir að heil­brigð­is­kerfið glími enn við afleið­ingar verk­fall­anna 2014-2015, sem séu meðal ann­ars biðlistar, ónóg mönnun og óánægja vissra starfs­stétta. „Ein­hverjir hafa varpað fram þeirri spurn­ingu hvort bregð­ast ætti við með laga­setn­ingu,“ skrifar Alma. „Það kann að leysa mönnun ein­hverra vakta til skemmri tíma litið. Líklegt er hins­vegar að laga­setn­ing skapi enn meiri óánægju meðal ljós­mæðra og bitni enn frekar á mönnun til lengri tíma litið.“

„Má engan mann missa“

Alma segir alla tapa á deil­unum og hætt sé við að ljós­mæður sem þegar hafi sagt upp snúi ekki til baka þótt samn­ingar náist. „Staðan í heil­brigð­is­kerf­inu er þannig að það má engan mann missa,“ skrifar Alma. „Ljós­mæður sinna fjöl­breyttum og vax­andi verk­efnum. Þær eiga stóran þátt í því að við Íslend­ingar erum með mæðra- og burð­ar­máls­dauða eins og lægst þekk­ist.“

Land­læknir segir það ítar­legri aðgerða­á­ætlun Land­spít­al­ans að þakka að staðan sé ekki verri. Val­kvæðum keis­ara­að­gerðum og fleiri verk­efnum hafi verið beint á sjúkra­húsin á Akranesi og Akureyri og aðrar stofn­anir.  Brýna þurfi jafn­framt fyrir konum að þær hiki ekki við að leita eftir þjón­ustu á Land­spít­ala ef þörf krefur, þrátt fyrir stöð­una.

„Það er mat Embættis land­læknis að ekki megi mikið út af bregða til að hætta skap­ist,“ skrifar Alma. „Ekki er vitað hvenær næsti álagstoppur kemur - en slíkir toppar koma. Aldrei er hægt að sjá alla hluti fyrir, það er hið óvænta sem er mesta áskor­unin fyrir starfs­fólkið í heil­brigð­is­kerf­inu. Augljóst er að róð­ur­inn þyng­ist sífellt eftir því sem tím­inn líður. Bæði þreyt­ast þeir sem þurfa að vinna langt umfram vinnu­skyldu auk þess and­lega álags sem fylgir slíkum aðgerðum, slíkt skal ekki van­meta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár