Talið að hvalveiðimenn hafi skotið fágætan hval við Ísland um helgina

Afkvæmi lang­reyðar og steypireyðar er talið hafa verið veitt af hval­veiði­skipi Hvals hf. aðfar­arnótt sunnu­dags síð­ustu helgi. Haf­rann­sókn­ar­stofnun og Fiski­stofa eru með málið til skoð­unar og verða gerð DNA-próf á dýr­inu.

Talið að hvalveiðimenn hafi skotið fágætan hval við Ísland um helgina
Hvalinum landað. Kristján Loftsson, for­stjóri Hvals hf., virðir fyrir sér dýrið. Mynd: Seashepard

Talið er að afar fágætur hvalur hafi verið veiddur við Íslands­strendur og landað í Hval­firði aðfar­arnótt sunnu­dags. Sér­fræð­ingar telja lík­legt að um sé að ræða blend­ing lang­reyðar og steypireyðar en slík pörun er sjald­gæf í nátt­úr­unni þó hún þekk­ist.

Lang­reyður og steypireyður er tvær stærstu teg­undir dýra í heim­inum. Þá hefur ekki verið úti­lokað að hval­ur­inn sem veiddur var sé steypireyður en sú teg­und hvala hefur verið friðuð við Íslands­strendur síðan árið 1960.

Það voru dýra­vernd­ar­sam­tök­unin Hard to port sem vöktu athygli á mál­inu en þau eru hér stödd hér á landi til þess að gera heim­ild­ar­mynd um hval­veiðar Íslend­inga. Samkvæmt sam­tök­unum var dýrið veitt af hval­veiði­skipi Hvals hf. um helg­ina. Málið er nú komið á borð Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar og Fiski­stofu. 

Hvalur hf, sem gerir út tvö hval­veiði­skip, Hval 8 og Hval 9, ákvað í vor að hefja hval­veiðar að nýju eftir tveggja ára hlé. 

Mynd frá Hard to port

„Af útlit­inu að dæma, myndum sem ég hef séð og því sem starfs­maður okkar sá þarna upp frá þá finnst mér lík­leg­ast að þetta sé blend­ingur lang­reyðar og steypireyðar. Við höfum séð fimm til sex slíka hvali áður, sem er í sjálfu sér mjög merki­legt líf­fræði­lega,“ segir Gísli Arnór Vík­ings­son, sjáv­ar­líf­fræð­ingur hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun. 

„Við höfum séð fimm til sex slíka hvali áður“

Að sögn Gísla verður fram­kvæmd DNA-rann­sókn á sýnum úr dýr­inu í haust og því verður ekki skorið end­an­lega úr um hvaða teg­und dýrið er fyrr en þá.

Ákveðin útlitsein­kenni lang­reyðar og steypireyðar eru á dýr­inu þó að það megi segja að þetta dýr af þessum fimm, sex sem við þekkjum, hafi heldur meiri ein­kenni steypreyðar en hinir. Lang­reyð­urin er alveg skjanna­hvít á lit á kviðnum en þetta dýr er til dæmis með grá­leitan kvið. Sum ein­kenni dýrs­ins eru lang­reyð­ar­leg og í heild er þetta dýr frekar líkt þeim kyn­blend­ingum sem við höfuð séð áður,“ segir Gísli. 

Mynd frá Hard to port.

Veiðar á blendingum áður valdið deilum

Árið 1986 varð fyrst vart við blend­ing lang­reyðar og steypireyðar í nátt­úr­unni hér við Íslands­strendur. Blend­ing­ur­inn var veiddur og með honum tókst að sýna fram á í fyrsta skipti kyn­blöndun stórra hvala. Annar þeirra veidd­ist hér á landi árið 1989 og end­aði meðal ann­ars hval­kjöt úr honum í stór­mark­aði í Osaka í Japan. Banda­rískir vís­inda­menn gagn­rýndu Íslend­inga harð­lega í kjöl­far veið­anna. Þá var þáttur sýndur á National Geographic-sjón­varp­stöð­inni fyrir um tíu árum sem fjall­aði um sömu veiðar.

Í þætt­inum sem heitir Kon­ungs­ríki steypireyð­ar­innar voru Íslend­ingar útmál­aðir sem sið­lausir umhverf­is­þrjótar fyrir að hafa drepið blend­ing­inn og selt kjötið til Japans.

Dýra­vernd­un­ar­sam­tökin Hard to port sem vöktu athygli á veið­inni krefj­ast þess að veið­arnar hafi afleið­ingar. „Ef ályktun okkar reyn­ist rétt, þá munum við tryggja það að þetta muni hafa alvar­legar afleið­ingar í för með sér fyrir Kristján Loftsson og fyr­ir­tæki hans,“ segir í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum.

Steypireyð­urin var ofveidd á síð­ustu öld og fækk­aði gríð­ar­lega í stofn­inum. Nú er talið að heild­ar­fjöldi dýra sé á bil­inu 6.500 til 14.000 og er því teg­undin talin vera í útrým­ing­ar­hættu. Þá hefur dýrið verið alfriðað frá árinu 1966 en talið er að um þús­und steypireyða haldi sig nærri Íslands­ströndum.

Mynd frá Hard to port.

Yfir tuttugu hvalir veiddir

Morg­un­blaðið greindi frá því í gær að 22 lang­reyðar hefðu verið skotnar og veiddar frá því veiðar hófust að nýju eftir tveggja ára 20. júní síð­ast­lið­inn. Haft er eftir Krist­jáni Lofts­syni, for­stjóra Hvals hf, í Morg­un­blað­inu að mest veiði hefði verið suð­vestur af Garð­skaga. Heimild er til þess að veiða tæp­lega 200 lang­reyðar á þessu ári og sagði Kristján að fyr­ir­ætl­anir væru um að flytja kjötið til Japan.

Stundin hefur fjallað um við­var­andi tap­rekstur á hval­veiði­út­gerð Krist­jáns, en hann hefur ekki viljað svara spurn­ingum Stund­ar­innar. 

Horfur eru á því að rík­is­stjórn Íslands þurfi að taka afstöðu til áfram­hald­andi hval­veiða á næst­unni, þar sem reglu­gerð frá 2014 sem heim­ilar hval­veiðar við Ísland rennuur út á næsta ári. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í sam­tali við Stundina að hún hefði efa­semdir um hval­veiðar. Að hennar mati eigi „öll auð­linda­nýt­ing að vera sjálf­bær, umhverf­is­lega, sam­fé­lags­lega og efna­hags­lega“ og því sé „lyk­il­at­riði að áður en ákvörðun verður tekin um það hvort áfram eigi að heim­ila veiðar á lang­reyði, fari fram slíkt mat, þ.e. mat á umhverf­is­legum, sam­fé­lags­legum og efna­hags­legum áhrifum hval­veiða.“

Stundin greindi frá því í síð­ustu viku að föð­ur­bróðir fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sé orð­inn stjórn­ar­for­maður Hvals ehf. Föð­ur­bróð­ir­inn, Einar Sveins­son, á lít­inn hlut í Hval hf. í gegnum félag sitt í Lúx­em­borg. Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, hefur lagst gegn því að hval­veiði­stefna Íslands verði end­ur­skoðuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár