Borga fimm milljarða fyrir eldislaxkvóta í Noregi en ekkert á Íslandi

Móður­félag íslenska laxeldis­fyrir­tækisins Arnarlax keypti rúmlega 2.000 tonna laxeld­isk­vóta í Noregi fyrir tæpa 5 milljarða. Arnarlax fram­leiðir 8.000 tonn á Íslandi og greiðir ekkert til íslenska ríkisins fyrir laxeldis­leyfin.

Gjaldtaka ekki tímabær
Gjald­taka ekki tíma­bær Einar Kr. Guð­finns­son, starf­andi stjórn­ar­for­maður hags­muna­sam­taka eld­is­fyr­ir­tækja, telur ekki tíma­bært að inn­heimta gjald fyrir lax­eld­is­leyfi á Íslandi. Einar var áður þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­seti Alþingis. Mynd: pressphotos.biz

Norskt móður­félag íslenska laxeldis­fyrir­tækisins Arnarlax, Salmar AS, greiddi tæplega 4,9 milljarða króna til norska ríkisins fyrir leyfi til að framleiða 2.132 tonn af eldislaxi í Noregi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Salmar AS til norsku kaup­hallarinnar en laxeldis­fyrirtækið er skráð á hlutabréfa­markaðinn í Noregi og þarf að tilkynna um öll slík viðskipti. 

Laxeldis­leyfin voru keypt á uppboði á laxeldis­leyfum sem norska ríkið hélt og sem lauk þann 20. júní síðastliðinn. Uppboðið var haldið til að norska ríkið gæti fengið sem hæst verð fyrir ný framleiðslu­leyfi á eldislaxi þar sem útgáfa nýrra leyfa hefur verið takmörkuð í Noregi á síðustu árum vegna umhverfis­áhrifa laxeldisins. 

Nærri 20 milljarða króna tekjur

Verður af millj­örðumÍslenska ríkið verður af millj­örðum sökum þess að ekki er rukkað fyrir leyfi vegna lax­eldis.

Þessi fram­leiðsla á eldislaxi er um það bil 1/4 hluti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár