Dagur áfram borgarstjóri í nýjum meirihluta

Full­trúar Við­reisnar verða for­maður borg­ar­ráðs og for­seti borg­ar­stjórnar. Nýr meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Vinstri grænna og Pírata var kynntur við Breið­holts­laug í dag. Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna, raulaði „Imperial March“, stef Darth Vader úr Star Wars mynd­unum og upp­skar mik­inn hlátur við­staddra.

Dagur áfram borgarstjóri í nýjum meirihluta
Dagur B. Egg­erts­son Dagur hefur verið borg­ar­stjóri frá 2014. Mynd: Samfylkingin

Nýr meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Vinstri grænna og Pírata í borg­ar­stjórn var kynntur í dag við Breið­holts­laug og meiri­hluta­sátt­máli und­ir­rit­aður. „Okkar leyni­lega mark­mið er að það muni ekki sjást frá degi til dags eða frá mán­uði til mán­aðar hver kemur úr hvaða flokki,“ sagði Dagur B. Egg­erts­son, sem verður áfram borg­ar­stjóri.

„Það er frekar lítið sem sundrar okkur,“ sagði Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar. Hún verður for­maður borg­ar­ráðs á kjör­tíma­bil­inu.

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, verður for­maður mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­ráðs og Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir úr sama flokki verður for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs. Dóra Björt verður for­seti borg­ar­stjórnar fyrsta ár kjör­tíma­bils­ins, en Pawel Bartoszek úr Viðreisn tekur í kjöl­farið við.

Darth VaderIll­mennið í Star Wars mynd­unum er kynnt til sög­unnar með drunga­legu stefi.

„Við erum að mynda breiðan og frjáls­lyndan félags­hyggju meiri­hluta,“ sagði Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna. Hún verður vara­for­maður borg­ar­ráðs og for­maður nýs ráðs, svo­kall­aðs umhverfis- og heil­brigð­is­mála­ráðs. Hún …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

Hagsmunatengsl borgarfulltrúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga
ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.
Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðjusamstarfi en myndaði atkvæðablokk með Sjálfstæðisflokknum
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár