Velta Airbnb leigusala sexfaldaðist á þremur árum

Tæpar tvær millj­ónir gistin­átta voru seldar í gegnum Airbnb og sam­bæri­legar vef­síður á Íslandi í fyrra. Velta þeirra hefur sexfald­ast á þremur árum, á meðan velta hót­ela tæp­lega tvö­fald­að­ist.

Velta Airbnb leigusala sexfaldaðist á þremur árum
Miðborg Reykja­víkur Flestar Airbnb íbúðir er að finna í mið­borg Reykja­víkur. Mynd: Shutterstock

Tekjur af Airbnb gist­ingu á Íslandi voru 14,7 millj­arðar króna árið 2017. Tæpar tvær millj­ónir gistin­átta voru seldar, en auk þess áttu erlendir ferða­menn um 850 þús­und gistinætur sem ekki var greitt sér­stak­lega fyrir. Þetta kemur fram í gögnum sem Hag­stofan birti í dag.

Árið 2014 var velta Airbnb gist­ingar á Íslandi 2,5 millj­arðar króna og hefur því veltan sexfald­ast á þremur árum. Velta hót­ela á gisti­heim­ila nær tvö­fald­að­ist á sama tíma­bili, úr 51,9 millj­örðum króna í 94,3 millj­arða. Helm­ingur gistin­átta árið 2017 var á hót­elum og gisti­heim­ilum, 19% í gegnum Airbnb og sam­bæri­legar síður og 8,5% í bílum utan tjald­stæða, í húsa­skiptum eða með öðrum slíkum hætti.

Virð­is­auka­skyld velta í gisti­starf­semi, í millj­ónum kr. 2014 2015 2016 2017
Velta hót­ela og gisti­heim­ila 51.890 62.516 85.242 94.345
Velta leigu­sala sem nota Airbnb¹ 2.503 5.524 11.803 14.697

307 þúsund gistinætur á þessu ári

Tölur Hag­stof­unnar byggj­ast á virð­is­auka­skatt­skilum, en sam­kvæmt lögum ber aðilum sem kaupa raf­ræna þjón­ustu hér­lendis að greiða virð­is­auka­skatt af henni. Airbnb og aðrar slíkar þjón­ustur inn­heimta og standa skil á þeim virð­is­auka­skatti. Telur Hag­stofan því gögnin vera með þeim áreið­an­legri þegar kemur að því að fylgj­ast með virkni skamm­tíma­leigu­mark­að­ar­ins.

Á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018 voru gistinætur ferða­manna í gegnum Airbnb og sam­bæri­legar síður 307 þús­und. Tölur Hag­stof­unar eru enn ekki aðgreindar eftir land­svæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Leigumarkaðurinn

Telja mikið eignarhald hagnaðardrifinna leigufélaga skýra skarpar verðhækkanir á Suðurnesjum
FréttirLeigumarkaðurinn

Telja mikið eign­ar­hald hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga skýra skarpar verð­hækk­anir á Suð­ur­nesjum

Leigu­verð heldur áfram að hækka víð­ast hvar á land­inu sam­kvæmt nýjasta mán­að­ar­riti Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unnar. Athygli vekur að verð fyrir leigu­í­búðir á Suð­ur­nesjum hefur hækkað óvenju hratt á síð­ustu sex mán­uðum. Telja skýrslu­höf­undar að það megi rekja til óvenju hás hlut­falls leigu­í­búða í eigu ein­stak­linga og hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga.
Óheyrilegar verðhækkanir á leigumarkaði: „Þeir eru eins og óðir hanar í mannaskít“
NeytendurLeigumarkaðurinn

Óheyri­legar verð­hækk­anir á leigu­mark­aði: „Þeir eru eins og óðir hanar í manna­skít“

Aug­lýs­ing sem birt­ist á fast­eigna­vefnum Igloo hefur vakið mikla athygli og umræðu. Þar er fjög­urra her­bergja íbúð í Reykja­vík aug­lýst til leigu fyrir 550.000 krónur á mán­uði. Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­tak­anna, segir stöð­una vera grafal­var­lega. Hann segir mörg heim­ili á leigu­mark­aði búi í dag við grimmi­lega og kerf­is­bundna fjár­kúgun.
Staða fjölskyldna á leigumarkaði hríðversnar milli ára
FréttirLeigumarkaðurinn

Staða fjöl­skyldna á leigu­mark­aði hríð­versnar milli ára

Samkvæmt nið­ur­stöðum leigukönn­unar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar versn­aði samn­ingstaða leigj­enda gagn­vart leigu­sölum umtals­vert milli áranna 2022 og 2023. Könnunin bendir einnig þess að bæði hafi leigu­verð hækkað og fram­boð á hús­næði við hæfi dreg­ist saman milli ára. Þróunin leggst þyngst á fjöl­skyldur sem bjuggu við þrengri kost árið 2023 í sam­an­burði við árið 2022.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár