Staðfest að Stundin og Reykjavík Media þurfa ekki að afhenda Glitni gögn

Lands­réttur stað­festir ákvörðun Hér­aðs­dóms Reykja­víkur.

Staðfest að Stundin og Reykjavík Media þurfa ekki að afhenda Glitni gögn
Kröfum Glitnis hafnað Stundin og Reykja­vik Media þurfa ekki að afhenda Glitni HoldCo gögn. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lands­réttur hefur stað­fest ákvörðun Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í máli Glitnis HoldCo gegn Útgáfu­fé­lag­inu Stund­inni og Reykja­vik Media um að fjöl­miðl­unum beri ekki skylda til að afhenda gögn sem fjöl­miðl­arnir hafa undir höndum, hvorki gögn um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, skyld­menna hans og fleiri við­skipta­vina Glitnis né önnur gögn sem Glitnir telur eiga upp­runa sinn í bank­anum. 

Glitnir HoldCo, sem er eign­ar­halds­fé­lag sem heldur utan um eignir úr þrota­búi Glitnis, kærði ákvörðun Hér­aðs­dóms um að vísa frá kröfu um að Stundin og Reykja­vík Media afhentu gögn sem Glitnir taldi fjöl­miðl­ana hafa undir höndum til Lands­réttar.

Glitnir HoldCo gerði kröfu fyrir hér­aðs­dómi um að fjöl­miðl­arnir afhentu öll skjöl, á raf­rænu formi eða öðru, sem væru úr fórum Glitnis. Til vara var gerð krafa um að afhent yrðu 1.013 skjöl, sem til­greind voru með skrá­ar­heitum fyrir hér­aðs­dómi. Fyrir Lands­rétti krafð­ist Glitnir HoldCo þess að ákvörðun hér­aðs­dóms yrði felld úr gildi og kröf­urnar teknar til með­ferðar.

Vísað var til laga um einka­mál í þessum efnum. Í þeim kemur hins vegar skýrt fram að kröfur um afhend­ingu gagna með þessum hætti verði að vera þannig úr garði gerðar að alveg skýrt sé hvað beri að afhenda.

Í úrskurði Lands­réttar kemur fram að slíku hafi ekki verið til að dreifa varð­andi kröfu Glitnis HoldCo, þar sem farið var fram á að fjöl­miðl­unum yrði gert að afhenda öll skjöl sem ættuð væru innan úr Glitni. Hvað varðar vara­kröfu Glitnis HoldCo, þar sem til­tekin eru 1.013 skjöl með skrá­ar­nöfnum, er um að ræða gögn sem saka­mála­rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara hefur beinst að.

Á meðal skrá­ar­heit­anna sem upp eru talin í kröf­unni er skjal sem ber heitið „1eng­ey­ingar.pdf“, fjöldi skjala er varða sér­stak­lega við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og einnig skjöl um fjár­mál dóm­ara. Samkvæmt bréfi hér­aðs­sak­sókn­ara, sem lagt var fyrir Lands­rétt í mál­inu, er um að ræða rann­sókn á minnis­lykli sem inni­hélt „gögn sem talið er að hafi verið miðlað með ólög­mætum hætti m.a. til fjöl­miðla“.

Í úrskurði Lands­dóms kemur hins vegar fram að ekk­ert liggi fyrir um að þau 1.013 gögn sem Glitnir HoldCo fer fram á að Stundin og Reykja­vik Media afhendi séu sömu gögn og fjömiðl­arnir hafa undir höndum og hafa unnið fréttir úr.

Því féllst Lands­réttur ekki á kröfur Glitnis HoldCo og stað­festi ákvæði hér­aðs­dóms um að vísa frá kröfum um að fjöl­miðl­unum beri að afhenda gögn.

Fyr­ir­vari: Fjöl­mið­ill­inn Stundin er aðili dóms­máls­ins sem hér er fjallað um og hefur hags­muna að gæta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár