Studdu ráðherra af ótta við að „Sjálfstæðisflokkurinn gengi frá ríkisstjórnarborðinu“

Líf rík­is­stjórn­ar­innar veltur á því að Sigríður Andersen fái að sitja áfram á ráð­herra­stóli að mati Lilju Raf­n­eyjar Magn­ús­dóttur og Bjarkeyjar Olsen Gunn­ars­dóttur, þing­kvenna Vinstri grænna.

Studdu ráðherra af ótta við að „Sjálfstæðisflokkurinn gengi frá ríkisstjórnarborðinu“

„Rík­is­stjórnin er fallin ef þessi van­traust­til­laga er sam­þykkt það veit stjórn­ar­and­staðan mæta vel !“ Þetta segir Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­kona Vinstri grænna í athuga­semd á Facebook, þar sem hún bregst við gagn­rýni Láru Hönnu Ein­ars­dóttur á stuðn­ing Vinstri grænna við Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra. 

Sams konar ummæli komu fram í ræðu Lilju Raf­n­eyjar á Alþingi áðan, en þar lýsti hún áhyggjum af því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi ganga frá rík­is­stjórn­ar­borð­inu ef  van­traust­s­til­lagan gegn dóms­mála­ráð­herra yrði sam­þykkt á Alþingi. 

„Það er aug­ljóst að sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi ganga frá rík­is­stjórn­ar­borð­inu það vita þeir sem vilja vita,“ segir Lilja einnig á Facebook. „Þeir sem vilja að rík­is­stjórnin fari frá styðja þessa van­traust­til­lögu með aug­ljósum afleið­ingum. Ég styð minn for­sæt­is­ráð­herra heils­hugar til þess að leiða þessa rík­is­stjórn til góðra verka.“ 

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, tók undir þessa skýr­ingu Lilju Raf­n­eyjar í ræðu sinni síðar í umræð­unum og sagði meiri­hluta þing­flokks Vinstri grænna líta svo á að verja yrði Sigríði van­trausti til að bjarga rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.

„Níu þing­menn Vinstri grænna meta það svo að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið sé undir ef van­traust verður sam­þykkt. Við myndum líta þannig á ef málið sneri að okkur. Annað er ein­földun á póli­tík­inni að mínu mati,“ sagði Bjarkey.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár