Houssin ekki fylgdarlaust ungmenni við komuna til landsins

Útlend­inga­stofnun leið­réttir rang­færslur í frétta­flutn­ingi af máli Houssin Bsraoui. Houssin, sem varð fyrir alvar­legri lík­ams­árás á Litla Hrauni, var sendur aftur til Marokkó í fyrra­dag.

Houssin ekki fylgdarlaust ungmenni við komuna til landsins
Houssin Bsraoui hefur verið fluttur úr landi. Mynd: Facebook

Útlend­inga­stofnun hefur sent frá sér til­kynn­ingu vegna frétta­flutn­ings af Houssin Bsraoui, ungs hæl­is­leit­enda frá Marokkó, sem fluttur var úr landi í fyrra­dag. Houssin varð fyrir alvar­legri lík­ams­árás á Litla Hrauni í síð­asta mán­uði. 

Í til­kynn­ingu Útlend­inga­stofn­unar segir meðal ann­ars að í fjöl­miðlum í gær hafi komið fram að Houssin sé 18 ára, en það sé rangt. „Við und­ir­bún­ing flutn­ings til heima­lands stað­festu yfir­völd í Marokkó auð­kenni manns­ins og gáfu út tíma­bundin ferða­skil­ríki fyrir hann, þar sem fram kemur rétt nafn manns­ins og aldur. Hann er fæddur árið 1996 og var því ekki fylgd­ar­laust ung­menni við kom­una til lands­ins árið 2016,“ segir í til­kynn­ingu Útlend­inga­stofn­unar. 

Í fréttum kom einnig fram að vinir og vel­unn­arar Houssins hafi ekki vitað af brott­flutn­ingnum fyr­ir­fram, og ekki heldur Rauði kross­inn, en sam­kvæmt Útlend­inga­stofnun var öllum hlut­að­eig­andi ljóst að flutn­ingur yrði fram­kvæmdur á næst­unni. Endanleg nið­ur­staða hafi legið fyrir um að honum bæri að yfir­gefa landið og hafði Útlend­inga­stofnun óskað eftir flutn­ingi hans við stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra.

„Samkvæmt upp­lýs­ingum frá stoð­deild var mann­inum boðið að haft yrði sam­band við verj­anda hans eða aðra þegar hann var upp­lýstur um ferða­á­ætlun, eins og venja er við und­ir­bún­ing flutn­ings full­orð­inna ein­stak­linga úr landi. Maðurinn óskaði ekki eftir því að haft yrði sam­band við neinn fyrir sína hönd og var það því ekki gert. Hann hafði aðgang að síma til að geta sjálfur haft sam­band við þá sem hann vildi,“ segir jafn­framt. 

Í við­tali við RÚV í gær sagði Guðríður Lára Þrast­ar­dóttir, tals­maður hæl­is­leit­enda hjá Rauða krossi Íslands, ekki algengt að hæl­is­leit­endur væru fluttir úr landi þegar sótt hefði verið um end­ur­upp­töku mála líkt og í til­felli Houssins. Í til­kynn­ingu Útlend­inga­stofn­unar segir hins vegar að beiðni um end­ur­upp­töku fresti ekki rétt­ar­á­hrifum fyr­ir­liggj­andi ákvörð­unar. „Full­yrð­ingar í fjöl­miðlum um að það hafi verið venjan hingað til að beiðni um end­ur­upp­töku fresti fram­kvæmd flutn­ings eru rangar. Útlend­inga­stofnun óskar aðeins eftir því við stoð­deild að flutn­ingi sé frestað vegna fram­kom­innar end­ur­upp­töku­beiðni til kæru­nefndar útlend­inga­mála ef nefndin óskar eftir því við Útlend­inga­stofnun. Sama verk­lag var við­haft í þessu máli og öðrum.“

Kvaðst ekki eiga afturkvæmt til fjölskyldu sinnar

Houssin Bsraoui sótti um alþjóð­lega vernd hér á landi þann 7. sept­em­ber 2016 hjá lög­reglu­stjór­anum á Aust­fjörðum. Þá hafði íbúi á Breið­dals­vík orðið var við tvo drengi sem höfðu hreiðrað um sig í yfir­gef­inni bif­reið. Sögðust þeir ætla að hjóla til Reykja­víkur. Annar þeirra var Houssin. Kvaðst hann vera fæddur árið 1999, og því undir 18 ára aldri. Gögn sem Útlend­inga­stofnun fengu send frá yfir­völdum í Marokkó segja hins vegar að hann sé fæddur 1996. 

Umsóknin um alþjóð­lega vernd var byggð á því að Houssin væri í hættu í heima­ríki sínu vegna vanda­mála sem upp hafi komið milli hans og þess vina­hóps sem hann til­heyrði og ann­ars hóps í heima­bænum hans Saleh. Hann byggi við óásætt­an­legar félags­legar aðstæður yrði honum gert að flytj­ast aftur til heima­lands­ins. Í við­tölum hjá Barnas­húsi sagð­ist Houssin hafa hætt í skóla eftir 6. bekk því for­eldrar hans hafi ekki haft efni á því lengur og þá hafi verið gerð krafa um að hann færi að vinna. Hann seg­ist hafa unnið í hálft ár, en yfir­gefið heima­land sitt í kjöl­farið. Hann sagði mikla stétta­skipt­ingu vera í Marokkó og þá helst milli þeirra sem ættu pen­inga og þeirra sem ættu þá ekki. Fjöl­skylda hans væri nálægt botn­inum. 

Síðar greindi Houssin frá því að hann ætti ekki aft­ur­kvæmt til fjöl­skyldu sinnar í Marokkó þar sem faðir hans hefði marg­sinnis rekið hann af heim­il­inu. Hann sagði föður sinn beita móður hans ofbeldi og hafði Houssin átt í úti­stöðum við föður sinn vegna þess.

Houssin kvaðst hafa farið frá Marrokkó til Spánar, þaðan til Frakk­lands, frá Frakk­landi til Þýska­lands, þaðan til Dan­merkur og loks þaðan til Íslands. Hann smyglaði sér frá Danmörku til Íslands með því að fela sig undir gámi, eða bíl sem flutti gám, um borð í Norrænu. 

Í ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar um að synja honum um alþjóð­lega vernd segir að ljóst sé að Houssin sé í við­kvæmri stöðu. Hann var met­inn full­orð­inn í ald­urs­grein­ingu, en naut hins vegar vafans við með­ferð máls­ins hjá Útlend­inga­stofnun varð­andi aldur sinn og var því álit­inn barn að aldri. Hins vegar liggi fyrir að hann hafi lagt í ferða­lag sitt af efna­hags­legum ástæðum og að hann eigi fjöl­skyldu og heim­ili í Marokkó. Þess má geta að í umsögn Barna­vernd­ar­stofu segir einnig að það sé mat stofn­un­ar­innar að það þjóni best hags­munum Houssin að hann fari aftur til heima­lands síns, þar sem hann eigi sinn upp­runa og fjöl­skyldu. 

Erfið ár á Íslandi

Houssin hafði dvalið á Íslandi í nær eitt og hálft ár þegar hann var fluttur aftur til Marokkó í fyrra­dag. Þar sem hann sótti um alþjóð­lega vernd hjá lög­regl­unni á Egils­stöðum var hann í umsjá barna­vernd­ar­yf­ir­valda í Fjarða­byggð. Barna­vernd­ar­yf­ir­völd höfðu hins vegar ekki útvegað honum skóla­vist, atvinnu eða fóst­ur­fjöl­skyldu þrátt fyrir að hafa dvalið á land­inu í á níunda mánuð. Houssin lýsti yfir ein­dregnum vilja til þess að flytj­ast til Reykja­víkur frá Reyð­ar­firði og reyndu barna­vernd­ar­yf­ir­völd að koma honum í fóstur í höf­uð­borg­inni. Vegna ósam­komu­lags fóst­ur­móður við barns­föður sinn var drengnum hins vegar gert að flytja af fóst­ur­heim­il­inu nokkrum dögum eftir að fóst­ur­vistun hófst og var honum þá komið fyrir á gisti­heim­ili í mið­borg Reykja­víkur.

Stuttu eftir kom­una til Reykja­víkur gerði Houssin til­raun til þess að koma sér í skip vestur um haf og hefur hann ítrekað verið hand­tek­inn við að reyna að smygla sér um borð í skip á leið til Kanada. Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum var hann að lokum úrskurð­aður í gæslu­varð­hald vegna þess­ara til­rauna og fluttur á Litla Hraun. Þar varð hann fyrir alvar­legri lík­ams­árás og var hann fluttur á sjúkra­hús nokkuð slas­aður, með brotnar tennur og illa mar­inn. „Mér skilst líka að hann hafi orðið fyrir annarri árás fyrir stuttu síðan og óskaði í kjöl­farið eftir að vera fluttur af Litla Hrauni en að það hafi ekki verið orðið við því,“ sagði Guðríður Lára í við­tali við Vísi um árás­ina.

Einstaklingar metnir út frá stöðu en ekki aldri 

Útlend­inga­stofnun bendir á að það sé ekki skil­yrði fyrir því að hljóta alþjóð­lega vernd að vera yngri en 18 ára, og það hafi því ekki verið á grund­velli ald­urs­grein­ingar sem félagi hans, Yassine, hafi fengið alþjóð­lega vernd en ekki hann. 

Stundin fjall­aði um ald­urs­grein­ingar á hæl­is­leit­endum í októ­ber síð­ast­liðnum. Þar kom meðal ann­ars fram að stað­fest dæmi væri um það hér á landi að tann­grein­ingar hafi ekki gefið rétta nið­ur­stöðu. Guðríður Lára sagði þá í við­tali við Stundina að Rauði kross Íslands myndi frekar vilja að hver og einn ein­stak­lingur væri met­inn út frá sinni stöðu, en ekki nákvæmum aldri. „Okkar útgangs­punktur er sá að það er alveg sama hvaða lík­ams­rann­sókn þú notar þá get­urðu aldrei fengið nákvæma nið­ur­stöðu,“ sagði hún. „Við getum ekki bent á neina aðferð sem segir okkur hund­rað pró­sent hvenær við­kom­andi verður átján ára. Við eigum engin svör við því. Það sem við myndum vilja sjá er að hver og einn ein­stak­lingur sé met­inn út frá sinni stöðu, en ekki nákvæmum aldri. Einnig viljum við að almennt sé gengið út frá því að fólk segi satt til um aldur í stað þess að ganga út frá því gagn­stæða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár