Mynd: Heiða Helgadóttir

Flutti með börnin í sveitina og gerðist ráðskona á bóndabæ

Irma Þöll Þor­steins­dóttir flutti með dreng­ina tvo í sveit í Arn­ar­firði fyrir vestan til þess að starfa sem ráðs­kona á bóndabæ.

Irma Þöll Þor­steins­dóttir er 34 ára þriggja barna móðir, sem ákvað síð­asta vor að kom­inn væri tími til breyt­inga í lífi sínu. Irma hætti í vinn­unni og setti inn aug­lýs­ingu í Bænda­blaðið þar sem hún óskaði eftir að kom­ast í sveit sem ráðs­kona.

Hún hafði sett sér ára­móta­heit að verja meiri tíma með strák­unum sínum en hún hefði gert áður. Vinnan hafði alltaf verið í for­gangi, eða eitt­hvað allt annað. Hún vildi að strák­arnir hennar, hinn níu ára gamli Vopni og tólf ára Kjartan, fengju að upp­lifa sveita­lífið.

Vinnu­konaIrma sér um öll störf á heim­il­inu og hleypur líka í vinnu­konu­störf þegar á þarf að halda. Svo keyrir hún strák­ana sína í skól­ann inn á Bíldudal á hverjum degi. Vopni, sonur hennar, fær sér morg­un­mat.

Fékk fjölda tilboða

Tilboðum rigndi inn eftir aug­lýs­ing­una. Eftir að hafa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár