Mynd: Shutterstock

Næsta bylting: Konur deila sögum af þvinguðu samþykki

Fjöldi kvenna hefur deilt sögum af þving­uðu sam­þykki í kyn­ferð­is­legum sam­skiptum und­an­farna sól­ar­hringa. „Þessi teg­und nauðg­unar, þar sem suð eða ann­ars konar munn­legur þrýst­ingur er not­aður til að þvinga fram sam­þykki, hefur langvar­andi skað­leg áhrif á þolendur rétt eins og aðrar teg­undir nauðg­unar og kyn­ferð­is­of­beldis,“ segir Hildur Guð­björns­dóttir.

Und­an­farna tvo sól­ar­hringa hefur fjöldi kvenna deilt sögum af þving­uðu sam­þykki í kyn­ferð­is­legum sam­skiptum í lok­aða Facebook-hópnum „Aktí­vismi gegn nauðg­un­ar­menn­ingu“. Umræðan spratt upp eftir að með­limur hóps­ins sagði frá per­sónu­legri reynslu af þving­uðu sam­þykki og varp­aði jafn­framt fram þeirri spurn­ingu til hóps­ins hvort það sem hefði gerst í hennar til­felli væri nauðgun. Fjöl­margar konur svör­uðu henni og sögðu að þar sem ekki hafi verið um eig­in­legt sam­þykki að ræða þá hafi þetta verið nauðgun. 

Þvingað sam­þykki er til að mynda stans­laust suð um kyn­líf. Neitunin er ekki tekin gild heldur er haldið áfram að suða og/eða ýmsum brögðum beitt til þess að þvinga fram sam­þykki með munn­legum þrýst­ingi, til dæmis með því að kalla fram sam­visku­bit, í þeim til­gangi að breyta nei-inu í já. 

„Margar konur enda því á að reyna að bæla þessa lífs­reynslu niður og fá ekki stuðn­ing til að vinna úr henni.“

Eftir að fyrsta sagan hafði verið send inn, hófu aðrar konur sem höfðu svip­aða reynslu að senda inn sögur sínar í miklum mæli í sama til­gangi, til að spyrja hóp­inn hvort það sem hefði gerst í þeirra til­felli væri nauðgun. Sögurnar streymdu inn og það varð ljóst að mikil þörf er á því að ræða þessa teg­und nauðg­unar. Flestar kon­urnar eiga það sam­eig­in­legt að hafa sjálfar upp­lifað atburð­inn sem nauðgun eða að minnsta kosti sem gróft brot, en gátu ekki fengið stað­fest­ingu á því og voru óvissar um hvað ætti að kalla það ofbeldi sem þær urðu fyrir. Ein kona lýsir því meðal ann­ars hvernig hún lét alltaf eftir eig­in­manni sínum til margra ára svo hann hætti að vera pirr­aður og reiður. Önnur lýsir því þegar hún var beitt miklum þrýst­ingi til þess að stunda kyn­líf með fyrsta kærast­anum sínum og að hún hafi að lokum látið undan, því hann hafi verið far­inn að hóta að hætta ann­ars með henni. 

Hildur Guð­björns­dóttir

„Þessi teg­und nauðg­unar, þar sem suð eða ann­ars konar munn­legur þrýst­ingur er not­aður til að þvinga fram sam­þykki, hefur langvar­andi skað­leg áhrif á þolendur rétt eins og aðrar teg­undir nauðg­unar og kyn­ferð­is­of­beldis,“ segir Hildur Guð­björns­dóttir, ein af stjórn­endum síð­unnar, í sam­tali við Stundina. „Það sem flækir málið síðan enn frekar er að konan veit að það hefur verið brotið á sér, en fær oft ekki stað­fest­ingu á því að upp­lifun hennar sé rétt. Margar konur enda því á að reyna að bæla þessa lífs­reynslu niður og fá ekki stuðn­ing til að vinna úr henni, sem veldur enn meiri skaða. Margar af kon­unum í hópnum höfðu leitað til sál­fræð­inga til að spyrj­ast fyrir um hvort um nauðgun hafi verið að ræða og fengið þau skila­boð frá fag­fólki að þær hafi sjálfar verið að oftúlka eða mis­skilja aðstæður.“

Skorar á sálfræðinga að fara á námskeið

Hildur segir þetta skýrt dæmi um hversu mik­il­væg umræðan er og hversu nauð­syn­legt það er að veita fræðslu um sam­þykki og góð sam­skipti. „Og enn­fremur sýnir þetta nauð­syn þess að allt fag­fólk sem gæti mögu­lega þurft að aðstoða þolendur í sinni vinnu, til dæmis sál­fræð­ingar, geð­læknar, með­ferð­ar­að­ilar, læknar, lög­reglu­þjónar og svo fram­vegis, sé vel upp­lýst um allar birt­ing­ar­myndir kyn­ferð­is­of­beldis og áhrif þess á þolendur. Mig langar að nota þetta tæki­færi til að biðla til Félags sál­fræð­inga til dæmis, að beita sér fyrir því að allir starf­andi sál­fræð­ingar fari á ein­hvers konar nám­skeið til að koma í veg fyrir að konum sé sagt af fag­að­ila að þvingað sam­þykki sé ekki nauðgun og að þær séu að mis­skilja eigin upp­lifun,“ segir Hildur. „Mér finnst líka mjög mik­il­vægt að það sé fjallað um þetta í skólum, í lífs­leikni­kennslu sem dæmi, hvað felst í kyn­ferð­is­of­beldi og ofbeld­is­sam­bandi. Mér er hugsað til allra þeirra ungu kvenna sem hafa reynslu af þving­unum í sam­bandi en hafa ekki fengið nægar upp­lýs­ingar til þess að átta sig á því að um ofbeldi er að ræða.“ 

Hildur segir þvingað sam­þykki end­ur­spegla stærra vanda­mál, sem sé nauðg­un­ar­menn­ingin sem við búum við, sem gefur karl­mönnum meðal ann­ars þau skila­boð að þeir eigi að vera agressí­vir og konum að þær eigi að vera passí­var. Þessi skila­boð sé meðal ann­ars að finna dæg­ur­menn­ingu á borð við róm­an­tískar gam­an­myndir, þar sem karl­inn heldur áfram að elt­ast við kon­una þrátt fyrir neitun og þegar hann kyssir hana með valdi kemur í ljós að hún vildi hann eftir allt saman. „Þetta sendir svo röng og skað­leg skila­boð og þetta eru skila­boðin sem við höfum öll alist upp við á einn eða annan hátt,“ segir Hildur, en bætir því við að félags­mót­unin rétt­læti auð­vitað á engan hátt ofbeldi og að fólk beri sjálft ábyrgð á gjörðum sínum. 

Hún bendir á að víða erlendis falli munn­legur þrýst­ingur (e. ver­bal coercion) undir skil­grein­ing­una um nauðgun. „Samkvæmt rann­sóknum verður ein af þremum konum í Evrópu fyrir kyn­bundnu ofbeldi á lífs­leið­inni. Ef þessi teg­und nauðg­unar væri talin með er lík­legt að talan yrði miklu hærri,“ segir hún. „Hvað þá ef allt hvers­dags­legt kyn­ferð­is­legt áreiti væri tekið með, þá væri hlut­fallið lík­lega hátt í hund­rað pró­sent.“ 

Samþykkið þarf að vera áhugasamt

Hópurinn „Aktí­vismi gegn nauðg­un­ar­menn­ingu“ var mynd­aður í kjöl­far Beauty Tips bylt­ing­ar­innar árið 2015, þegar konur sögðu eft­ir­minni­lega frá kyn­ferð­is­of­beldi sem þær höfðu verið beittar og vöktu þannig sam­fé­lagið til vit­undar um hversu algengt það er í raun og veru. Síðan hafa orðið margar staf­rænar bylt­ingar þar sem konur hafa meðal ann­ars end­ur­heimt skil­grein­ing­ar­valdið á lík­ömum sínum, vakið athygli á hvers­dags­legu kynja­mis­rétti og, nú síð­ast, kyn­ferð­is­legri áreitni. „Nú erum við loks­ins komin á þennan stað, að geta rætt um þvingað sam­þykki sem hingað til hefur ekki verið talið falla undir hefð­bundnar skil­grein­ingar á kyn­ferð­is­legu ofbeldi,“ segir Hildur. 

„Ef við ætlum virki­lega að umbylta sam­skiptum kynj­anna þá eiga konur ekki heldur að þurfa að sætta sig við að vera þving­aðar til að veita sam­þykki.“

Umræðan um þvingað sam­þykki sé þannig afar mik­il­vægt næsta skref í bar­átt­unni gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi. „Það getur verið erfitt að ræða þessi mál, þar sem þessi teg­und ofbeldis er mjög algeng og á sér oft­ast stað í nánum sam­böndum, en ef við ætlum virki­lega að gera bylt­ingu gegn kyn­ferð­is­of­beldi þá verðum við að fara algjör­lega ofan í saumana á þessum málum. Nauðgun er ekki aðeins framin af ókunn­ugum manni í húsa­sundi, enda er það sjald­gæfasta birt­ing­ar­mynd nauð­gana. Lang­flestar nauðg­anir eiga sér stað í heima­húsi þar sem ger­and­inn er ein­hver sem þú þekkir og treystir. Ef við ætlum virki­lega að umbylta sam­skiptum kynj­anna þá eiga konur ekki heldur að þurfa að sætta sig við að vera þving­aðar til að veita sam­þykki undir neinum kring­um­stæðum. Núna ætlum við að fá að tala um þetta og láta vita að við sættum okkur ekki við þetta lengur,“ segir hún.

 „Allt annað en áhuga­samt sam­þykki er ekki raun­veru­legt sam­þykki,“ heldur Hildur áfram. „Þetta snýst bara um að bera virð­ingu fyrir konum almennt, bera virð­ingu fyrir þeim sem maður stundar kyn­líf með og ganga úr skugga um að hinum aðil­anum líði alltaf vel og að hún eða hann sýni áhuga­samt sam­þykki. Hvers kyns þrýst­ingur á annan aðila til að gera eitt­hvað sem hún eða hann vill ekki gera er ein­fald­lega kyn­ferð­is­of­beldi.“

Vitundarvakning Stígamóta um sjúka ást tekur meðal annars á þvinguðu samþykki:

 

 

Hér eru sjö sögur sem birst hafa í hópnum - birtar með leyfi:

Vaknaði við hann inni í sér

Mér var nauðgað þegar ég var 18 ára af strák sem ég var hrifin af og fór heim með og sagði svo nei við þegar hann vildi stunda kyn­líf. Hann suð­aði og suð­aði, ég ýtti honum frá og sagði nei aftur og aftur en aldrei með mik­illi festu og hann færði hend­urnar á mér frá þegar ég hélt fyrir pík­una eða rass­inn á mér og fór end­ur­tekið yfir mín mörk alla þessa nótt, ef ég dott­aði (klukkan var margt og ég hafði verið að drekka svo eðli­lega þreytt) þá vakn­aði ég alltaf við það að hann var kom­inn inn í mig. Fram af þessu hafði ég haldið að nei yrði alltaf nóg alla­vega þegar ég ætti í sam­skiptum við fólk sem ég þekkti.

„Stað­reyndin er sú að menn­irnir sem ég hef sofið hjá og hef ekki haft neinn áhuga á að sofa hjá eru fleiri en ég get talið á annarri hendi.“

Það eru sirka 15 ár síðan þetta gerð­ist og það er ekki langt síðan ég byrj­aði að þora að segja nei við karl­menn þegar kemur að kyn­lífi. Ein­hvern­veg­inn hef ég sann­fært sjálfa mig um að ef ég segi nei og mað­ur­inn virðir það ekki þá hafi mér pott­þétt verið nauðgað, en ef ég segi ekki neitt þá finnst mér eins og ég geti frekar bara blokkað þetta úr minn­inu eða látið eins og ég hafi viljað sofa hjá við­kom­andi.

Stað­reyndin er sú að menn­irnir sem ég hef sofið hjá og hef ekki haft neinn áhuga á að sofa hjá eru fleiri en ég get talið á annarri hendi. Mér finnst ég samt varla geta kennt þeim um neitt eða verið reið við þá af því það var ekk­ert tuð eða suð af þeirra hálfu. Ég gaf bara vilja minn aldrei til kynna vegna þess ofbeldis sem ég hafði orðið fyrir áður. Ef þeir hefðu samt spurt mig afdrátt­ar­laust hvort ég vildi sofa hjá þeim hefði ég sagt nei, fyrir konur eins og mig eru sem betur fer til ein­hverjir menn þarna úti sem spyrja ennþá og bera virð­ingu fyrir svar­inu sem þeir fá.

Áttaði sig á ofbeldinu eftir að sambandinu lauk

Ég var gift í mörg ár, og ein­göngu eftir að við hættum saman fór ég að fatta ofbeldið sem hafði átt sér stað. Samt í lengsta tím­ann hélt ég að ofbeldið hefur verið and­legt. Svo yfir tím­ann fór ég að hugsa um þessi atvik sem gerð­ist allt of oft í gegnum árin sem ég hélt að væru normal. Þegar ég vakn­aði stundum og hann var að stunda kyn­líf með mér. Þegar hann suð­aði og suð­aði í mér að sofa hjá honum og ég gaf svo eftir því þá viss ég að hlut­irnir myndu verða „normal“ aftur. Ef ég svaf hjá honum þá mundi hann ekki vera svona pirr­aður og reiður og sam­bandið okkur myndi verða gott aftur. 

Ég er svo brennd og bro­ken eftir þetta (og annað atvik sem gerð­ist þegar ég var ung­lingur) að þó það eru komin tæp­lega 10 ár síðan við hættum saman, þá hef ég verið ein allan þennan tíma. Ég bara treysti ekki að það séu til karl­menn sem vita hvar mörkin eru og munu virða þau. Ég treysti sjálfri mér ekki til að velja ekki mann sem myndi bara vaða yfir mig aftur.

Þvinguð af fyrsta kærastanum

Mín fyrsta saga af tuði er líka fyrsta kyn­lífs­reynslan mín, var ný fermd og í sam­bandi með strák sem var eldri og reynslu­meiri, á þessum tíma var að byrja að rifj­ast upp fyrir mér áföll frá því í æsku svo ég var ekki beint á góðum stað. Ég kynnt­ist honum í gegnum sam­eig­in­lega vini, var með lítið sjálfs­traust og var bara ótrú­lega ánægð að það væri ein­hver strákur skot­inn í mér. Ég hafði aldrei áður stundað kyn­líf en hann hafði tölu­vert meiri reynslu en ég, til að byrja með var hann ekk­ert ýtinn, þegar nokkrar vikur voru liðnar á sam­bandið byrjar hann að væla um það að ég vilji ekki sofa hjá honum, svona heldur þetta áfram og áfram, ég sagð­ist ekki vera til­búin og hann vældi meira.

Hann bjó í öðru sveit­ar­fé­lagi en ég og kom bara í bæinn um pabba helgar en bjó ann­ars hjá mömmu sinni úti á landi svo mér tókst að standa á mínu nokkuð lengi, hann var far­inn að hóta því að hætta með mér ef ég svæfi ekki hjá honum, vin­konur hans voru að hringja í mig og segja mér að ef ég svæfi ekki hjá honum myndi hann bara halda fram­hjá mér svo í ein­hverri desperate von um að halda í þennan strák þá féllst ég loks­ins á að sofa hjá honum, það var ótrú­lega sárt, hann neit­aði að nota smokk og það var eng­inn for­leikur eða neitt.

Í kjöl­farið leið mér mjög illa en reyndi að fela það eins og ég gat, 2 vikum seinna þá hættir hann með mér, hann var bara með mér til þess að geta kvittað við það á list­anum sínum að afmeyja stelpu. Kemst svo að því nokkru seinna að allan tím­ann á meðan við vorum saman var hann að halda fram­hjá mér með vin­konu minni, það tók mig mörg mörg ár af því að leyfa strákum að gera hvað sem þeir vildu við mig þar til ég átt­aði mig á því að það var ekki mér að kenna að hann hélt fram­hjá, hann hélt ekki fram­hjá því ég vildi ekki sofa hjá honum, hann hélt bara fram­hjá því hann var og er fífl!

Eiginmaðurinn fór ítrekað yfir mörkin

Mér var nauðgað á ung­lings­árum og fór í sam­band skömmu síðar sem stóð í um 20 ár. Ég sagði engum frá nauðg­un­inni, fannst hún mér að kenna. Mér fannst lík­ami minn óhreinn, ógeðs­legur og honum mátti bjóða svo til hvað sem var. Ég hef engan veg­inn tölu á öllum þeim skiptum sem ég sagði nei við kyn­lífi eða ákveðnum kyn­lífs­at­höfnum sem mað­ur­inn minn hafði áhuga á. Hann meiddi mig, mis­bauð mér og fór ítrekað yfir mín mörk, smám saman varð ástandið verra og verra. „Nei“ var ekki virt, ég var leið­in­leg, köld, sýndi honum ekki nægan áhuga og á allan hátt ómögu­leg að hans mati ef ég var ekki alltaf til í hvað sem var. Ef nei-i var ekki breytt í já eða að minnsta kosti þegj­andi hlýðni fylgdu enda­laus leið­indi, hunsun eða ræður um hversu ömur­leg ég væri. Það var því auð­veld­ara að bara bíta á jaxl­inn, flýja í hug­anum, láta þetta yfir sig ganga. Ég vildi halda fjöl­skyld­unni saman og láta allt líta vel út á yfir­borð­inu. Ég hafði enga trú á að ég gæti fundið ham­ingj­una ann­ars staðar, ég var skemmd, ónýt og vildi þrauka í því sem ég þó hafði. 

„Það er eig­in­lega ekki hægt að lýsa því hvaða áhrif svona reynsla hefur á sál­ar­lífið.“

Frá því ég losn­aði úr sam­band­inu hef ég verið að díla við afleið­ing­arnar. Skömmin, þögnin, sjálfs­hat­rið og sú til­finn­ing að ég eigi ekk­ert gott skilið var yfir­gnæf­andi. Það er eig­in­lega ekki hægt að lýsa því hvaða áhrif svona reynsla hefur á sál­ar­lífið. 

Í dag á ég ynd­is­legan mann, ég hef upp­lifað það að virð­ing er borin fyrir mér og mínum vilja. Hann hefur engan áhuga á að sofa hjá mér ef mér líður ekki vel eða vil það ekki af hvaða ástæðu sem er. Mér finnst það dásam­legt og ekki sjálf­sagt. Auðvitað ætti það að vera sjálf­sagt að sá ein­stak­lingur sem er mér kærastur sýni mér virð­ingu, reynslan kenndi mér annað. 

Ég er inni­lega þakk­lát kon­unum sem hafa rutt veg­inn. Fyrir mig hefur það verið allt frá Druslu­göng­unni til #metoo og allar sög­urnar frá þessum hug­rökku konum sem hafa stigið fram. Án ykkar hefði ég aldrei þorað. Barnanna minna vegna verður saga mín alltaf nafn­laus en sög­urnar ykkar hafa hjálpað mér að finna mig aftur og standa með mér á hverjum degi. Risaknús á ykkur allar ❤

Beitt þvingunum með vinkonuna sér við hlið

16 ára fór ég með 17 ára vin­konu minni í video og cozy hjá vinum hennar sem ég kann­að­ist líti­lega við, tveir strákar um tví­tugt. 

Mér hefði aldrei dottið í hug hvernig aðstæður mundu þró­ast og ég réði ekk­ert við þær. 

Hún var skotin í öðrum þeirra vissi ég og sjálf var ég ponsu að pæla í hinum, ekk­ert svaka­lega, bara smá og var svo sann­ar­lega ekki að spá í kyn­lífi, ég hafði aldrei gert það og eina „reynslan mín“ af slíku var nauðgun eldri manns tengdum mér fjöl­skyldu­böndum þegar ég var 14 ára, ég bjóst mögu­lega við kannski smá kúri, taldi mig örugga með vin­konu mína með mér.

Þetta byrj­aði bara á vid­eo­glápi í rökkri en svo byrjar vin­kona mín og annar þeirra að knús­ast eitt­hvað en á örskots­stundu varð þetta eins og ég væri stödd í hryll­ingsklám­mynd, þau fóru á fullt að ríða beint hlið­ina á mér með til­heyr­andi látum og stunum og veinum og hinn strák­ur­inn byrj­aði að herja á mig að fá líka að ríða. 

„Það end­aði á því að ég gafst upp og leyfði honum að stinga sér inn.“

Ég reyndi að neita aftur og aftur og aftur og leið skelfi­lega, reyndi að skýla mér og ná sam­bandi við vin­konu mína en hún var bara eins og ein­hver and­setin klám­mynda­stjarna vein­andi hlið­ina á mér, skiptandi stans­laust um stell­ingar... hann suð­aði og suð­aði og spil­aði á sam­visk­una og sjálfs­mynd­ina, bend­andi á hvað það væri gaman hjá hinum og gott að ríða og ég ætti bara að leyfa sér smá, segj­andi afhverju ég væri ekki svona æðis­leg eins og vin­kona mín... káf­andi og suð­andi, hald­andi mér í aðstæð­unum... mér verður í alvöru óglatt að skrifa þetta, öllum þarna var drullu­sama hvernig mér leið og að ég vildi þetta ekki og var með tárin í aug­unum. 

„Öllum þarna var drullu­sama hvernig mér leið“

Það end­aði á því að ég gafst upp og leyfði honum að stinga sér inn, ég var frosin, tók engan þátt, vildi bara að þetta hætti allt saman, að hann hætti að suða og þrýsta á mig, að hin hættu að stynja og ríða og veina, ég vildi bara að allt hætti og að ég kæm­ist út úr þessum við­bjóðs­legu aðstæðum. 

Ég frétti seinna að ég væri ömur­legur dráttur, I wonder why... eða þannig.

Í dag sé ég þetta sem nauðgun, ég fékk ekki að segja nei, það var ekk­ert hlustað á mig, öllum var drullu­sama um mig. Hann beitti mig ekki beint lík­am­legu ofbeldi til að nauðga mér en aðstæð­urnar sem ég var sett í og að hann hleypti mér ekki út úr þeim og suð­aði og suð­aði enda­laust og ýtti á alls­konar takka til að fá það sem hann vildi án til­lits til minna lang­ana gerir það að verkum að þetta er aug­ljós nauðgun í mínum huga í dag. 

Í alvöru, það þarf að kenna fólki frá unga aldri virð­ingu og góð sam­skipti, það er ekki í lagi að þvinga mann­eskju til að geta fróað sér inn í hana og mis­nota. 

Ógeð. 

Þetta og nauðg­unin sem ég varð fyrir 14 ára mark­aði rest­ina af ung­lings­ár­unum og leiddi af sér frek­ari ofbeld­is­glæpi sem teygðu sig langt inn á full­orð­ins­árin, fólk var dug­legt við að brjóta niður varn­irnar mínar og sjálfs­mynd.

Fagaðili ráðlagði henni að gleyma

Fyrir nokkrum árum kynnt­ist ég strák sem að mér fannst æðis­legur. Hann var nokkrum árum eldri en ég, kom vel fram við mig til að byrja með og gerði líf mitt mikið skemmti­legra. 

Hann bjó ekki á sama stað og ég, en við hitt­umst við hvert tæki­færi sem við gátum. Í eitt skipti kom hann til mín og við áttum frá­bæran dag saman. Þegar leið á kvöldið fór hann að reyna að klæða mig úr föt­unum. Ég sagði honum að ég vildi þetta ekki, væri ekki til­búin í þetta. Hann var sár á svip­inn og benti mér á að hann hefði sko eytt sínum tíma í að koma til mín og eyða deg­inum með mér, þetta væri nú það minnsta sem ég gæti gert fyrir hann. Ég benti honum á að það hefði verið hans val að koma. Hann sá að ég varð sár og tók utan um mig, knús­aði mig og fór að tala fal­lega til mín, hvað ég væri æðis­leg, hvað við áttum góðan tíma saman og svo fram­vegis.

Fljót­lega fór hann aftur að reyna, hann fór inn á mig og ég færði mig. Þá byrj­aði suðið, að hann væri bara svo æstur í mig, að hann væri svo hrif­inn af mér og að ég þyrfti að hjálpa honum með þetta. Ég gaf mig, ég gat ekki hlustað á þetta lengur, vildi bara losna við hann.

Ég gaf mig eftir allt þetta suð og sagði ókei. Mörgum árum seinna ræddi ég þetta við fag­að­ila sem ég var hjá og þá var mér tjáð að eftir allt hefði ég sagt já, ég gæti ekk­ert gert í þessu nema sætta mig við þetta og sleppa því að sjá eftir þessu, lífið myndi halda áfram.

Fraus ítrekað og lét þetta yfir sig ganga

Ég á fjöl­margar svona sögur. Ég hef verið notuð gegn mínum vilja af bæði mönnum sem ég hef þekkt og ókunn­ugum mönnum.

Vegna kyn­ferð­is­of­beldis sem ég varð fyrir í æsku var sjálfs­virð­ingin sama sem engin og ég gat ekki varist. Ég bara fraus ítrekað og lét þetta yfir mig ganga. Ég beið ofbeldið af mér.

Eftir að ég kynnt­ist mann­inum mínum sem ég elska og girn­ist, gerð­ist það nær ítrekað fyrstu 2 árin okkar saman að ég brotn­aði saman eftir að við sváfum saman. Ekki vegna þess að hann var vondur við mig heldur vegna þess að ég fékk flas­h­bökk sem yfir­bug­uðu mig.

Ég fór fyrst almenni­lega að njóta þess að stunda kyn­líf þegar við vorum búin að vera saman í meira en 10 ár. Ég var með svo mik­inn við­bjóð á sjálfri mér, lík­ama mínum og mér allri að þrátt fyrir stans­lausa gull­hamra frá honum um hve fal­leg, sexý, skemmti­leg, góð og ein­stök ég væri þá bauð mér við sjálfri mér.

Í dag er ég allt önnur. Ég á erfitt með að skilja hvernig ég gat verið með þessar til­finn­ingar gagn­vart sjálfri mér því ég hef alltaf verið með fal­legan vöxt og verið lík­am­lega heil­brigð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár