130 vagnstjórar á móti gæludýrum í Strætó

Strætó hefur fengið heim­ild frá umhverf­is­ráðu­neyt­inu til að leyfa gælu­dýr í vögn­unum. Um er að ræða til­rauna­verk­efni til eins árs. Félag ábyrgra hunda­eig­enda segir þetta gef­ast vel erlendis.

130 vagnstjórar á móti gæludýrum í Strætó

Umhverf­is­ráðu­neytið hefur veitt Strætó heim­ild til að leyfa gælu­dýr í stræt­is­vögnum. Um er að ræða til­rauna­verk­efni til eins árs og þurfti Strætó und­an­þágu frá reglu­gerð um holl­ustu­hætti vegna þess. Stjórn Strætó tekur ákvörðun um málið á morgun, en 130 vagn­stjórar hjá Strætó hafa mót­mælt hug­mynd­inni að sögn trún­að­ar­manna.

„Við erum bara mjög glöð með ákvörð­un­ina og að Strætó ætli að prófa þetta verk­efni,“ segir Rakel Linda Krist­jáns­dóttir, for­maður Félags ábyrgra hunda­eig­enda. „Það eru ákveðnir hlutir í hunda­menn­ingu sem hafa gef­ist vel ann­ars staðar í heim­inum, sem ættu að ganga vel hér líka. En við viljum beina því til hunda­eig­enda að þessu frelsi fylgir ábyrgð og við berum ábyrgð á okkur sjálfum og hund­unum okkar.“

„Það eru ákveðnir hlutir í hunda­menn­ingu sem hafa gef­ist vel ann­ars staðar í heim­inum, sem ættu að ganga vel hér líka.“

Heimilt verður að taka hunda, ketti, nag­dýr, fugla, kan­ínur, froska, skraut­fiska, skrið­dýr og skor­dýr í vagn­ana, að því gefnu að þau heim­ilt sé að halda þau dýr á Íslandi. Skilyrt er að þau verði í búrum aft­ast í vagn­inum. Hundar mega þó vera í ól eða beisli, svo fram­ar­lega að þeir fari ekki upp á sætin. Óheimilt verður að ferð­ast með gælu­dýr á háanna­tímum, frá 7:00-9:00 og 15:00-18:00. Allir vagnar sem not­aðir verða í verk­efnið skulu þrifnir vand­lega í lok dags.

Mót­fallnir gælu­dýrum í vögn­unumTrún­að­ar­menn vagn­stjóra Strætó and­mæla hug­myndum um að leyfa gælu­dýr í vögn­unum.

Astma- og ofnæm­is­fé­lag Íslands skil­aði inn umsögn í sam­vinnu við Öryrkja­banda­lag Íslands og mót­mælti hug­mynd­inni. Veruleg áhætta sé tekin með heilsu fólks með ofnæmi og hætta sé á að margir sem áður nýttu sér Strætó muni ekki hafa þess kost á meðan til­rauna­verk­efn­inu standi. Embætti Land­læknis taldi ekki for­sendur fyrir því að mót­mæla verk­efn­inu, þar sem ekki sé gert fyrir veru­legum sam­gangi gælu­dýra við fólk í vögn­unum og því minni hætta á alvar­legum ofnæm­is­við­brögðum.

Í umsögn trún­að­ar­manna hjá Strætó kemur fram að þeir geti ekki fall­ist á ákvörð­un­ina, þar sem vagn­arnir séu byggðir til að flytja fólk en ekki dýr. Trún­að­ar­menn segj­ast hafa nöfn 130 vagn­stjóra sem séu mót­fallir hug­mynd­inni. Stjórn Strætó tekur ákvörðun um málið á morgun, en und­an­þágu­heim­ild ráðu­neyt­is­ins rennur út í lok mars 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár