Sigríður heldur því til streitu að nefndin hafi ekkert með sjálfstæði dómstóla að gera

Dóms­mála­ráð­herra er ósam­mála Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, Hæsta­rétti Íslands og lög­gjaf­anum um einn meg­in­til­gang þess að fag­leg dóm­nefnd meti hæfni umsækj­enda um dóm­ara­stöður.

Sigríður heldur því til streitu að nefndin hafi ekkert með sjálfstæði dómstóla að gera
Dóms­mála­ráð­herra í við­tali Sigríður Andersen telur að reglur um sér­staka dóm­nefnd sem fer yfir hæfni umsækj­enda um stöður dóm­ara, hafi ekk­ert með sjálf­stæði dóm­stóla gagn­vart fram­kvæmda­vald­inu að gera. Einnig hefur hún sagt að dóm­nefndin sé „fram­leng­ing“ af ráð­herra. Mynd: Skjáskot af viðtali RÚV

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra heldur því til streitu að störf dóm­nefndar um mat á hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti hafi ekk­ert með sjálf­stæði dóm­stóla að gera. Þetta sjón­ar­mið kom fram í við­tali Kveiks við hana sem birt­ist í heild á RÚV.is í dag.

Áður hefur ráð­herra haldið því fram að í ljósi þess að dóm­nefndin sé sjálf­stæð stjórn­sýslu­nefnd hafi hún „ekk­ert með sjálf­stæði dóm­stóla að gera“ og að „sjálf­stæði dóm­stól­anna varð[i] ekki vinnu nefnd­ar­innar“. 

Eins og Stundin benti á í ítar­legri umfjöllun þann 5. jan­úar síð­ast­lið­inn ganga þessi sjón­ar­mið í ber­högg við álit Hér­aðs­dóms Reykja­víkur og Hæsta­réttar en jafn­framt ríma þau illa við lög­skýr­ing­ar­gögnin sem liggja að baki þeim lögum sem umrædd dóm­nefnd starfar eftir. Í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem kveð­inn var upp þann 15. sept­em­ber 2017 er bent á að lög­gjöf um til­vist og störf dóm­nefnda til að meta hæfni umsækj­anda um dóm­ara­emb­ætti hafi, allt frá því að ákvæði um slíkar dóm­nefndir voru fyrst lög­fest árið 1989, helg­ast af því mark­miði að „styrkja sjálf­stæði dóm­stól­anna og auka traust almenn­ings á því að dóm­arar séu óháðir hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds­ins“. Að sama skapi benti Hæsti­réttur Íslands á, þann 19. des­em­ber 2017, að reglur um dóm­nefnd til að meta hæfni umsækj­enda um dóm­ara­stöður eiga rætur að rekja til laga­setn­ingar sem hafði að mark­miði að „styrkja sjálf­stæði dóm­stóla og auka traust almenn­ings á því að dóm­arar væru óháðir hand­höfum fram­kvæmda­valds“. Í grein­ar­gerð sem fylgdi frum­varpi til laga um breyt­ingar á dóm­stóla­lögum sem sam­þykkt voru á Alþingi þann 19. maí 2010 og fólu í sér breytta skipun dóm­nefndar og aukið vægi hennar, er lögð sér­stök áhersla á að „styrkja [þurfi] stöðu og sjálf­stæði dóm­stól­anna og tryggja sem best að þeir verði óháðir hinum tveimur þáttum rík­is­valds­ins sem þeir hafa eft­ir­lit með“. 

Dóms­mála­ráð­herra er þannig ósam­mála hug­myndum dóm­stóla og lög­gjafans um til­gang dóm­nefnd­ar­innar. „Ef menn ætla að halda þessu fram [því að til­gangur nefnd­ar­innar sé meðal ann­ars sá að styrkja sjálf­stæði dóm­stóla, inn­skot blaða­manns], þá varpa ég fram eft­ir­far­andi spurn­ingu: Ef þetta varðar sjálf­stæði dóm­stól­anna og þetta á að vera svo mikil hæfn­is­nefnd, hvernig stendur þá á því að það er mikið er lagt upp úr því að hún sé skipuð hags­muna­að­ilum?“ sagði Sigríður Andersen í við­tal­inu við Kveik.

„Ef þetta snýst bara um fag­leg­heit, af hverju er þá verið að leggja svona mikla áherslu á að hags­muna­að­ilar eigi þarna hlut að máli?“

Hún nefndi að þegar staðið hefði til að gera breyt­ingar á sam­setn­ingu nefnd­ar­innar árið 2015 hefðu borist gagn­rýnar umsagnir frá hags­muna­að­ilum.

„Ef þetta snýst bara um fag­leg­heit, af hverju er þá verið að leggja svona mikla áherslu á að hags­muna­að­ilar eigi þarna hlut að máli? Hvað sjálf­stæði dóm­stól­anna varðar þá er það þannig að það er það tryggt með allt öðrum hætti. Það er tryggt með því að dóm­ar­arnir eru ævi­ráðnir, þeir eru sjálf­stæðir í störfum sínum og það má eng­inn segja þeim hvernig þeir eiga að dæma til dæmis og þar fram eftir göt­unum.“ 

Samkvæmt 11. gr. laga um skipun dóm­ara skipar ráð­herra fimm aðal­menn og jafn­marga vara­menn í dóm­nefnd til að fjalla um hæfni umsækj­enda um emb­ætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara, lands­rétt­ar­dóm­ara og hér­aðs­dóm­ara. Einn nefnd­ar­manna skal til­nefndur af Hæsta­rétti og er hann for­maður nefnd­ar­innar. Einn nefnd­ar­manna skal til­nefndur af Lands­rétti. Dóm­stóla­sýslan til­nefnir þriðja nefnd­ar­mann­inn og skal hann ekki vera starf­andi dóm­ari en Lög­manna­fé­lags Íslands þann fjórða. Fimmti nefnd­ar­mað­ur­inn er svo kos­inn af Alþingi. 

Þegar Sigríður Andersen hélt því upp­haf­lega fram þann 4. jan­úar að umrædd dóm­nefnd hefði ekk­ert með sjálf­stæði dóm­stól­anna að gera steig for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands fram í við­tali, sagð­ist hafa hrokkið við og ekki trúa því að ráð­herra væri raun­veru­lega þess­arar skoð­unar. Nú liggur skýrt fyrir að ummæli Sigríðar voru ekki sett fram í hugs­un­ar­leysi heldur lýsa raun­veru­legri skoðun dóms­mála­ráð­herra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár