Varaþingmaður mótmælir hækkun fjármagnstekjuskatts fyrir hönd hagsmunasamtaka

„Sú frum­varps­grein sem fjallað hefur verið um vinnur gegn auknum frjálsum sparn­aði,“ segir í umsögn Vil­hjálms Bjarna­sonar fyrir hönd Samtaka spari­fjár­eig­enda.

Varaþingmaður mótmælir hækkun fjármagnstekjuskatts fyrir hönd hagsmunasamtaka

Vil­hjálmur Bjarna­son, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, hefur sent Alþingi umsögn fyrir hönd Samtaka spari­fjár­eig­enda þar sem hann gagn­rýnir áform stjórn­ar­meiri­hlut­ans um hækkun fjár­magnstekju­skatts. 

Vil­hjálmur hefur átt sæti í stjórn Samtaka spari­fjár­eig­enda frá 2016 sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Alþingis, en þá var Vil­hjálmur þing­maður og átti sæti í efna­hags- og við­skipta­nefnd þings­ins. Um er að ræða hags­muna­sam­tök almennra hluta­bréfa- og spari­fjár­eig­enda. 

Nú, eftir að hann missti þing­sætið sitt sendir hann Alþingi umsögn fyrir hönd sam­tak­anna og fer hörðum orðum um fyr­ir­hug­aða hækkun fjár­magnstekju­skatts. Hann telur að um sé að ræða „full­komið virð­ing­ar­leysi við frjálsan sparnað“ auk þess sem mis­skiln­ings gæti í grein­ar­gerð­inni sem fylgir band­orm­inum, þ.e. frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar um ýmsar breyt­ingar vegna fjár­laga árs­ins 2018. 

„Sú frum­varps­grein sem fjallað hefur verið um vinnur gegn auknum frjálsum sparn­aði,“ segir í umsögn Vil­hjálms. „Ef rök­stuðn­ingur um „græna skatta“ og „syk­ur­skatt“ er yfir­færður á þessa skatt­lagn­ingu þá mætti ætla að það væri álit lög­gjafans að sparifé sé of mikið og að nauð­syn­legt væri að draga úr frjálsum sparn­aði. Svo er alls ekki heldur þvert á móti. Frjálsan sparnað þarf að efla. Líf­eyr­is­kerfi lands­manna kann að vera á veikum grunni þar sem þrengt er að frjálsum sparn­aði.“ 

Í umsögn sinni rök­styður Vil­hjálmur mál sitt og fjallar sér­stak­lega um hvernig hækkun fjár­magnstekju­skatts hefur áhrif á raunskatt­lagn­ingu raun­vaxta­tekna. Þá full­yrðir hann að aukin skatt­lagn­ing frjáls sparn­aðar gangi þvert á mark­mið um sparnað og ráð­deild. „Aukin skatt­lagn­ing á sparnað er leið til að byggja upp skuld­ara­sam­fé­lag og til lengri tíma eykur þörf á vaxta­bótum eða við­líka bóta­kerfum. Frum­varps­greinin er í raun full­komið virð­ing­ar­leysi við frjálsan sparnað.“

Eins og Stundin hefur áður greint frá hyggst rík­is­stjórnin hækka fjár­magnstekju­skatt úr 20 pró­sentum upp í 22 pró­sent. Til fjár­magnstekna ein­stak­linga telj­ast vaxta­tekjur, arður, sölu­hagn­aður og leigu­tekjur utan rekstrar. Tekju­á­hrif hækk­un­ar­innar eru áætluð 1,6 millj­arðar kr. á árinu 2018, en 2,6 millj­arðar kr. á árinu 2019 að því er fram kemur í grein­ar­gerð frum­varps Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra um breyt­ingar á ýmsum lögum vegna fjár­laga­árs­ins 2018, þ.e. band­orms­ins svo­nefnda. 

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar er boðuð end­ur­skoðun á skatt­stofni fjár­magnstekju­skatts. Engin útfærsla liggur þar fyrir, en fjár­mála­ráð­herra hefur þó gefið í skyn að fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar miði að því að skatt­leggja raun­á­vöxtun frekar en nafn­á­vöxtun og verja þannig fjár­magns­eig­endur fyrir verð­bólgu­á­hrifum. Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2018 segir í grein­ar­gerð að „skatt­stofn fjármagnstekju­skatts [verði] tek­inn til end­ur­skoð­unar, með það fyrir augum að raun­veru­legur ávinn­ingur af fjármagni verði skatt­lagður og alþjóðlegur sam­an­burður [verði] um leið auð­veld­ari“.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár