Mynd: Heiða Helgadóttir

Föst í Kvennaathvarfinu vegna forræðisdeilu

Veröld Maariu Päivinen var umturnað í ágúst síðastliðnum þegar finnskur dómstóll komst að þeirri niður­stöðu að endur­senda ætti eins og hálfs árs gamlan son hennar til Íslands. Mæðginin hafa dvalið í Kvenna­athvarfinu allar götur síðan. Maaria hefur kært íslenskan barns­föður sinn til lögreglu fyrir að brjóta á sér, en hann þver­neitar sök og segir hana misnota aðstöðu Kvenna­athvarfsins.

Síðla kvölds þann 4. ágúst síðastliðinn barði lögreglan að dyrum á heimili Maariu Päivinen rithöfundar og ætlaði að hrifsa eins og hálfs árs gamlan son hennar úr örmum móður sinnar og fara með hann í athvarf. Maaria mætti ekki fylgja honum þangað. Barnið, sem var enn á brjósti og hafði aldrei verið aðskilið móður sinni, skildi ekki hvað var að gerast, en Maaria brast í grát. 

„Þetta var mjög erfið lífs­reynsla,“ rifjar hún upp með grát­kæfðri röddu. „Þetta var að kvöldi til, hann var kominn í náttfötin sín og við vorum að fá okkur kvöld­hressingu. Ég hélt að systir mín væri fyrir utan, en þegar ég opnaði dyrnar var þetta lögreglan og félags­ráðgjafi á vegum sveitar­félagsins og þau voru komin til að taka af mér barnið.“

Ástæðan fyrir komu lögreglunnar var að fyrr um daginn hafði finnskur dómstóll komist að þeirri niður­stöðu að endur­senda ætti son Maariu til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár