Þorsteinn Már keypti virkjunarkost við Langjökul

Þorsteinn Már Baldvinsson útgerðar­maður keypti sig inn Haga­vatns­virkjunar sem reynt hefur að fá leyfi til að byggja um nokkurra ára skeið. Um er að ræða þriðja virkjunar­kostinn sem Þorsteinn Már fjár­festir í. Eyþór Arnalds er einn aðal­hvatamaður Haga­vatns­virkjunar og er einn af eigendum félagsins. Þorsteinn segist nú hafa selt hlutinn í virkjunar­kostinum.

Þrjár virkjanir
Þrjár virkj­anir Þor­steinn Már Bald­vins­son í Samherja á nú hluti í þremur virkj­un­ar­kostum sem reynt er að fá leyfi fyrir til að byggja á Íslandi. Mynd: Haraldur Guðjónsson

Eignarhalds­félag í eigu Þorsteins Más Baldvins­sonar, forstjóra Samherja, keypti rúmlega 23 prósenta hlut í fyrir­tækinu Íslenskri vatnsorku ehf. sem vinnur að því að fá að reisa virkjun við Langjökul. Um er að ræða 18 megavatta virkjun við suðurenda Lang­jökuls. Virkjunar­kosturinn gengur undir nafninu Haga­vatns­virkjun. Félagið á einnig hlut í fyrirtæki sem hyggur á byggingu Hóls­virkjunar í Fnjóskadal á Norður­landi.

Félag Þorsteins, Traðar­steinn ehf., fjárfesti í virkjunar­kostinum í fyrra samkvæmt nýbirtum ársreikningi Íslenskrar vatnsorku ehf. og settist sonur Þorsteins Más, Baldvin Már Þorsteinsson, í stjórn fyrir­tækisins í kjölfarið. Nýtt hlutafé upp á 54 milljónir var sett inn í fyrir­tækið í fyrra en einungis einn nýr hluthafi, Traðar­steinn ehf., bættist við hluthafa­hópinn. Fjár­festing Traðar­steins í Haga­vatns­virkjun er þriðja fjár­festing Þorsteins Más Baldvins­sonar og félaga honum tengdum í virkjunar­kostum á Íslandi en áður hafði Þorsteinn fjárfest í Svartár­virkjun á Norður­landi.

Þorsteinn Már segir að félag hans hafi nú selt hlutinn í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár