Landspítalinn vill leita leiða til að styðja ekkju Andemariams fjárhagslega

Beyene var fyrsti plast­barka­þeg­inn í heim­inum en mælt er með fjár­hags­að­stoð­inni í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um plast­barka­málið sem kynnt var á mánu­dag. Land­spít­al­inn vill einnig vera milli­ður í sam­skiptum við Karol­inska-sjúkra­húsið um að styðja ekkj­una.

Landspítalinn vill leita leiða til að styðja ekkju Andemariams fjárhagslega
Hluti harm­sögu Afdrif eig­in­konu Andemari­ams Beyene eru hluti þeirrar harm­sögu sem plast­barka­málið er sem slíkt. Eig­in­kona hans hefur ekki fengið greiddar bætur eftir að maður hennar var notað sem til­rauna­dýr í fyrstu plast­barka­að­gerð­inni í heim­inum án þess að aðgerða­tæknin hefði verið prófað á skepnum áður en bark­inn var græddur í hann. Andemariam sést hér með Tómasi Guð­bjarts­syni. Mynd: Vilhelm Gunnarsson

Land­spít­al­inn leitar nú leiða til að styðja ekkju Andemari­ams Beyene fjár­hags­lega en hann varð fyrsti plat­barka­þeg­inn í heim­inum árið sem hann var sendur til Sví­þjóðar frá íslenska sjúkra­hús­inu. Andemariam lést frá eig­in­konu sinni og þremur ungum börnum í árs­byrjun 2014 eftir að plast­barka­að­gerð sem átti að bjarga lífi hans reynd­ist ekki hafa skilað til­ætl­uðum árangri. 

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um plast­barka­málið sem gerð var opin­ber á mánu­dag­inn kom fram að nefndin teldi að Land­spít­al­inn ætti að styðja ekkju Andemari­ams fjár­hags­lega til að hún geti leitað réttar síns í mál­inu gegn Karol­inska-sjúkra­hús­inu. Orðrétt segir um þetta í svari frá Land­spít­al­anum við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar: „Verið er að skoða leiðir til að verða við ráð­legg­ingum nefnd­ar­innar, þar á meðal þess­ari.“

Leita upplýsinga hjá Karolinska

Þá segir enn fremur í svari Land­spít­al­ans að sjúkra­húsið muni óska skýr­inga frá Karol­inska vegna atriða í skýrsl­unni:  „Land­spít­ali mun óska skýr­inga hjá KS á upp­lýs­ingum sem fram koma í skýrsl­unni. Í kjöl­far þeirra skýr­inga verður frekar hægt að svara spurn­ingu þinni,“ segir í svari spít­al­ans við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

„Telur nefndin því ástæðu til að Land­spít­ali 
taki til athug­unar hvort ekki sé rétt að 
veita ekkju ATBs fjár­hags­að­stoð“

Hingað til hefur Land­spít­al­inn ekki verið í neinum sam­skiptum við ekkju Andemari­ams Beyene en hún þurfti að yfir­gefa Ísland eftir and­lát eig­in­manns­ins þar sem hún var ekki með dval­ar­leyfi á Íslandi. Lítið hefur til hennar spurst síðan en óstað­festar heim­ildir herma að hún sé nú búsett í Svíþjóð og fari í raun huldu höfði þar sem hún hafi ekki land­vist­ar­leyfi. 

Karolinska ekki greitt bætur

Ljóst er að staða ekkj­unnar er ekki góð um þessar mundir miðað við fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar og hefur Karol­inska-sjúkra­húsið ekki haft sam­band við hana að fyrra bragði til að greiða henni skaða­bætur út af með­ferð­inni á eig­in­manni hennar.  Þetta er eitt af þeim atriðum sem gagn­rýnt er í íslensku rann­sókn­ar­skýrsl­unni. 

Um þetta sagði meðal ann­ars í skýrsl­unni: „Telur nefndin því ástæðu til að Land­spít­ali taki til athug­unar hvort ekki sé rétt að veita ekkju ATBs fjár­hags­að­stoð svo hún geti ráðið sér lög­mann til að fara yfir það hvort um bóta­skyld atvik sé um að ræða. Ástæðan er ekki síst sú að mál þetta á sér vart neina hlið­stæðu á Íslandi og því er ástæða til að Land­spít­ali sýni sér­stakt frum­kvæði við að leysa úr mál­inu á sann­gjarnan og far­sælan hátt fyrir eig­in­konu og þrjá syni ATBs. Í þessu sam­bandi skal tekið fram að það vekur nokkra undrun að ekkja ATBs hefur komið þeim upp­lýs­ingum á fram­færi við for­mann nefnd­ar­innar að KS hafi ekki haft sam­band við hana til þess að fara yfir mögu­lega bóta­skyldu fyrir þau mis­tök sem gerð voru í máli ATBs og rakin eru í hinum sænsku rann­sókn­ar­skýrslum sem vikið er að í kafla 3 í meg­in­skýrsl­unni.“ 

Miðað við þetta hefði verið eðli­legt að Karol­inska-sjúkra­húsið hefði sam­band að fyrra bragði við ekkju Andemari­ams vegna mögu­legra skaða­bóta til hennar. Land­spít­al­inn virð­ist hins vegar, öfugt við Karol­inska-sjúkra­húsið, ætla að eiga frum­kvæði að því að hafa sam­band við ekkju Andemari­ams og bjóða fram aðstoð sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

Uppljóstrarar: „Plastbarkamálið er ennþá opið sár“
FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.
Sjúkratryggingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plastbarkamálinu
GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár