Facebook leyfir áfram nafnlausar áróðursauglýsingar fyrir íslensku sveitarstjórnarkosningarnar

Póli­tískar aug­lýs­ingar fjár­magn­aðar af nafn­lausum aðilum verða ekki leyfðar í fram­tíð­inni, sam­kvæmt svari Facebook til Stund­ar­innar. Hins vegar verður ekki gripið til aðgerða fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Nafn­lausir aðilar fjár­mögn­uðu áróð­ursefni sem birt­ist meira en milljón sinnum fyrir íslenskum kjós­endum.

Facebook leyfir áfram nafnlausar áróðursauglýsingar fyrir íslensku sveitarstjórnarkosningarnar
Aug­lýs­ing gegn Katrínu Jak­obs­dóttur Lög um fjár­mál stjórn­mála­flokka skylda þá til að gefa upp styrk­veit­endur þeirra, en þau ná ekki yfir fjár­magn sem fer í birt­ingu nafn­lausra nið­ur­rifs­aug­lýs­inga gegn and­stæð­ingum flokka. Í aug­lýs­ing­unni hefur Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, verið svert með kolum, vegna sam­þykkis Vinstri grænna á kís­il­veri á Húsavík eftir efna­hags­hrunið. Mynd: Facebook / Kosningar 2017

Í svari sam­fé­lags­mið­ils­ins Facebook við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar kemur fram að ekki verður gripið til neinna aðgerða til að gefa upp­lýs­ingar um þá sem fjár­magna kaup á nei­kvæðum, nafn­lausum aug­lýs­ingum gegn stjórn­mála­fram­boðum á Íslandi fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar næsta vor.

Hins vegar gætu nafn­lausir, póli­tískir aug­lýsendur þurft að greina frá því hverjir fjár­magna þá í nán­ustu fram­tíð, verði fyr­ir­ætl­anir Facebook að veru­leika.

Framundan eru aðgerðir hjá Facebook til að knýja þá sem birta stjórn­mála­tengdar aug­lýs­ingar til þess að gefa upp hverjir greiða fyrir aug­lýs­ing­arnar. Það er reyndar lög­bundið í Banda­ríkj­unum, en á Íslandi eru ekki slík lög til staðar. Hins vegar eru hér­lendis við lýði lög um fjár­mál stjórn­mála­flokka sem knýja þá til að gefa upp hvaða lög­að­ilar styrkja þá beint. Þau lög ná ekki yfir umfangs­miklar, nafn­lausar áróð­urs­aug­lýs­ingar sem beint er gegn póli­tískum and­stæð­ingum.

Herferð sem hafði áhrif á kosningarnar

Eins og Stundin fjall­aði um í síð­asta tölu­blaði sínu hafði umfangs­mikil nafn­laus áróð­urs­her­ferð áhrif á íslensku alþing­is­kosn­ingar. Einn og sami Facebook-hóp­ur­inn, Kosn­ingar 2017, sem gefur ekki upp aðstand­endur sína, birti mynd­bönd í á aðra milljón skipta, sem beindust gegn stjórn­mála­fram­boðum, öðrum en Sjálf­stæð­is­flokknum, Fram­sókn­ar­flokknum, Mið­flokknum og Flokki fólks­ins. Þá eru ótaldar ljós­myndir, meðal ann­ars breyttar myndir af stjórn­mála­mönnum. Helst var her­ferð­inni beitt gegn Pírötum fyrir kosn­ing­arnar 2016, sem þá höfðu mælst með mest fylgi á lands­vísu, og Vinstri grænum fyrir síð­ustu kosn­ingar, en þeir höfðu einnig mælst með mest fylgi.

Meðal þeirra sem teknir voru fyrir í áróð­urs­her­ferð­inni voru Katrín Jak­obs­dóttir, Benedikt Jóhann­es­son, Smári McCarthy og Helgi Hrafn Gunn­ars­son. Einnig birti hóp­ur­inn efni beint gegn Guðna Th. Jóhann­essyni í for­seta­kosn­ing­unum í fyrra.

Inngrip í kosningar rannsakað

Facebook hefur und­an­farið þurft að verja verk­lag sitt í birt­ingum nafn­lausra aug­lýs­inga fyrir leyni­þjón­ustu­nefnd Öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings. Í við­bragði við því hefur Facebook boðað breyt­ingar og aukið gagn­sæi. Inngrip, sem rúss­nesk yfir­völd eru sökuð um að hafa gert í banda­rísku for­seta­kosn­ing­arnar með efni og aug­lýs­ingum á Facebook, virð­ist hins vegar vera tölu­vert minna hlut­falls­lega en aðkoma nafn­lausra aðila að áróðri fyrir íslensku alþing­is­kosn­ing­arnar.

„Póli­tískir aug­lýsendur munu nú þurfa að gefa upp meiri upp­lýs­ingar og sýna fram á hverjir þeir eru“

Stundin sendi spurn­ingar á Facebook varð­andi aðgerðir til að auka gagn­sæi í kosn­inga­aug­lýs­ingum sem tengj­ast Íslandi. Þar er sér­stak­lega spurt hvort Facebook muni bregð­ast við gagn­rýni vegna ógagn­sæis og áhrifa nafn­lausra aug­lýs­inga á kosn­ingar fyrir íslensku sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar næsta vor. 

„Póli­tískir aug­lýsendur munu nú þurfa að gefa upp meiri upp­lýs­ingar og sýna fram á hverjir þeir eru. Þegar þeir hafa gert það munum við merkja aug­lýs­ingar þeirra sér­stak­lega sem póli­tískar og þeir munu þurfa að gefa upp hverjir borg­uðu fyrir þær. Við byrjum próf­anir á þessu í næstu þing­kosn­ingum í Banda­ríkj­unum og færum okkur yfir í aðrar kosn­ingar síðar,“ segir í svari Facebook, sem barst í gegnum sænskt almanna­tengsla­fyr­ir­tæki.

Áróð­urs­aug­lýs­ingNafn­lausi hóp­ur­inn kosn­ingar 2017 hefur birt mynd­bönd í á aðra milljón skipta til höf­uðs helstu and­stæð­ingum Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

 

 

 

Gefa ekki upplýsingar um Kosningar 2017

Facebook svarar hins vegar ekki spurn­ingu um hversu mikið fjár­magn var greitt til birt­ingar á aug­lýs­ingum hóps­ins Kosn­ingar 2017. 

Í nýjasta tölu­blaði tíma­rits­ins The Economist er meðal ann­ars fjallað um sam­fé­lags­miðla sem ógn við lýð­ræði, þar sem nafn­lausum, mark­hópa­mið­uðum og áróð­urs­kenndum aug­lýs­ingum er beitt til þess að hafa áhrif á við­horf kjós­enda fyrir kosn­ingar. 

„Við erum að gera allar aug­lýs­ingar gagn­særri, ekki bara póli­tískar aug­lýs­ingar. Við munum fljót­lega prufa virkni sem gerir öllum fært að heim­sækja hvaða síðu sem er á Facebook og sjá hvaða aug­lýs­ingar við­kom­andi síða er með í birt­ingu. Þegar kemur að póli­tískum aug­lýsendum erum við að vinna að tóli sem gerir fólki kleift að leita í gagna­banka aug­lýs­inga sem þeir hafa birt í for­tíð­inni. Fólk mun líka geta séð hversu mikið aug­lýsand­inn borg­aði, hvaða mark­hópum aug­lýs­ing­arnar beindust að, hverjir sáu aug­lýs­ing­arnar og fjölda birt­inga. Markmið okkar er að koma þessu út að fullu fyrir kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum 2018,“ segir í svari Facebook, sem er sam­hljóða yfir­lýs­ingu Marks Zuckerberg á Facebook 27. októ­ber.

Stundin sendi einnig fyr­ir­spurn á Facebook fyrir kosn­ing­arnar í fyrra og hafn­aði sam­fé­lags­mið­ill­inn því að veita ætti meiri upp­lýs­ingar um póli­tíska aug­lýsendur, meðal ann­ars þar sem nafn­leynd væri mik­il­væg til að gæta öryggis þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2017

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár