Sigmundur segir konur forðast stjórnmál vegna erfiðrar umræðu

Aðeins ein kona er í sjö manna þing­liði Mið­flokks­ins og telur for­maður flokks­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, að konur forð­ist stjórn­mál vegna „per­sónu­legs níðs“. Sjálfur stefnir Sig­mundur Davíð í meið­yrða­mál gegn frétta­fólki vegna umfjall­ana um leyni­legan hags­muna­á­rekstur hans. Hann vill taka á umræð­unni.

Sigmundur segir konur forðast stjórnmál vegna erfiðrar umræðu
Formaður Mið­flokks­ins Mynd: Pressphotos

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir að „taka verði á“ umræð­unni á Íslandi, þar sem konur treysti sér ekki í stjórn­mál vegna „per­sónu­legs níðs“ á stjórn­mála­mönnum.

Mið­flokk­ur­inn fékk 10,9 pró­sent stuðn­ing í yfir­stöðnum alþing­is­kosn­ingum. Af sjö þing­mönnum Mið­flokks­ins er ein kona. Sig­mundur segir það „til­vilj­un­ar­kennt“. Aðeins ein kona var í odd­vita­sæti hjá Mið­flokknum, eða í efsta sæti í sínu kjör­dæmi. 44 konur voru þó í fram­boði fyrir flokk­inn.

Veruleg fækkun hefur orðið á konum á Alþingi. Nú eru konur aðeins um 38 pró­sent þing­manna, en voru 48 pró­sent fyrir kosn­ing­arnar í gær. Helsta ástæðan er hátt hlut­fall karla hjá nýju flokk­unum Mið­flokknum og Flokki fólks­ins, og svo Sjálf­stæð­is­flokknum.

Sig­mundur gaf til kynna í þjóð­mála­þætt­inum Silfrinu að lélegt braut­ar­gengi kvenna mætti rekja til umræð­unnar um stjórn­mál á Íslandi og að konur forð­uð­ust að taka sér þær ábyrgð­ar­stöður sem þar væru vegna hennar. 

„En það sem ég er að spá í sér­stak­lega, varð­andi stöðu kvenna í stjórn­málum, er áferð stjórn­n­mál­anna. Maður hefur tekið eftir því að fólk almennt, en kannski sér­stak­lega konur, hlut­falls­lega meira konur, eru ekki hrifnar af því hvernig stjórn­málin líta út. Og þar af leið­andi finnst þetta ekki freist­andi starfs­vett­vangur,“ sagði Sig­mundur. 

Konur forðist ábyrgðarstöður

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, umboðs­maður Pírata, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar og Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, gagn­rýndu Sigmund fyrir að gefa til kynna að konur væru að forð­ast ábyrgð­ar­stöður, fremur en að þær fengju ekki tæki­færi til að gegna þeim stöðum.

„Þetta er alvar­legt vanda­mál sem við verðum að taka á“

Sig­mundur ítrek­aði þá afstöðu sína og gaf til kynna að taka þyrfti á þjóð­fé­lags­um­ræðu um stjórn­mála­menn, til að gera stjórn­mál freist­andi starfs­vett­vang fyrir konur. „Þetta er alvar­legt vanda­mál sem við verðum að taka á að það er orðið óaðl­að­andi fyrir fólk, bæði karla og konur, hlut­falls­lega er það meira konur, að fara inn á þetta starfs­svið. Og það breyt­ist ekki á meðan stjórn­málin halda áfram að þró­ast meira og minna út í eitt­hvað svona per­sónu­legt níð. Það breyt­ist fyrst þegar við förum að snúa okkur meira að mál­efnum.“ 

Sigmundur gagnrýndur vegna hagsmunaáreksturs 

Sig­mundur Davíð þurfti að víkja úr stöðu for­sæt­is­ráð­herra í fyrra eftir að leki úr pana­ma­ískri lög­manns­stofu leiddi í ljós að hann og eig­in­kona hans áttu um hálfs millj­arðs kröfu á þrotabú íslensks banka, sem þýddi að þau höfðu veru­lega leynda hags­muni tengda einu helsta úrlausn­ar­efni stjórn­mála­manna, sem Sig­mundur kom beint að. Í siða­reglum þing­manna og ráð­herra er kveðið á um að gefa eigi upp slíka hags­muni og gera almenn­ingi kunn­ugt um þá.

Sig­mundur sagði meðal ann­ars að George Soros, alþjóð­legur fjár­festir, stæði á bak­við Panama-skjölin. Soros var hins vegar sjálfur í skjöl­unum. Þá hefur Sig­mundur ítrekað sakað Rík­is­út­varpið fyrir að hafa beitt sér óheið­ar­lega gegn sér. 

Þá sagði Sig­mundur að við­tal hann við hann væri í raun falsað, en hann yfir­gaf við­tal eftir að hafa verið spurður út í félagið Wintris, sem hélt utan um kröfu þeirra hjóna.

Sig­mundur boð­aði fyrir kosn­ingar að hann stefndi að því að draga þrjá fjöl­miðla fyrir dóm eftir kosn­ing­arnar vegna umfjall­ana um sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2017

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár