Gagnrýnir að Íslandsbanki „steli“ hluta af áheitum á hana

Ung kona sem berst við krabba­mein og safn­aði áheitum í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu undr­ast að Íslands­banki láti draga frá hluta fjár­hæð­ar­innar sem heitið var á hana og átti að renna til stuðn­ings­fé­lags ungs fólks með krabba­mein. Hluti áheita sem safn­ast eru teknar í kostnað af kynn­ingu, en Lára Guðrún Jóhönnu­dóttur seg­ist hafa kynnt bank­ann í bak og fyrir með þátt­töku sinni.

Gagnrýnir að Íslandsbanki „steli“ hluta af áheitum á hana
Lára Guðrún Jóhönnu­dóttir Hljóp 10 kíló­metra til stuðn­ings ungu fólki með krabba­mein, til að safna áheitum, og gagn­rýnir að Íslands­banki taki hluta upp­hæð­ar­innar sem fólk lagði fram. Mynd: Hallur Karlsson

Ung kona með krabba­mein, sem hljóp í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu til styrktar Krafti - félagi ungs fólks með krabba­mein, gagn­rýnir að Íslands­banki, sem hagn­að­ist um 20 millj­arða króna í fyrra og 8 millj­arða fyrstu sex mán­uði árs­ins, láti draga frá hluta fjár­hæð­ar­innar sem safn­ast í áheit á hlaupara vegna kostn­aðar við kynn­ingu og vef­síðu­gerð. Íslands­banki brást við gagn­rýni hennar í kvöld og ákvað að láta af frá­drætt­inum.

Konan, Lára Guðrún Jóhönnu­dóttir, benti á að hún hefði sjálf kynnt Íslands­banka og Reykja­vík­ur­mara­þonið ótæpi­lega í ferl­inu og því ætti ekki að fjár­magna kynn­ingu með áheitum fólks til Krafts. Hún gagn­rýnir frá­drátt­inn af áheitum í færslu á Facebook í dag, þar sem aug­ljóst sé að Íslands­banki hljóti veru­lega kynn­ingu frá áheita­söfn­ur­unum sjálfum.

„Hey Íslands­banki ! Ég greiddi þátt­töku­gjaldið, sem var 6.500 kr. Ég aug­lýsti ykkur frítt með hlaupa­núm­er­inu sem mér var sagt að næla framan á mig, ég fór í for­síðu­við­tal í Frétta­blað­inu og aug­lýsti Reykja­vík­ur­mara­þonið, aftur, end­ur­gjalds­laust. Ég deildi hlaupa­styrks síð­unni linnu­laust og bögg­aði vini og ætt­ingja stans­laust í svona 12 vikur. Vefsíðan er smekk­full af Íslands­banka­merk­ingum, þetta var enn og aftur, vinna fyrir mig, frí aug­lýs­ing fyrir ykkur,“ segir Lára Guðrún.

„Ætliði í ALVÖRUNNI ALVÖRUNNI að stela (mér líður eins og þetta sé rán um hábjartan dag) óræðum hluta af pen­ing­unum sem ÉG safn­aði, í góðri trú að rynni óskertur til Krafts - stuðn­ings­fé­lags ungs fólks með krabba­mein og aðstand­anda þeirra fyrir rekstr­ar­kostnað?! Í ALVÖRUNNI! Í full­komnum heimi ættuð þið frekar að borga mér fyrir alla vinn­una sem ég gaf ykkur til þess að aug­lýsa bank­ann án end­ur­gjalds. Kallið mig barna­lega fyrir að halda að 800.000 kr. renni óskertar til góðs mál­efnis. Og afsakið orð­bragðið en fokk this!!! Ég er búin að borga fyrir þátt­töku mína. Ég er búin að borga fyrir yfir­bygg­ing­una. Ég er búin að aug­lýsa ykkur frítt.“

Uppfært: Íslands­banki sendi frá sér yfir­lýs­ingu í kvöld þar sem fram kom að bank­inn hefur ákveðið að hætta við að draga frá hluta af fjár­hæð­inni sem safn­ast. Yfir­lýs­ing kom vegna umræðu um rétt­mæti þess.

Um 5 pró­sent af þeirri fjár­hæð sem safn­ast í áheit hefur runnið til vef­síðu­gerðar, kynn­ingar og í annan kostnað. Í fyrra söfn­uð­ust tæp­lega 100 millj­ónir króna í áheitum, sem myndi jafn­gilda 5 millj­ónum króna. Þá greiddu um 14 þús­und manns gjald fyrir þátt­töku. Þar af má áætla að á milli 30 og 40 millj­ónir króna hafi verið greiddar vegna þátt­töku í 10 kíló­metra hlaupi, 15 til 20 millj­ónir vegna hálf­mara­þons, um 15 millj­ónir króna vegna mara­þons. Að auki tóku þús­undir þátt í skemmtiskokki og furðu­fata­hlaupi.

Lára Guðrún steig fram í við­tali við Frétta­blaðið fyrir Reykja­vík­ur­mara­þonið þar sem hún sagði sögu sína. Hún sagði frá því að hún hefði farið í brjóst­nám í mars, að hún hefði misst móður sína sautján ára úr krabba­meini og lýsti áföll­unum sem fylgja krabba­meini. Í við­tal­inu, sem hlaut miklar und­ir­tektir og var deilt yfir fimm þús­und sinnum á Facebook af vef­síðu Frétta­blaðs­ins, Vísi.is, voru hlekkir á vef­inn hlaupa­styrkur.is.

Í við­tal­inu lýsti Lára Guðrún einnig þeim erf­ið­leikum sem krabba­meins­veikir ganga í gegnum vegna skrifræðis og kerfis.

„Fólk er í lélegri samn­ings­stöðu þegar það er með krabba­mein. Það er veikt og hefur ekki þrek til að miðla þekk­ingu sinni um kerfið og þarfir til breyt­inga og bóta. Það er eng­inn sem kemur og er með upp­skrift að krabba­meins­ferli, þetta er einnig svo ein­stak­lings­bund­inn sjúk­dómur. Það eru auð­vitað starf­andi félags­ráð­gjafar en þeirra starfs­svið er tak­markað. Af hverju þarf þetta að vera svona flókið? Af hverju þurfum við að fara í gegnum margar stofn­anir? Stétt­ar­fé­lagið, Sjúkra­trygg­ingar, félags­mála­batt­er­íið, Trygg­inga­stofnun. Þetta er full vinna, ég var stans­laust að frá 8-4 á dag­inn. Gera og græja, fara með papp­íra, láta stinga mig og skoða. Halda utan um þetta allt saman. Ég var örmagna úr skrifræð­is­þreytu. Ég held ég sé að segja rétt frá því að í Noregi er félags­ráð­gjafi sem segir bara: Hæ, ég er aðstoð­ar­maður þinn í þess­ari krabba­meins­með­ferð. Ég óska þess að það sé þannig líka hér. Það væri þörf og dýr­mæt breyt­ing. Það þarf auð­vitað bylt­ingu, en þetta, ásamt því að hætta að láta krabba­meins­sjúka taka upp veskið, er góð byrjun.“

Gagnrýni Láru Guðrúnar á Íslandsbanka

Hey Íslands­banki ! Ég greiddi þátt­töku­gjaldið, sem var 6.500 kr. Ég aug­lýsti ykkur frítt með hlaupa­núm­er­inu sem mér var sagt að næla framan á mig, ég fór í for­síðu­við­tal í Frétta­blað­inu og aug­lýsti Reykja­vík­ur­mara­þonið, aftur, end­ur­gjalds­laust. Ég deildi hlaupa­styrks síð­unni linnu­laust og bögg­aði vini og ætt­ingja stans­laust í svona 12 vikur. Vefsíðan er smekk­full af Íslands­banka­merk­ingum, þetta var enn og aftur, vinna fyrir mig, frí aug­lýs­ing fyrir ykkur.

Ég safn­aði hárri upp­hæð, loka­talan er ekki enn komin, enda hægt að heita á mig þar til á mið­nætti annað kvöld. Ég var full­kom­lega ber­skjölduð að ræða opin­ber­lega um erf­iða atburði í lífi mínu af því ég trúði því að það væri til góðs. Alveg svona 100% óskert til góðs.

Lára Guðrún og fjöl­skyldaHún safn­aði um 800 þús­und krónum í áheit. Gera má ráð fyrir að 40 þús­und af því sé dregið frá vegna kostn­aðar við kynn­ingu.

Hagnaður Íslands­banka er stjarn­fræði­legur. STJARNFRÆÐILEGUR!

Ætliði í ALVÖRUNNI ALVÖRUNNI að stela (mér líður eins og þetta sé rán um hábjartan dag) óræðum hluta af pen­ing­unum sem ÉG safn­aði, í góðri trú að rynni óskertur til Krafts - stuðn­ings­fé­lags ungs fólks með krabba­mein og aðstand­anda þeirra fyrir rekstr­ar­kostnað?! Í ALVÖRUNNI!

Í full­komnum heimi ættuð þið frekar að borga mér fyrir alla vinn­una sem ég gaf ykkur til þess að aug­lýsa bank­ann án end­ur­gjalds.

Kallið mig barna­lega fyrir að halda að 800.000 kr. renni óskertar til góðs mál­efnis.

Og afsakið orð­bragðið en fokk this!!! Ég er búin að borga fyrir þátt­töku mína. Ég er búin að borga fyrir yfir­bygg­ing­una. Ég er búin að aug­lýsa ykkur frítt.

Haldið töflu­fund og athugið hvort þið finnið ekki 5 millj­ónir til þess að spreða í þennan kostnað. Látið hlaupa­styrk­inn vera. Þetta er klink fyrir ykkur. Þið eigið næsta leik.

VIÐBÓT: Ég stóð við mitt og kláraði þessa 10 km. þvert gegn lækn­is­ráði af því að ég var búin að gefa lof­orð, lof­orð um að skrölta alla þessa kíló­metra gegn því að fólk myndi styrkja mál­efni sem er mér svo gríð­ar­lega mik­il­vægt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár