Popúlistar eiga síður upp á pallborðið í þýskum stjórnmálum

Þýskir kjós­endur virð­ast ætla að halla sér að rót­grónum kerf­is­flokkum í kom­andi kosn­ingum. Þeir hafa meiri áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum en hryðju­verkum.

Popúlistar eiga síður upp á pallborðið í þýskum stjórnmálum
Þýska fólkið Dem deutche Mynd: Jón Bjarki

Gengið verður til þing­kosn­inga í Þýska­landi þann 24. sept­em­ber næst­kom­andi. Kristi­legir demókratar, CDU, flokkur Angelu Merkel þýska­landskansl­ara, er með yfir­burð­ar­fylgi í skoð­ana­könn­unum, á meðan sam­starfs­flokkur Jafn­að­ar­manna í rík­is­stjórn, SPD, hefur verið að missa flugið. Þessir tveir flokkar, sem stað­settir eru sitt hvorum megin í og við miðj­una í þýskum stjórn­málum, bera þó enn höfuð og herðar yfir aðra flokka ef marka má nið­ur­söðu nýlegrar skoð­ana­könn­unar Emnid stofn­un­ar­innar.

 

Samkvæmt henni myndu 38 pró­sent þýskra kjós­enda kjósa flokk Kristi­legra demókrata ef gengið yrði að kjör­borð­inu nú á meðan fylgi við Jafn­að­ar­menn er ein­ungis 23 pró­sent. Munurinn á milli flokk­anna tveggja er því heil fimmtán pró­sentu­stig sam­kvæmt könn­un­inni sem er í takt við aðrar nýlegar nið­ur­stöður. Vinstri flokk­ur­inn Die Linke er með 10,5 pró­sent fylgi, Græn­ingjar 6,5 pró­sent, frjálsir demókratar 8 pró­sent á meðan hægri öfga­flokk­ur­inn Alt­ernative für Deutschland, AFD, er með 9 pró­sent fylgi sam­kvæmt könnun Emnid.

Sú stað­reynd að rót­grónir flokkar í og við miðj­una beri höfuð og herðar yfir aðra flokka í kosn­inga­bar­átt­unni vekur athygli. Á tímum furðu­legra kosn­inga­úr­slita þar sem Bretar velja að ganga út úr Evr­ópu­sam­band­inu, Banda­ríkja­menn velja sér Donald Trump sem for­seta, og rót­grónir og gamlir valda­flokkar þurrkast út í Frakk­landi, virð­ist engin slík umpólun í kort­unum í þýskum stjórn­málum. Hvað skýrir þetta? Nið­ur­stöður nýrrar skoð­ana­könn­unar benda til þess að minni reiði sé að finna á meðal þýskra kjós­enda en þeim bresku og/eða Banda­rísku. Þá hafa þeir meiri áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum heldur en hryðju­verkum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þýsk stjórnmál

Reynsla

Jón Bjarki Magnússon

Þegar lúx­em­borg­skt skúffu­fé­lag eign­að­ist heim­ilin okkar

Berlín­ar­búar beita ýmsum ráðum til þess að halda niðri leigu­verði í borg sem trekkir að sér sífellt fleiri íbúa. Þegar lúx­em­borg­skt skúffu­fé­lag keypti nýlega litla íbúð­ar­blokk í aust­ur­hluta borg­ar­innar tóku leigj­end­urnir sig saman og börð­ust gegn söl­unni. Íslend­ing­arnir í hús­inu höfðu litla trú á að slík bar­átta gæti skilað árangri.

12 mín. lestur

ErlentÞýsk stjórnmál

Þýska öfga­hægrið missir flugið

Stuðn­ingur við þýska hægri öfga­flokk­inn Alt­ernative für Deutschland, AfD, virð­ist fara dvín­andi sam­kvæmt nýlegum skoð­ana­könn­unum í Þýska­landi. Meðlimir flokks­ins hafa meðal ann­ars talað fyrir því að flótta­menn séu skotnir á landa­mær­unum, gegn fóst­ur­eyð­ingum og kyn­fræðslu barna, og sagt að íslam sam­ræm­ist ekki stjórn­ar­skránni. Eftir að hafa fagnað sigri síð­ast­liðið haust mælist flokk­ur­inn nú aðeins með 8,5 pró­sent fylgi.
Erlent

Angela Merkel, leið­togi hins frjálsa heims

Ýmsir vilja meina að Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, sé leið­togi hins frjálsa heims nú þegar Donald Trump hefur tekið við völdum í Banda­ríkj­unum. Prests­dóttirin Merkel ólst upp í Austur-Þýska­landi. Hún er mennt­aður eðl­is­fræð­ingur og talar reiprenn­andi rúss­nesku. Við fall Berlín­ar­múrs­ins ákvað hún að láta til sín taka á vett­vangi stjórn­mál­anna. Kansl­ar­inn sæk­ist nú eftir end­ur­kjöri fjórða kjör­tíma­bilið í röð en kom­andi ár gæti orðið afdrifa­ríkt í Evrópu nú þegar popúl­ískir hægri flokkar eru að sækja í sig veðrið í álf­unni.

10 mín. lestur

Erlent

Óttast að falskar fréttir grafi undan lýð­ræð­inu í Evrópu

Svoköll­uðum fölskum fréttum hefur fjölgað veru­lega í Þýska­landi á nýju ári. Facebook hefur gert samn­ing við rann­sókn­ar­fjöl­mið­il­inn Correctiv um að sann­reyna þýskar fréttir. Svipaðir samn­ingar hafa verið gerðir í Banda­ríkj­unum. Frönsk og þýsk stjórn­völd ótt­ast að falskar fréttir geti haft veru­leg áhrif á kosn­inga­úr­slit í lönd­unum tveimur. Stjórn­mála­menn nýta sér orð­ræð­una um falskar fréttir í þeim til­gangi að grafa undan gagn­rýn­inni umræðu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu