Mynd: Heiða Helgadóttir

Hrakin af vinnustað vegna myglusvepps

Gabriela var rekin án frek­ari greiðslna af RGB mynd­vinnslu, systra­fé­lagi Pegasus kvik­mynda­gerð, þrátt fyrir skrif­legt sam­komu­lag um þriggja mán­aða starfs­lok. Eigandi segir ekk­ert óeðli­legt við starfs­lokin þar sem hún var verk­taki. Starfs­greina­sam­bandið kallar þetta gervi­verk­töku.

Gabriela Motola er marg­verð­laun­aður ljós­mynd­ari frá Banda­ríkj­unum sem starf­aði í verk­töku fyrir RGB, syst­ur­fé­lag kvik­mynda­fram­leið­and­ans Pegasus. Þar kvart­aði hún undan slæmum loft­skil­yrðum á skrif­stof­unni og afhenti yfir­mönnum sínum lækn­is­vott­orð sem gaf til kynna að veik­indi hennar tengd­ust senni­lega heilsu­spill­andi hús­næði á vinnu­staðnum. Að lokum var starfs­samn­ingi við hana rift. Það gerði aðal­eig­andi beggja fyr­ir­tækj­anna, Snorri Þórisson, þann 22. júní, eftir að yfir­maður hennar hafði samið við hana um þriggja mán­aða starfs­loka­samn­ing. 

„Þegar það kemur að því að skilja við verk­taka þá hefur hann ekki sömu rétt­indi og starfs­maður,“ sagði Snorri í tölvu­pósti til Gabrielu.

Gabriela er 41 árs, fædd og upp­alin í New Jersey í Banda­ríkj­unum, þaðan sem hún flutti til Bret­lands þar sem hún bjó til margra ára áður en hún kom til Íslands. Hún út ljós­mynda­bók­ina An Equal Difference árið 2015 um jafn­rétt­is­mál á Íslandi og þær fyr­ir­myndir sem fyr­ir­finn­ast hér.

Í des­em­ber 2016 hóf …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Mest lesið undanfarið ár