Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar gagnrýnir sérstaklega í bókun á fundi borgarstjórnar í gær að meirihlutinn hafi bætt við 50 milljónum í stólakaup og LED-skjái í borgarstjórnarsalinn á sama tíma og mikið aðhald er í rekstri borgarinnar, þar sem meðal annars fjölmörgum hefur verið sagt upp á ýmsum sviðum og deildum.
Bókunin er í tengslum við viðauka í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2026 og var kynnt á fundi borgarstjórnar á þriðjudag.
Verkefni sem valið er að verja
„Viðaukar við fjárfestingaáætlun gefa ágætis vísbendingu um hvaða verkefni meirihlutinn velur að verja og hvað hann lætur mæta afgangi,“ segir í bókun oddvita Samfylkingarinnar, Péturs H. Marteinssonar. Því næst segir:
„Í þessum viðauka við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026 lækkar fjárfesting í leikskólum um 168 milljónir króna, endurnýjun mötuneyta í leikskólum verður engin og hverfapottar, sem íbúar ráðstafa sjálfir í gegnum verkefnið Betri hverfi, eru skornir niður um helming. Á sama tíma bætist við 90 milljóna fjárfesting í …

















































Athugasemdir