Virkar vel fyrir ríki með veika stjórnsýslu

„Með aðild að ESB hvarf hættan á end­ur­komu her­for­ingja­stjórnar,“ segir Jesús Fernández-Villa­verde, spænskur pró­fessor í hag­fræði. Spánn hafi hagn­ast mikið á aðild­inni en upp­taka evr­unnar hafi engu að síður skapað áskor­anir.

Jesús Fernández-Villa­verde er spænskur pró­fessor í hag­fræði við Uni­versity of Penn­syl­vania í Banda­ríkj­unum. Aðspurður um áhrif aðildar Spánar að Evr­ópu­sam­band­inu segir hann: „Spánn fékk aðal­lega betri stofn­anir og skuld­bind­ingu um að forð­ast sér­stak­lega slæma efna­hags­stefnu.“

Hann er á meðal þekkt­ustu sér­fræð­inga á sviði þjóð­hag­fræði, ekki síst á sviði tölu­legrar hag­fræði og hag­fræði­legrar lík­ana­smíðar, helstu verk­færum seðla­banka og hag­stjórna. Hann hefur kennt eða gegnt gesta­stöðum við marga af virt­ustu háskólum heims, birt rann­sóknir í fremstu fræði­ritum hag­fræð­innar og hlotið marg­vís­legar við­ur­kenn­ingar á sínum ferli. Á meðal rann­sókn­ar­efna má nefna hag­sveiflur og hag­stjórn, pen­inga­stefnu og rík­is­fjár­mál og póli­tísk hag­kerfi. Þó að hann starfi í Banda­ríkj­unum fylgist hann grannt með stöðu mála á Spáni. 

Að hans mati felst helsti ávinn­ing­ur­inn í aðild að Evr­ópu­sam­band­inu í því að „það hjálpar löndum með lélega stjórn­sýslu og slæmar stofn­anir að „flytja inn“ betri stofn­anir,“ segir Fernández-Villa­verde. „Til dæmis: strang­ari fjár­laga­reglur, betri reglu­gerðir fyrir fyr­ir­tæki, …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár