Lífegg Látrabjargs

Á vorin fá land­eig­endur nokk­urra daga heim­ild til þess að síga niður stærsta sjáv­ar­bjarg lands­ins, Látra­bjarg, sem rís 441 metra úr sjó. Í frið­lýstum dröng­unum safna þeir eggjum til einka­nota. Í frið­lýs­ingu er kveðið á um að halda verði við þekk­ingu og hefðum, en erfitt reyn­ist að fá yngri kyn­slóð­ina til að taka við. „Við erum þeir síð­ustu sem gera þetta.“

Lífegg Látrabjargs
Þver­hnýpt í sjó fram Dagur kemur fyrir bún­aði áður en hann sígur niður bjargið ofan Barðsins. Mynd: Golli

Stöku ferða­menn leita lunda í Látra­bjargi þegar sex­hjól og örfáir jeppar þræða löt­ur­hægt hálf­ó­sýni­lega slóða fram á brún þessa mesta fugla­bjargs lands­ins. Í nokkra daga á vorin mega land­eig­endur nota þessa ann­ars frið­lýstu slóða til að koma fyrir heima­smíð­uðum sig­bún­aði sínum. Það er spenn­ingur og eggja­hljóð í mann­skapnum, greini­leg veisla fram undan. „Þetta er nátt­úr­lega viss geð­veiki. Maður þarf að vera stór­skrýt­inn og rugl­aður til að taka þátt í svona,“ segir Jónas Sig­mars­son glott­andi þar sem hann festir á sig brynjur og hlífar hann­aðar fyrir mót­or­hjóla­menn. Hann er að und­ir­búa sig fyrir sig. Góður hjálmur er lífs­nauð­syn, öfl­ugar hné­hlífar til að geta skriðið á hvössu grjót­inu inn í þröngar sprungur og tal­stöð til að eiga sam­skipti við þá sem öllu stjórna uppi á bjarg­inu, jafn­vel nokkuð hund­ruð metrum ofar.

Sig lagðist nánast af við slysið

Látra­bjarg hefur í gegnum ald­irnar verið mat­ar­kista sveit­ar­innar en einnig óvættur. Í minn­ingum Ásgeirs Erlends­sonar …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TÞF
    Torfi Þór Friðfinnsson skrifaði
    Þetta er ein flottasta grein sem ég hef lesið og skoðað TAKK
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Takk fyrir þessar dásamlegu myndir og fréttir af stórkostlegasta hluta landsins.
    Björgun áfafnarinnar af Doon var líka kraftaverk á þeim tíma, af fólkinu sem þar bjó,
    það hefðu fáir leikið eftir.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár